Keflavíkurgangan

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Qupperneq 51

Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Qupperneq 51
Nokkru utar við Hafnarfjarðarveg liggur „gamli vegurinn“ yfir Arnarnesið, en kotið Litla-Arnarnes stóð við Kópavog, og sér þar móta fyrir tóftum. Austan gamla vegar ofan við Litla- Arnarnes er dys, sem nefnist Þorgarður. Þar á að liggja vinnu- maður frá Bústöðum, er Þorgarður hét. Talið er að vingott hafi verið með honum og húsfreyju, nyti Þorgarður góðs at- lætis heima í koti er húsbónda mæddi vosbúð við gegningar. Þegar bóndi fannst drukknaður í Elliðaám, var Þorgarður tekinn og kærður fyrir morð. Ekkert sást á líkinu og Þor- garður þrætti. Hann var þó dæmdur til dauða af líkum, en leyfðist að leysa höfuð sitt með allhárri fjárhæð, af því að sönnunargögn skorti. Ekki átti Þorgarður fé, og í nauðum leitaði hann til bóndans á Seli á Seltjarnarnesi og hét að þjóna honum og niðjum hans af trú og dyggð meðan sér ynnist aldur og orka, ef hann leysti líf sitt. Bónda gekkst svo hugur við vandræðum Þorgarðar, að hann tók fram sjóði sína, en hann var ríkur, og fór að telja fram lausnargjaldið. I því kom kona hans inn í stofuna og spurði, hvað hann vildi með allt þetta fé. Bóndi segir sem var. Gekk þá konan að borðinu, tók upp bæði svuntuhorn sin að neðan og sópar með annarri hendinni öllum peningunum þar ofan í og segir: „Líði hver fyrir sínar gjörðir.“ Þorgarður segir: „Ekki mun hér skilið með okkur, því að ekki er það meira fyrir mig að sjá svo um, að kveðja mín fylgi ykkur hjónum og ætt ykkar í níunda lið.“ — Hann var tekinn af, en gekk aftur og fylgdi Selsfólkinu og hlaut afturgangan af því nafnið Sels-Móri. Kópavogseiðar Þingstaður við Kópavog lá undir handarjaðri danska valds- ins á Bessastöðum; þess vegna bauð Friðrik II. 1574 að flytja alþingi frá Þingvelli til Kópavogs, en Islendingar hlíttu aldrei þeim konungsboðskap. Hér voru hinir illræmdu Kópavogseið- ar unnir, mánudaginn 28. júli 1662. Þar setti Árni lögmaður Oddsson þing, en Hinrik Bjelke höfuðsmaður, sem þá var ný- kominn til landsins á herskipi, lét vopnaða hermenn standa hringinn í kringum þingheim. Höfuðsmaður beiddist af þing- heimi, að hann hyllti Friðrik konung III., og virðist það hafa gengið fram mótspyrnulítið. Þá lagði Bjelke fram eiðvalds- skuldbindinguna til staðfestingar, en þar „staðfestum og styrkjum vér (íslendingar) honum (konungi) allir og einhver til samans með öðrum hans Majestatis trúum undirsátum með þessu voru opnu bréfi háverðugri hans Majst sem einum fullkomnum einvaldsstjóra og arfaherra hans arfsrétt til Is- lands og þess undirliggjandi insuler og eyjar, sem og allan Majestatis rétt og fullkomna stjórnun og allt konungsvald, sem hans konungl. Majst. og hans Majst. skilgetnum lífserf- ingjum og skilgetnu afkvæmi og eftirkomendum svo lengi sem nokkur af þeim er til í karllegg eða kvenlegg, er í fyrr- nefndum act og giorningi bæði af Danmerkur og Norvegs- ríkis stéttum er gefið og eftir látið. Hér með afleggjum vér fyrir oss og vora erfingja og eftir- 1. Þinghústóftin. 2. Fangakofatóft. 3. ,,Hjónadysjar“. 4. „Systkina- leiði“. 5. Litla-Arnarnes. 6. Gvendarbrunnur. komendur allt það, sem í fyrri vorum fríheitum, landslögum, Recess og Ordinanzíu kann finnast stríða í móti Majestatis rétti ellegar maklega má þýðast að vera í mót Majestatis réttri einvaldsstjórn og fullkomnum ríkisráðum.“ Brynjólfur biskup Sveinsson virðist fyrstur hafa orðið fyrir svörum af hálfu landsmanna, og tjáði hann Bjelke höfuðs- manni, að íslendingar væru ófúsir að afsala sér öllum rétt- indum í hendur annarra. Bjelke svaraði biskupi einungis með því að spyrja, hvort hann sæi ekki hermennina. Eftir það fara ekki sögur af neinum mótþróa biskups eða klerka hans gegn staðfestingu einveldisins. Árni Oddsson lögmaður stóð þá á sjötugu. Hann neitaði að skrifa undir og stóð svo allan daginn. Loks kom svo, að hann lét undan hótunum höfuðs- manns og skrifaði undir tárfellandi. — Var þá slegið upp ypparlegri veizlu, sem stóð langt fram á nótt. Þeir sýsluðu upp á hljóðfæri til veizlunnar, trometa, filur og bumbur og hleyptu skotum af feldstykkjum 3 í senn. — Þá gengu rac- hetter og fýrverk af um nóttina. — Neðst í túninu á Kópavogi við veginn eru rústir hins fræga Kópavogsþings: Þinggerði og Þinghústóft. Fyrstu sögur af Kópavogsþingi eru frá fyrri hluta 16. aldar og tengdar landsölumáli. Kristján II. Danakonungur hafði lagt sig allan fram um það að selja hinum fræga Hinriki VIII. Englandskonungi eyjuna ísland með cllum gögnum, gæðum og réttindum. Einhverjir samningar virðast hafa tekizt laust eftir 1520. Þá kemur hingað Týli Pétursson frá Flensborg og telur sig hafa eitthvert umboð yfir landi. Ekki leizt Islending- Keflavíkurgangan — 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Keflavíkurgangan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Keflavíkurgangan
https://timarit.is/publication/962

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.