Vísbending - 17.12.2007, Síða 3
FRA RITSTJORA
BENEDIKT JÓHANNESSON
Vísbending er alla jafiia upptekin af hræringum í viðskiptum og
efiiahagslífi þjóðarinnar og fjallar um málefiii líðandi stundar. I
jólablaðinu gefum við okkur tíma til þess að líta um öxl og læra af
sögunni. Að þessu sinni em áföll og árangur í efnahagsstjóm á 20.
öld meginviðfangsefhi blaðsins.
Gjaldþrot íslandsbanka eldra árið 1930 hefur lengi þótt marka
tímamót í íslandssögunni. Þar var þó ekki allt sem sýnist og kannski
skipti mestu að á þessum tíma misstu Islendingar af fyrsta tækifærinu
til þess að koma á fót sjálfstæðum seðlabanka. Sigurður Jóhannesson
rekur þá sögu.
Líklega er kommúnisminn eitt stærsta slys mannkynssögunnar.
Hér á landi hrifust ungir menn af kenningakerfi hans og töldu að
brátt yrðu öllum ljósir yfirburðir Marxismans. Þór Vigfusson héit
til Austur-Þýskalands til þess að læra hagfiæði en komst brátt að
því að ekki var allt dásamlegt í þessu fyrirheitna landi. Páll Asgeir
Ásgeirsson ræðir við hann um þessa lífsreynslu.
Líklega þekkja fáir íslendingar sögu efnahagsmála á 20. öld hér
á landi jafnvel og Jónas H. Haralz og Jón Sigurðsson. Þeir vom
báðir ráðgjafar margra ríkisstjóma. Jónas kom fyrst að málum
sem bankaráðsmaður í Landsbankanum 1946-1950, en var seinna
forstjóri Efhahagsstofnunar og loks bankastjóri Landsbankans. Jón
var forstjóri Þjóðhagsstofiiunar og var svo í sex ár ráðherra og gafst
færi á að hrinda mörgum framfaramálum í ffamkvæmd. Þeir koma
víða við í spjalli við Olaf Hannibalsson þar sem hagstjómarmistök
em í brennidepli.
Síldin hefhr gert margan manninn ríkan en líka skilið menn eftir
snauða. Við lítum á upphaf síldveiða við Island.
Oðaverðbólgan var dýrari en margir hafa gert sér grein fyrir.
Ásgeir Jónsson metur kostnaðinn af henni til §ár.
Benedikt Jóhannesson. Mynd: Páll Stefánsson.
Jónína Leósdóttir rithöfundur er höfundur smásögunnar
Pabbastrákur þar sem lesendur gleyma eíhahagsmálunum um stund.
Að vanda er i blaðinu áður óbirt jólalag, að þessu sinni glænýtt lag
við jafngamla vísu Halldórs Blöndals.
Lesendum er þökkuð samfylgd á liðnum ámm með bestu óskum
um gleðileg jól og farsæl komandi ár.
EFNISYFIRLIT
Frá ritstjóra.............................................2
Jólasálmur................................................4
Úr Flóanum í sœluríki sósíalismans........................6
— Páll Asgeir Asgeirsson
Síldin kenuir: Upphaf síldveiða við ísland...............12
— Hreinn Ragnarsson og Síeinar J. Lúðvíksson
Lokun íslandsbanka 1930 og þáttur stjómvalda.............15
— Sigurður Jóhannesson
Hvað kostuðu verðbólguáratugimir?........................20
— Ásgeir Jónsson
Árið 2007 í Vísbendingu..................................22
— Annáll
Afdrifarík hagstjómarmistök .............................24
— Ólafur Hannibalsson rœðir við Jón Sigurðsson og Jónas Haralz
Pabbastrákur.............................................33
— Smásaga eftirJónínu Leósdóttur
iUiUUU
heimur
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson.
Útgefandi: Heimurhf., Borgartúni 23,105 Reykjavík.
Sími: 512 7575. Myndsendir: 561 8646.
Netfang: visbending@heimur.is
Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Háskólans
Umbrot og hönnun: Siguijón Kristjánsson, sjonni@heimur.is
Auglýsingar: Vilhjálmur Kjartansson, vilhjalmur@heimur.is
Prentun: Gutenberg. Upplag: 5.000 eintök.
Forsíðumynd: Páll Stefánsson.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki affita án leyfis útgefanda.
VÍSBENDING I 3