Vísbending


Vísbending - 17.12.2007, Blaðsíða 31

Vísbending - 17.12.2007, Blaðsíða 31
JH: Það er svo, því miður. OH: Fyrir örfáum ámm var það aðalröksemd stjómmálamarma fyrir því að kvótakerfið væri vel heppnað, að aldrei hefðu verið fleiri eignaraðilar að auðlindinni. JH: Já, þetta hefur ekki verið heppileg og æskileg þróun. JS: Þeim mun mikilvægara sem hlutafé er til þess að fjármagna íjárfestingaráform hlutafélaga, þeim mun mikilvægari verður markaðurinn, því forsenda þess að selja hlutabréf til almennings og stofnanafjárfesta er að þau séu skráð á opinberum markaði. Meðan lánsfé er í boði á mjög hagstæðum kjömm velja hlutafélögin þá leið fremur, eins og Jónas var að lýsa, þ.e. að skuldsetja sig og leysa smærri hluthafa út úr félögunum og afskrá síðan En þetta atferli er háð markaðsaðstæðum. Fjölmiðlar og greiningardeildir JH: Ég er krítískur á starfsemi greiningardeilda bankanna. Ég sé ekki vel tilganginn með þeim. Þær em mikið í fjölmiðlunum; Það sem þær segja um almenna efnahagsþróun er lítils virði. Það em ekki nema sjálfsagðir hlutir. Og greiningin hjá þeim er grunnfærin. Svo em þeir allir með það sama, allir bankamir á sama tíma. Okkur vantar óháða stofnun. Þjóðhagsstofnun var lögð niður og ég held það hafi verið mistök. Það var ýmislegt í hennar fari sem ekki var á réttri braut eins og komið var. Nú er ekkert nema tómarúm og ríkisstjómina sjálfa vantar alla leiðbeiningu. JS: Ég tek undir það með Jónasi, þótt okkur sé báðum málið skylt, að það er eftirsjá að Þjóðhagsstofhun sem greiningaraðila, svo maður noti nú það orðalag sem algengt er núna. Um hlutverk Opinbert eftirlit má þó auðvitað aldrei fara offari og þarf jafnan að byggja á traustum, almennum reglum. fjölmiðlanna get ég líka tekið undir það að líklega fái greiningardeildir bankanna óheppilega stórt hlutverk í kynningu á efnahagsmálum og viðfangsefnum á því sviði. Uppistaðan í efhahagsfféttunum um þessar mundir - sem em nú að sumra áliti of hátt hlutfall ffétta á Islandi yfirleitt - er efni ffá greiningardeildum bankanna. Það er auðvelt að taka undir með Jónasi, að það væri æskilegt að „hlutlausari" aðilar hefðu hér stærra rúm. JH: Sem hefðu einhvem sneftl af skynsemi. Eitthvað um málið aó segja, því greiningardeildimar þoralítiðaðsegjavegnamargvíslegraviðskiptatengsla sinna stofhana. Tómarúm í efnahagsrdögjöf JH: Alls staðar til í löndunum sem við þekkjum til, starfa bæði opinberar stofnanir og einkastofnanir sem em með góða greiningu á efnahagsmálum.Hér er bara tómarúm. Þegar Tryggvi Þór Herbertsson var yfir Hagffæðistofnun Háskólans, þá var mikið leitað til hans. Mér fannst hann nú stundum vera of greiðugur að gefa álit, en Hagfræðistofhun er af allt öðm tagi. Hún tekur að sér ákveðin rannsóknarefni, sem hún vinnur bæði fyrir opinbera aðila og aðra, en hún leysir ekki þetta vandamál, fyllir ekki það tómarúm sem hefur skapast við það að Þjóðhagsstofhun var lögð niður. A hinn bóginn vom endurbætur á Þjóðhagsstofnun tímabærar og eðlilegar. JS: Ég tek undir þetta með Jónasi. Það er eftirsjá að slíkri starfsemi. Við þurfúm að heyra óháðar raddir um hin daglegu viðfangsefhi efnahagsmála. $ LÝSING Lýsing hefur byggt upp orðspor sem traust fyrirtæki með afburða starfsfólk og persónulega þjónustu. Síðastliðin 20 ár hefur Lýsing stutt við bakið á fjölda fyrirtækja víðsvegar um landið og býður upp á fjölbreytta möguleika í fjármögnun sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins. Lýsing - fjármögnun í takt við þínar þarfir LYSiNG.IS // 540 1500 „ Við hjá Amarverki þurfum öflug tæki sem eru i fremstu röð í jarðvegsvinnu. Lýsing hefur ávallt verið fyrsti kosturinn þegar við höfum þurft á fjármögnun að halda. Hjá Lýsingu er unnið hratt og vel úr okkar málum af einstöku starfsfólki sem hefur skilning á þörfum okkar.“ Ágústa Einarsdóttir fjármálastjóri, Arnarverk ehf Öflug VÍSBENDING I 31

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.