Vísbending - 17.12.2007, Blaðsíða 6
ÚR FLÓANUM í
SÆLURÍKI SÓSÍALISMANS
S VEIT ASTRÁKURINN SEM LÆRÐIHAGFRÆÐIOG BJÓ MEÐ NJÓSNARA STASI
----------- PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON -
Þór Vigfússon 2007.
Mynd: Geir Ólafsson.
Þór Vigfusson lærði hagfræði í Austur-Þýskalandi á árunum 1957-1961. Einar Olgeirsson útvegaði honum skólavist og heim kominn
skyldi hann verða hagfræðingur og ráðunautur þeirra sem vildu gera ísland að sósíalísku ríki. Þór riíjar upp mótunarárin á Laugarvatni,
námsárin í Þýskalandi, segir ffá sambúð sinni með njósnara Stasi og gerir upp við trú sína á sósíalismann og sæluríki hans.
Þegar ég ók austur Hellisheiði til fúndar við Þór Vigfússon gat ég
ekki annað en dáðst að roðanum í austri. Kaldur dagur var að rísa en
það var hlýtt inni á Straumum við bakka Ölfusár þar sem eldur logaði
í ami og sterkt kaffi með tjómablandi omaði ferðalangi.
Þór Vigfússon er ríflega sjötugur og sestur í helgan stein eftir langan
starfsferil við kennslu og skólastjóm í heimahéraði sínu. Hann ólst
upp á Selfossi og lauk þar bamaskólanámi en stundaði síðan nám við
Menntaskólann á Laugarvatni. Eftir stúdentspróf hélt hann til náms
í hagfræði í Austur-Þýskalandi þar sem Ulbricht, ffamkvæmdastjóri
miðstjómar flokksins, var að koma sæluríki sósíalismans á laggimar.
Þór d valdist fyrst í Lcipzig og síðan í Berlín í sex ár og yfirgaf borgina
fáeinum dögum eftir að Berlínarmúrinn reis.
Þór var í hópi sérvalinna efnilegra námsmanna sem Einar
Olgeirsson útvegaði ókeypis námsdvöl í Austur-Þýskalandi en á
þessum ámm var flokkurinn að vinna að því að koma á fót sósíalísku
samfélagi á Islandi og til þess þurfti vel menntaða rétthugsandi menn
og þótti gott að taka þá unga og hreinhjartaða.
Mikið vatn er runnið til sjávar síðan karlssynir ofan af Islandi
héldu út í heim með drauminn um sæluríkið í vasanum og flest hin
meintu sæluríki sósíalisma um heiminn gervallan em liðin undir lok
nema ef til vill Kúba Castros sem enn stendur að nafninu til. Sósíalískt
menntaðir hagfræðingar vom sennilega aldrei nema þrír á Islandi,
Guðmundur Agústsson, sem nú er látinn, Hjalti Kristgeirsson, sem
lærði í Ungvetjalandi, og Þór.
6 | VÍSBENDING