Vísbending


Vísbending - 17.12.2007, Page 14

Vísbending - 17.12.2007, Page 14
Staflar af síldartunnum. Siglufjörður snemma á 20. öld, fullur af bátum. fylgdust með síldargöngum, sem munu ekki hafa verið miklar, og að auki vom yfirvöld á svæðinu á verði og meinuðu Norðmönnunum að stunda veiðar sínar í fjöruborðinu. Síðan var skipunum haldið austur á Seyðisfjörð og þar keypti nýja félagið stóra lóð við hlið lóðarinnar sem Jacobsen hafði keypt þar árið áður. Reistu þeir hús á lóðinni en höfðu jafnframt góðar gætur á síldargöngum sem létu lengi vel á sér standa. Var það ekki fyrr en um haustið sem mikil síld gekk í fjörðinn og fengu Norðmennimir þá um 2.500 tunnur af góðri síld. Munaði ekki miklu að fcngur þeirra yrði mun meiri, þar sem um miðjan október höfðu þeir náð álíka mikilli síld í nætur sínar. En þá gerði vonskuveður og sjógang þar eystra sem varð til þess að þeir misstu alla síldina úr nótunum. Fleiri Norðmenn en Mandals Fiskeriselskab komu við sögu síldveiða við Island árið 1868. Weyergang, útgerðarmaður í Mandal, sendi skipin Sleipner og Caroline til Islands. Leiðangursstjóri og skipstjóri á fyrmefhda skipinu var Otto Wathne sem átti eftir að koma mikið við sögu síldveiða á Islandi. Leiðangursmenn lögðu fyrst og fremst stund á verslun en gripu einnig í síldveiðar og Otto Wathne notaði tækifærið og festi sér lóð á Búðareyri. Þá vom einnig á ferð þetta sumar og haust menn frá Hammersfélaginu eða „Danska fiskiveiðafélaginu á Vestdalseyri". Urn þetta leyti vom þeir að gefast upp á hvalveiðum og ákváðu að reyna fyrir sér við síldveiðar. Keyptu þeir net af Norðmönnunum en fengu sáralítinn afla, eða einungis um 100 tunnur. Sá ágæti árangur sem Mandælir náðu við veiðamar árið 1868 vakti enga sérstaka athygli í Noregi, enda vom vorsíldarveiðamar þar árvissar og arðbærar. Arið eftir komu Mandælimir affur og Weyergang sendi einnig leiðangur til síldveiða á Seyðisfirði undir stjóm Ottos Wathnes. Nú brá svo við að engin síld veiddist. Þetta ár var tíð einkar óhagstæð og þess getið að þegar Norðmennimir hugðust fara til Sigluljarðar eða Eyjafjarðar og leita fyrir sér þar, þá komust þeir ekki lengra en til Borgarfjarðar eystri vegna hafiss. Til betri tíðar brá þegar leið á sumarið og um haustið var í frásögur fært að hafsíldarhlaup hefði komið í Hafharfjörð. Var síldin stór og feit og var nokkuð veitt af henni og nýtt sem beita í Hafnarfirði og nágrannabyggðarlögum. Af söltun varð hins vegar ekki þar sem tunnur skorti og enginn á þessum slóðum kunni til verka. Sagan endurtók sig næstu árin. Mandals fiskeriselskab sendi síldveiðileiðangur til Seyðisfjarðar ár effir ár en nánast enginn afli fékkst og fyrirtækið var rekið með bullandi tapi. Vom Norðmennimir rcyndar stundum seinheppnir eins og árið 1870. Þá vom þeir búnir að bíða lengi eystra eftir síld, en ákváðu síðan að halda til Eyjafjarðar og reyna fyrir sér þar. Enga síld fengu þeir í norðurferðinni en hins vegar fylltist Seyðisfjörður af síld á meðan þeir vom fjarverandi. Hún var farin þegar þeir komu til baka. Arið 1875, eftir sex ára síldarleysi, gáfúst flestir hluthafanna í Mandals fiskeriselskap upp. Albert Jacobsen og Carl Lund keyptu þá eignir félagsins og héldu áfram rekstri fyrir eigin reikning. Og nú uppskám þeir loks laun erfiðis síns og fengu um 2.000 tunnur. Árin 1877 og 1878 fengu þeir einnig allgóðan afla. Haugasundarar koma til sögunnar Um þessar mundir höfðu vorsíldarveiðar Norðmanna bmgðist um nokkuna ára skeið og síldveiðimenn í Vestur-Noregi löptu dauðann úr skel. Jacobsen og Lund höfðu alla tið haft síldveiðimenn frá Haugasundi og Karmöy í þjónustu sinni. Það var því að vonum að aðrir síldveiðimenn af þessu svæði hugsuðu sér til hreyfmgs. Arið 1876 sendi Sigvart Waage fra Skudeneshavn leiðangur til Seyðisfjarðar. Það ár gengu veiðar Norðmanna betur en áður og fregnir vom af ágætum síldarafla á Eyjafirði í ársbyijun 1877. „Hér hefir viðhaldist til langs tíma ágætur síldarafli og þarf lítið fyrir að hafa, því síldin veður stöðugt upp við landsteina; daglega er hún flutt héðan í stórlestum í allar áttir til matar og fóðurs og er tunnan seld á 50 aura,“ segir í blaðinu Norðlingi 18. febrúar 1876. En afli Norðmanna fór vaxandi næstu árin og það leiddi aftur til aukinnar þátttöku í veiðinni. Arið 1879 sendu Haugasundarar fyrst skip á Islandsmið með góðum árangri. Nú var ísinn brotinn. Arið 1880 vom 578 Norðmenn við síldveiðar á Islandi og sú tala hækkaði í 1.800 árið 1881. Forsendur fyrir stórfelldri sókn Norðmanna voru nú fyrir hendi. I fyrsta lagi vom veiðarfæri og marmafli til staðar í norsku síldarbæjunum. I öðm lagi hentuðu veiðarfærin vel við íslenskar aðstæður og norsku síldveiðimennimir höfðu áratugareynslu af því að flytja búnað sinn um langa vegu meðfram norsku ströndinni. Loks hafði nokkurra ára aflabrestur í vorsíldarveiðunum og ríkuleg aflavon í íslensku fjörðunum það í för með sér að norsku síldveiðimennimir vom óðfúsir til Islandsfarar. I Noregi var eignarhald á nótalagi og flutningaskipum yfirleitt ekki á einni hendi. Utgerðannenn skipanna og eigendur nótalaganna stoíhuðu því yfirleitt með sér félag um Islandsleiðangur. Þetta vom raunar einu skipulagsbreytingamar. Að öðm leyti má líta á Islandsferðir Norðmanna sem rökrétt framhald vorsíldarveiðanna. Haugasund var, eins og að framan greinir, höfiiðmiðstöð vorsíldarveiðanna. Síldveiðimenn þaðan urðu því umsvifamestir í íslenskum fjörðum og áttu oft um og yfir helming úthaldsins hér við land. K 14 IVÍSBENDING

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.