Vísbending


Vísbending - 17.12.2007, Qupperneq 29

Vísbending - 17.12.2007, Qupperneq 29
Ingólfur leggur það fram, og þá voru þetta tíu prósent af landbún aðarframleiðslunni. Svo bætti hinn samviskusami embættismaður, Klemens Tryggvason, enn betur um með því að skilgreina hvað landbúnaðarframleiðsla væri og fór þá eftir hagskýrslugerð og taldi öll hlunnindi og aukabúgreinar með: Rekavið, æðarvarp, Iax- og silungsveiði og grænmetisrækt. Þetta var allt tekið inn í stofhinn, sem útflutningsbætumar vom reiknaðar á. Þess vegna varð þetta ennþá meira en nokkur ætlaðist tíl í upphafí Samt var þetta ekki stórfellt á þessum tíma. JS: En svo koma þeir tímar að þetta verða háar upphæðir. Sinnaskipti Sjálfstceöisflokksins OH: Hvað er það sem veldur þessum straumhvörfum milli 1980 og 1990, þessum aðdraganda að siðasta áratug aldarinnar sem þú varst að nejha að vœri óvenjulegur hvað ejhahagslegan árangur snerti? JS: Já, og einkum stöðugleikann sem náðist á árunum eftir 1990. Aðdragandinn að vaxtarskeiðinu sem hófst um miðjan tíunda áratuginn er í gegnum erfiðleika, því fyrstu ár áratugarins vom erfið hér á landi. En þau vom ekki bara erfið á Islandi, heldur var lægð í heimsbúskapnum og ekki síst í okkar heimshluta. Nágrannalöndin glímdu þá við mikla efnahagsörðugleika og hér á landi dró úr hagvexti. Það má segja Islendingum til hróss að þessum vanda snem menn sér i hag. Því á þessum ámm sannfærast menn um það að stöðugleiki og opnun viðskipta sé vegurinn til framfara, sem sannarlega hefur reynst rétt skoðun. Okkur er áreiðanlega öllum í fersku minni hvemig viðtökur tillögumarum aðildað EES fengu í fyrstu, þegar Sjálfstæðisflokkurinn var í stjómarandstöðu. Þá börðust ýmsir þingmenn hans gegn aðild að EES. Það em hin miklu sinnaskipti Sjálfstæðisflokksins, undir forystu Davíðs Oddssonar, sem réðu því að aðildin var samþykkt. Þcgar tillögumar um aðild að EES koma til kasta þingsins í tíð ríkisstjómar Davíðs, var meirihluti þingmanna Framsóknarflokksins reyndar á móti aðildinni. En Halldór Asgrímsson, Valgerður Sverrisdóttir og Finnur Ingólfsson sátu hjá. Það markar líka tímamót að haustið 1992 vom sett ný lög um gjaldeyrismál, sem hafa sömu meginreglu og innflutningslögin sem viðreisnarstjómin setti í upphafi síns starfsferils, nefnilega, að það sé leyft sem ekki er bannað. I staðinn fyrir það gamla kerfi sem áöur ríkti, að það sé bannað sem ekki er leyft. Einkaleyfi afurðasölufyrirtœkjanna ÓH: Sala sjávarafurða var háð leyjisveitingum pólitiskra ráðherra sem úthlutuðu einkaieyfum á saltfiski ogfrystum fiski. Hélst það ekki framyfir 1990? JS: Jú, ég veit það á mínu eigin skinni sem viðskiptaráðherra undir lok níunda áratugarins. Það var þá í hendi ráðherra að leyfa fískútflutning, öðmm en stóm sölusamtökunum. Þegar ég veittí slíkt leyfí var rekið upp mikið ramakvein og hart deilt á ráðherrann. JH: Mér er það minnisstætt fra dögum viðreisnarstjómarinnar að í einhveijum umræðum lét ég orð falla um það að þetta fyrirkomulag sölusamtaka sjávarútvegsins væri ekki skynsamlegt. Ólafur Thors brást aldrei þessu vant við af reiði. Að láta sér detta annað eins í hug. JS: Þetta er í raun og vem spuming um átök á milli þeirra sem aðhyllast almennar, sanngjamar leikreglur sem gildi eins fyrir alla, og hinna sem vilja sértækar ráðstafanir og sérréttindi fyrir fáa. ÓH: Það var líka almenn trú meðal forráðamanna frystihúsanna að það væri langbest að framleiða fyrir Austur-Evrópu, það væri einfaldast, fljótlegast og ódýrast. Þeir markaðir tóku líka ýmsar aðrar fisktegundir en þorsk og stuðluðu þannig að aukinni fjölbreytni í útgerðarmynstrinu. JS: Já, og vom ekkert að kvarta þótt eitthvað væri af beinum í flökunum. Þetta er allt saman vel kunnugt og sem betur fer liðin tíð. Óskum vióskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleóilegs árs. Þökkum samskiptin á árinu sem er aó líóa. Starfsfólk Gutenberg ft * Gutenberg Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 545 4400 Fax 545 4401 www.gutenberg.is VÍSBENDING I 29

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.