Vísbending


Vísbending - 17.12.2007, Qupperneq 33

Vísbending - 17.12.2007, Qupperneq 33
PABBASTRÁKUR --- SMÁSAGA EFTIR JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR - Pabbi minn er bestur af öllum. Það er alveg sama hvað hver segir. Hann er langbesti pabbi í heimi! Fyrir utan það að hann skyldi skilja við mömmu er ég bara óhress með eitt sem hann hefbr gert. Það er nafiiið sem hann ákvað að ég skyldi heita. Eg er mjög óánægður með það. Eiginlega er ég alveg öskureiður út af því. Þetta nafn er búið að baka mér mikil vandræði. Nafnið sjálft er reyndar ósköp sakleysis- iegt. Ég heiti Jónas. Það kippir sér enginn upp við að heyra það. Samt hefði pabbi átt að velja eitthvert annað nafn. Hvaða nafn sem væri. Bara ekki Jónas. Maður, sem heitir Hallgrímur, á ekki að láta son sinn heita Jónas. “Hvað segirðu? Jónas Hallgrímsson! Heitirðu virkilega Jónas Hallgrímsson, alveg eins og þjóðskáldið okkar? Yrkirðu kannski líka?“ Ég væri orðinn moldríkur ef ég hefði fengið tíkall í hvert skipti sem einhver gerði veður út af nafhinu mínu. Það gerist alltaf þegar ég þarf að segja til nafhs. Undantekningalaust. Þess vegna segist ég stundum heita Jón. Það þýðir auðvitað ekkert að þykjast heita Jón í skólanum. Þar vita allir að ég heiti Jónas og krakkamir þreytast aldrei á að stríða mér á því að heita sama nafni og þetta blessaða ljóðskáld sem var þar að auki alkóhólisti. Hann dó vegna þess að hann datt niður stiga þegar hann var á fylliríi í útlöndum. Það finnst krökkunum ofboðslega fyndið. I hvert sinn sem við göngum niður stigann í skólanum minnist einhver á þetta. “Passaðu þig, Jónas!“ “Dettu ekki, þú gætir drepist!" Og allir skellihlæja. Ég er búinn að bíða lengi eftir því að þau fái leið á þessu. Það eru þijú ár síðan ég kom í þennan skóla. Ég hef verið í honum ffá því ég var átta ára og núna er ég orðinn ellefu. Það ættu allir að vera búnir að venjast nafninu mínu fyrir löngu. En þetta er ennþá uppáhalds brandarinn í bekknum. Pabbi ætlaði auðvitað ekki að gera mér erfitt fyrir. Honum fannst bara sniðugt að eiga son sem héti svona þekktu nafni. Hann áttaði sig ekki á því að mér yrði strítt á þessu. Pabbi er svolítið þannig. Oft áttar hann sig ekki á hlutunum fyrr en það er orðið of seint. Svo er hann líka óskaplega utan við sig. Hann hefur stundum steingleymt að sækja mig á föstudögum. Samt veit hann vel að ég á að vera hjá honum aðra hveija helgi. Kristján, nýi kærastinn hennar mömmu, er allt öðruvísi. Hann keinur alltaf á réttum tíma og gleymir aldrei neinu. Það mætti halda að maðurinn væri með tölvuheila. Þegar ég var níu ára spurði hann mig til dæmis hvaða bíómynd mér þætti best. Ég sagði “Batmarí? A tíu ára afmælinu mínu — löngu, löngu seinna -- gaf hann mér svo Batmanspólu. Mömmu fannst alveg ffábært að Kristján skyldi muna þetta eftir allan þennan tíma. Hún fékk tár í augun og kyssti hann á munninn fyrir fJaman alla strákana i afmælisveislunni minni. Hún hefur örugglega verið að bera hann saman við pabba í huganum. Þetta ár gleymdi pabbi nefnilega afmælinu mínu, alveg óvart. Hún var rosalega reið út af því. VÍSBENDING I 33

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.