Heimilisritið - 01.01.1948, Page 8

Heimilisritið - 01.01.1948, Page 8
Þá funaði Alexander upp og hann dró hnífínn úr slíðrum. En snikkarinn liljóp í bátinn ög stjakaði frá, og þegar liann var hólþinn ög öruggui- nokkra faðma frá landi hrópaði hann að hann ætlaði að kæra flakkarann fyrir yfirvöldunum. Dagarnir liðu. Alexander gamli „Splint“ kom á bát sínum og vildi fá son sinn um borð, en Alexander yngri færðist undan og krafðist þess að fá að vera um kvrrt út ráðn- ingartímann. Og' hann hafði víst, ginnt föður sinn með því að hann myndi enn stéla miklu af bænum, því tatarabáturinn sigldi á brott án þess Alexander yngri væri þar innanborðs. Alexander sagði við Leonördu: Svalan er kornin. Er ekki ráð að þú gangir með mér niður á bryggju og látir mig fara að beykja tunnur og trog fyrir sum- arvertíðina? Hana grunaði víst ekki enn við hvern lnín átti, hún gerði sér upp hæðnissvip og mælti: Það þori ég vel. En hæðnissvipurinn var víst ekki annað en yfirskin og tví- skinnungurinn í orðum hans var henni ekki jafn ógeðfelldur og áður. Hún sá að ást, hans varð heitari með degi hverjum. Þau höfðu ekki verið örskots- stund á bryggjunni þegar Alex- ander hremmdi hana og hélt henni fastri og kyssti hana á munninn hvað eftir annað. Þú ert genginn af vitinu, sagði hún og smeygði sér úr faðmi hans rjóð og með andköfum. Á ég nú aftur að fara á morg- un? sagði hann. Að þessu sinni svaraði Leon- arda stillilega: Það fer eftir því hvernig þú heg'ðar þér. Eg skal aldrei gera það fram- ar, sagði hann. Hann efndi eklci loforð sitt. Hann laug iðulega og lét hana ekki í friði. Og sá dagur kom að hjarta Leonördu tók að hneig'jast all- mjög að þessum þeldökka heið- ingja. Betri var hún ekki og ekki heldur stoltari. Honum varð ekkert ágcngt með hana fvrstu vikumar, en fjórðu vikuna horfði hún á hann heitum -og dökkum augum. Og það var ein- mitt á veldisdögum laufsprot- anna og hinríá viðsjárverðu ljósu nátta í Norðui'-Noregi. Loks gekk hún út að mógröfunum og steig niður til hans með miðdeg- isverðinn, þótt hún hefði vissu- lega getað sett hann frá sér á mógrafarbakkann eins og venju- lega. En þetta gerði hún til að komast eins nálægt honum og kostur var. (i HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.