Heimilisritið - 01.04.1955, Blaðsíða 13
II. Ertu góð eiginkona?
1. Læturðu hann færa þér
morgunkaffið í rúmið?
2. Leggurðu hald á morgun-
blöðin, áður en hann hefur
fengið að sjá þau?
3. Masarðu af ákefð og ánægju, •
þegar hann vill fá næði til
að lesa bréf?
4. Læturðu sjá þig í óvirðuleg-
um og óhreinum morgun-
flíkum?
5. Notarðu bitlausan búrhníf?
6. Neyðirðu hann til að eta búð-
ing, sem hann síður en svo
langar til, aðeins til að særa
ekki matreiðslumanninn?
7. Læturðu hann fá uppáhalds-
réttinn sinn svo oft, að hann
verði Leiður á honum, og seg-
ir þá: „Hvað er að heyra,
þú sagðir mér, að þér þætti
þetta svo gott?“?
8. Seturðu mat á diskinn hjá
honum, eftir að hann hefur
afþakkað það?
9. Færðu hann til að klára það
sem til er af matnum, sökum
þess að hann geymist ekki
til morguns?
10. Hættir þér til að kaupa of
lítið í matinn að ástæðu-
lausu?
11. Tekurðu við heimboðum fyr-
ir hönd ykkar beggja, án
þess að bera það fyrst und-
ir hann?
12. Hættir þér til að koma með
einhvern óþarfa og segja
kæruleysislega: „Ég þurfti
nú ekki nauðsynlega að fá
mér þetta, en ég komst að
svo góðum kaupum“?
13. Ertu yfirleitt að minna hann
á:
Alla þá menn, sem vildu
giftast þér?
Hvað hann hefur breytzt,
síðan þið giftuzt?
Að hann hefur fitnað?
Að hann er ekki lengur
„eins ungur og áður“?
14. Þegar hann leitar ráða hjá
þér, svararðu þá: „Þú ræð-
ur góði minn“?
15. Neyðirðu hann til að hlusta
á og lifa sig inn í:
Smávægilegustu innan-
hússáhyggjur þínar?
Einkaskoðanir þínar á
bridge og brigdespilurum,
sem hann hefur engan á-
huga á?
Hvers konar skrafsögui'
kvenna?
APRÍL, 1955
11