Heimilisritið - 01.04.1955, Blaðsíða 15
35. Geymirðu 1 eigu þinni af-
káralegar brúðargjafir til
þess eins að særa ekki til-
finningar annarra?
36. Tekurðu upp á eigið ein-
dæmi þá ákvörðun að henda
þeim gömlu fötum, sem hann
heldur upp á, en þú vilt ekki
að hann eigi lengur?
37. Þrýstirðu á tannkremstúp-
una framanverða, þegar þú
notar hana?
38. Smitarðu handklæðin í vara-
lit og naglafarða?
39. Stendurðu við þvottaskálina
og spegilinn, þegar honum
liggur á að komast að þeim?
40. Eyðirðu löngum tíma í að
smyrja andlit þitt, áður en
þú ferð í rúmið?
41. Skilurðu eftir sokka í mund-
lauginni?
42. Gerirðu þér far um að vera
sérstaklega þægileg við þjóna
eða hljómsveitarstjóra?
43. Líturðu ósjálfrátt á reikn-
inginn, þegar hann kemur á
borðið á veitingahúsinu?
44. Masarðu í bíóum?
45. Berðu krullupinna?
46. Hefurðu ljós logandi fram
eftir öllu til að ljúka við
leynilögreglusögu ef hann
langar til að fara að sofa?
47. Sendirðu hann niður til að
ganga úr skugga um það, að
hvergi sé laus eldur?
48. Hefurðu vafið öllum sængur-
fötunum utan um sjálfa þig
og upp fyrir haus, þegar þú
vaknar að morgninum?
Legðu nú saman tölurnar við
öllum svörum þínum. Þegar
spurning er í fleiru en einu lagi,
er hverjum hluta hennar svarað
sérstaklega. Versta útkoma, sem
þú getur fengið, er 224; bezta 0.
Satt að segja, getur enginn feng-
ið aðra hvora þessa tölu.
Ef upphæð þín verður 220,
myndum við eindregið ráðleggja
hjónaskilnað! Ef upphæðin er
milli 220 og 180, ætti engin ráð-
legging að vera nauðsynleg;
hjónaskilnaður sem sagt sjálf-
sagður!
Ef upphæðin er milli 180 og
120, ertu á hættusvæði í hjú-
skaparmálunum.
Ef upphæðin er milli 120 og
75, útlitið ekki sem verst, tæki-
færi til góðs árangurs og heilla-
vænlegrar þróunar.
Ef upphæðin er milli 75 og 30,
— gott.
Ef upphæðin er milli 30 og 15,
— ágætt.
Ef hún er milli 15 og 4, er út-
koman hreinasta undantekning.
Sé hún hins vegar milli 4 og 0,
er hún of góð til að vera sönn.
Reyndu þá aftur — og vertu
heiðarlegri í svörum. ... *
APRÍL, 1955
13