Heimilisritið - 01.04.1955, Blaðsíða 67

Heimilisritið - 01.04.1955, Blaðsíða 67
SPURNINGAR OG SVÖR. (Framhald af 2. káfwsíðit). liættu að stunda sjóinn, yrði sjómanna- stéttin harla fámcnn. Gallinn er sá, að þú hefur ekki enn sem komið er sam- lagazt þcim aðstæðum, sem sjómanns- kona þarf að gera, eða vanizt lífsvið- horfum hennar. En vitanlega er það lít- ill vandi. Konur sjómanna — eins og konur svo margra manna, sem oft eru að heiman, —• geta lifað cngu giidis- minna lífi en hinar, sem varla mega um frjálst höfuð strjúka fyrir karlinum sín- um. Það væri hrein fjarstæða að rifta trúlofuninni, ef þú berð hreina og ó- mengaða ást til unnusta þíns. GET ÉG TREYST HONUM? Eg beyrhi nýlega, að kœrastinn minn hefði komizt undir mannahendur á ung- lingsárunum. ÞaS var í sambandi við stúlku. Eg hef sfurt fólk, sem þekkir hann, hvort þetta geti verið satt, en allir hafa sagt, að þeir gœtu ekki trúað neinu slíku á hann. Fyrir mitt leyti gct ég sagt, að ég hef ekki orðið vör við neitt óheilbrigt við hann. Finnst þér ég geta treyst honum? Kynni þín af piltinum hafa sýnt þér fram á, að hann er heiðvirður og góður drengur, og það álit hefurðu fengið staðfest af fólki, sem hefur þekkt hann Iengur og betur en þú. Ég ráðlegg þér að treysta honum og þeim, sem honum treysta, fremur cn að ljá eyra við orð- rómi úr lausu lofti. ÉG ELSKA HANN NÚNA Fyrir tveimur árum umgekkst ég ungan mann í nokkra mánuði. Hann bað mín, en ég tók honum ekki. Siðan hcf ég kynnzt nokkrum mónnum, cn nú er mér Ijóst, að ég elska þann fyrsta. Hann er með annarri stúlku, svo að mér er um og ó að setja mig í samband við hann á ný. Heldurðu að hann geti elskað hana eins og hann clskaði mig áður? Unglingarnir verða svo fljótt ást- fangnir — og ást þeirra fyrnist líka svo fljótt. Það er ekkert líklegra en að pilt- urinn hafi gleymt þér gersamlega, þótt hann á sínum tíma hafi borið heitar tilfinningar til þín — ef þær hafa þá verið það í raun og veru. Sjálf er ég þeirrar skoðunar, að þú gyllir um of gamlar minningar um atburði, sem á sínum tíma voru þér lítils virði. SVÖR TIL ÝMSRA Mér þykir leitt að geta ekki svarað öllum bréfum, sem mér berast. Mörg þeirra fjalla um málefni, sem ég hef margsinnis svarað áður, og þau læt ég mæta afgangi. — Þá eru líka ótal bréf, sem mér berast frá ungu fólki, er lent hefur í ástarsorgum. Ég svara þeim oft ekki, og ég vona að það sé afsakað. Bréfritarinn léttir á hjarta sínu mcð því að segja einhverjum frá sorgum sínum, og svo hefur tíminn kannske grætt sár- in eða allt fallið í ljúfa löð, þegar næsta hefti Heimilisritsins kemur út. En mér þykir vænt um að fá slík bréf og finnst þau bera vott um trúnaðartraust til mín, sem er mér svo mikils virði og ég mun ekki misnota. Ef þér liggur eitthvað á hjarta og fc>ú fc>arft að ráðfæra þig við vin þinn um áhyggjur fc>ínar eða eitthvað slíkt, skaltu skrifa Evu Adams, Heimilisritið, Garðastræti 17, Reykjavík. Enginn nema hún sjálf fær að sjá bréf fc>itt. Eva Adams HEIMILISRITIÐ kemur út mánaðarlega. — Útgáfa og afgreiðsla: Helgafell, Veghúsastíg 7, Reykjavík, sími 6837. — Ritstjóri: Geir Gunnarsson, Garðastræti 17, Smar 5314.2673—Prentsmiðja: Víkingsprent, Hverfisgötu 78, sími 2864. — Verð hvers hefds er 8 krónur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.