Heimilisritið - 01.04.1955, Blaðsíða 54

Heimilisritið - 01.04.1955, Blaðsíða 54
IKE PAZEKI sat í veitingasal íþróttahallarinnar og drakk kaffi. Hann virtist ekki verða glaður við að sjá lögreglumann- inn og félaga hans nálgast borð- ið. — Ike, hóf Jack Lint máls. — Munið þér eftir meistarakeppn- inni? Þér hélduð að Brodstreet myndi vinna, þótt þér væruð einn um þá skoðun. Hvaðan höfðuð þér upplýsingar yðar? Ike Pazeki svaraði engu. Charles hallaði sér að honum: — Þér sögðuð að það væri bara þvaður, að Brodstreet ætl- aði að tapa með vilja. Þér sögð- uð: — Ég hef mínar upplýsing- ar frá áreiðanlegum manni! Við hvað áttuð þér? Pazeki svaraði honum engu ennþá. — Þá skal ég segja yður sann- leikann, hélt Charles áfram. — Einhver fékk yður bunka af seðlum og bað yður að veðja á Brodstreet. Og það var sami maðurinn og kom þeim orðrómi á stað að Brodstreet myndi tapa viljandi. Hann gerði það einfald- lega til að auka veðgróðann, var það ekki? Yður var kunnugt um það, og þess vegna svöruðuð þér okkur eins og þér gerðuð. Ef til vill vilduð þér gera Jack greiða, eða kannske kunnuð þér ekki við baktjaldamakk mannsins, sem stóð á bak við yður. Þér þurfið ekki að svara. En er þetta nafn mannsins, sem fékk yður peningana? Charles skrifaði eitthvað á blað og ýtti því yfir borðið til Pazeki. Pazeki kinkaði kolli. í sömu svifum leit hann upp og yfir herðar Charlesar. Það skein ótti úr augum hans. Nýr gestur var kominn inn í salinn. Lögreglumaðurinn sneri sér við og kom auga á broshrukkað andlit Lyux Lenekans. — Góðan dag, góðan daginn, sagði Charles fjörlega. — Ég þurfti að hitta yður. Fáið yður sæti. Ike var einmitt að segja okkur frá íþróttasvindli, sem snerist upp í það að verða tvö- faldur svindill. Hlustið þér á, það er eins og ævintýri: Það var einu sinni hnefaleikakappi og umboðsmaður hans, og þeir voru báðir á kúpunni f járhagslega. En þegar öll von virtist úti kom á fund þeirra þekktur fésýslumað- ur og bað þá að tapa keppninni. Að minnsta kosti stóð hnefa- leikakappinn í þeirri trú. En um- boðsmaður hans var miklu slyngari. Langar yður að heyra hve slóttugur hann var? — Ég heyri, sagði Lyux Lene- kan og hagræddi sér í stólnum 52 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.