Heimilisritið - 01.04.1955, Page 20
eftirmanna hans, en síðar tald-
ist hann til hinna guðdómlegu
forréttinda allra konunga.
Með tímanum var snerting við
kóngsveiki bundin formlegri og
hátíðlegri athöfn. Hinir saman-
komnu sjúklingar voru skoðaðir
af líflækni konungs, og þeim, sem
ekki voru álitnir hæfir til lækn-
ingar, var vísað frá. Hinir voru
látnir gefa yfirlýsingu um, að
þeir hefðu aldrei fengið snert-
ingu áður — merkilegt atriði í
sambandi við varanleik batans.
Þeir, sem fengu að ganga fyrir
konung, voru blessaðir, mein-
semdir þeirra voru snertar og
gullpeningur var hengdur um
háls hvers og eins.
Gullpeningurinn svaraði til
verndargrips galdralæknanna og
átti sennilega drjúgan þátt 1 að
halda þessari siðvenju við lýði.
Gullpeningaútgjöldin komust
upp í 18,000 pund á ári, og eftir
daga Elísabetar drottningar var
stærð peninganna minnkuð að
mun.
Ekki trúðu allir konungar á
árangur snertingar sinnar. Jakob
I vildi leggja niður þennan sið
sem hverja aðra hjátrú, en var
talinn á að halda honum áfram
af stjórnmálaástæðum.
Vilhjálmur III lét álit sitt í
ljós, um leið og hann snerti
hina sjúku, með þessum orðum:
18
„Megi Guð gefa þér betri heilsu
og meira vit.“ Að lokum neitaði
hann með öllu að halda þessu
áfram og fékk á sig grimmdar-
orð fyrir.
Anna drottning var hin síðasta
1 brezku konungsröðinni, sem lét
þessa þjónustu í té, og að henni
látinni var þessu hætt. Dr. Sam-
uel Johnson var meðal þeirra
síðustu, sem var snertur. Var
hann þá fjögurra ára gamall, og
eftir því sem ævisöguritari hans,
Boswell, segir, þjáðist hann af
eitlaberklum alla ævi.
Það voru ekki einungis ensku
konungarnir, sem lögðu stund á
konungssnertingu. Frakkakon-
ungar fengust líka við slíkar
lækningar. Lúðvík XIV snerti
1600 manns einn páskadag, en
einn hreinskilinn samtíðarmað-
ur fullyrti, að eginn hefði lækn-
azt. Eins og 1 Englandi fékk hver
sjúklingur nokkra greiðslu um
leið. Konungssnerting lagðist
ekki niður í Frakklandi fyrr en
skömmu fyrir stjórnarbylting-
una miklu.
Því svallfengari og siðlausari
sem konungurinn var, því meiri
trú virtist vera á þeim lækn-
ingamætti er fylgdi snertingu
hans. Eftirsóttastur allra snerti-
kónga var Karl II. Jafnvel með-
an hann var í útlegð í Hollandi,
var hann umsetinn af sjúkling-
HEIMILISRITIÐ