Heimilisritið - 01.04.1955, Side 57

Heimilisritið - 01.04.1955, Side 57
hann fór inn í sælgætisbúðina á undan skóbúðinni. Hann átti erfitt með að ákveða sig, og til að losna við feimnina og vork- unnlátt bros afgreiðslustúlkunn- ar, valdi hann af tuttugu kon- fektöskjum í öllum litum, næst- um í blindni — þá allra stærstu og dýrustu. Þegar Jean-Claude var aftur kominn út á gangsfétt- ina, gekk hann úr skugga um það úti fyrir búðarglugganum á skóbúðinni, að hann átti ekki eftir nóga aura til að kaupa skó. Þeir gömlu urðu að duga. Þarna myndu verða svo margir, að þeir yrðu ekki áberandi. KENNSLUTÍMI hans var á afmælisdaginn. Þar eð ekki hafði verið sent afboð, kom hann klukkan sjö. í salnum, þar sem Martine var vön að taka á móti honum, var slagharpan, borðin, kommóðan og stólar þakið blóm- um og öskjum. í þessari gjafa- útstillingu gáði Jean-Claude á- rangurslaust að sinni eigin. Martine kom inn. „Afsakið hugsunarleysi mitt. Ég hefði átt að segja, að dans- leikurinn byrjaði ekki fyrr en níu.“ „Ég var einnig dálítið á báð- um áttum. En ég var hræddur um, að þér ættuð ekki von á mér.“ „Þér eruð allt of elskulegur. Ég er fegin, að þér komuð. Ann- ars vil ég gjarnan þakka yðurv og skamma yður svolítið um leið. Þér hafið verið allt of eyðslusamur.“ Askjan var þá komin, og þó stóð hún hér ekki. Jean-Claude gat ekki leynt vonbrigðum sín-. um, því Martine sagði brosandi: ■ „Nei, yðar gjöf er hér ekki. Ég hef hana uppi í herberginu mínu. Ég vildi hafa hana fyrir- sjálfa mig, alveg ein, en ekki innan um allt hitt.“ Martine roðnaði. Það undir- strikaði, áleit Jean-Claude, þá játningu, sem lesa mátti úr orð-. um ungu stúlkunnar. Þá gerði hann það, sem hann allt til þessa hafði ekki einu sinni þorað að gera í huganum. Hann tók um hendur hennar, horfði á hana brennandi augum og sagði: „Ég skil, Martine, að fyrir þér er ég ekki eins og aðrir.“ Hún leit niður, en svaraði. ekki. „Ég hlakka til að dansa við yð- ur í kvöld, Martine. Ég er ham- ingjusamasti maður í heimi. Þér skuluð sjá. ... Þér skuluð sjá... “■ Hún fékk líka vissulega að sjá. allt annan Jean-Claude frá þess- ari stundu, fullan af sjálfstrausti og ást, sem kom fram í öllum hans orðum og gerðum. APRÍL, 1955 55

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.