Heimilisritið - 01.04.1955, Side 60
dagar þangað til þið farið norð-
ur, og ég hef hugsað mér að
flytja nokkru áður, því ég veit
að móðir þinni fellur það betur.“
Hann sat þögull um stund og
starði inn í eldinn, og það leit
næstum út fyrir, að hann hefði
ekki heyrt hvað hún sagði. En
svo svaraði hann loks:
„Þú gerir auðvitað það sem
þú vilt, Linda, og ef þú hefur
áhuga á, skal ég gjarnan reyna
eftir getu að útvega þér sæmi-
lega launað starf. En ég vil ráð-
leggja þér að bíða með að flytja
í nokkra daga. Hver veit nema
ég hafi þá fundið eitthvað, sem
hentar þér. Það liggur vonandi
ekki nein ósköp á því, er það?“
Hann brosti lítið eitt, því hann
hafði allt í einu fengið snjalla
hugmynd, og hann ákvað að gera
hana að veruleika jafnskjótt og
tök væru á því.
Bruce hafði ákveðið að leggja
af stað til Kinlock Hall hinn 20.
janúar, og þegar sá dagur nálg-
aðist, var allt heimilið á öðrum
endanum og hvergi friður. Linda
óskaði, að öllu þessu væri lokið
og að hún sæti 1 ró og næði 1
hlýlega herberginu, sem hún
hafði tekið á leigu. Hún var dá-
lítið taugaóstyrk, því hún hafði
ekki fengið neitt svar við um-
sóknum sínum, og var farin að
óttast, að ef til vill yrði ekki eins
auðvelt fyrir hana að fá atvinnu
og hún hafði haldið.
Hún var líka farin að velta því
fyrir sér, hvort hún ætti ekki að
segja upp herberginu, fá heldur
leigt á gestaheimili fyrir ungar
stúlkur. Þar myndi hún að
minnsta kosti ekki þurfa að sitja
aleih öll kvöld, og þar yrði held-
ur ekki eins dauflegt að vera, ef
hún yrði að bíða lengi eftir að fá
atvinnu. — Kvöldin yrðu löng
og einkennileg í herberginu, og
allt í einu var eins og framtíðin
blasti við henni 1 dimmum og
drungalegum skugga. Hún gerði
sér ljóst, að framvegis yrði til-
vera hennar fólgin í vinnu — og
engu öðru.
Og um þetta leyti fékk hún
ekki heldur tækifæri til að leita
huggunar hjá Bruce, því að hann
sást naumast heima.
Frú Kinlock gerði enga til-
raun til að leyna gleði sinni yfir
því að verða laus við Lindu, því
að afbrýðisemi hennar hafði sí-
fellt færzt í aukana undanfarnar
vikur. Auðvitað hélt hún ekki í
fullri alvöru, að Bruce yrði ást-
fanginn af stúlkunni, því að hún
var þeirar skoðunar, að Bruce
væri svo skynsamur að fara ekki
að bindast bæði fátækri og for-
eldralausri stúlku. Úr því að
hann var orðinn eigandi að Kin-
lock Hall, var það hreint og
.58
HEIMILISRITIÐ