Heimilisritið - 01.04.1955, Page 63

Heimilisritið - 01.04.1955, Page 63
ar einkaritara, og vill borga þrettán pund í mánaðarlaun. Hann er mjög önnum kafinn maður og ritari hans þarf að vera dugleg, greind og starfsfús stúlka. Það er auk þess nauðsyn- legt, að hún búi á heimili hans. Hann býður eins mánaðar orlof á ári, og annars er vinnutíminn eins og gerist og gengur — ef svo er ekki, greiðist aukavinna sér- staklega. Hugsaðu þig vel um og segðu mér álit þitt.“ „Þetta lætur næstum ótrúlega 1 eyrum,“ stamaði Linda með ljóma í augum. „Hvar er þetta? Er það héma í London?“ Er það hjá því opinbera?“ „Nei, það er uppi í sveit.“ „Nei, maðurinn vinnur sjálf- stætt.“ „En — en hefurðu talað við hann um, að ég er ekki óaðfinn- anleg í hraðritun?“ „Hann veit það.“ Bruce kink- aði kolli með alvörusvip. „Jæja, hverju svararðu?“ „Ég samþykki auðvitað,“ sagði Linda hraðmælt. „Þetta er ágæt staða, og ég vona að ég standi mig svo vel að ég verðskuldi svona mikil laun.“ „En ég tel skyldu mína að gefa þér dálitla aðvörun,“ sagði hann. „Það getur verið, að hús- bóndi þinn verði nokkuð erfið- ur viðskiptis stundum." „Það gerir ekkert til,“ sagði hún brosandi. „Ég skal fara eft- ir fyrirmælum hans, jafnvel þó að hann sé bæði mislyndur og kenjóttur. Og mig langar ákaf- lega til að fá þetta starf, Bruce, og ég er þér þakklát fyrir að hafa hjálpað mér. Hvenær á ég að byrja?“ ,,Á morgun.“ „Og hvert á ég að fara?“ „Til Skotlands.“ „Til Skotlands?“ endurtók hún og horfði skilningssljó á hann. „Já, þú munt starfa sem einka- ritari á stað, er nefnist Kinlock Hall. Það er orðinn nýr eigandi að herragarðinum, og hann get- ur ekki án einkaritara verið.“ Linda var orðin eldrauð í kinnum, og hún stóð upp, en hann gaf henni bendingu um að setjast aftur. „Þú skilur það, Linda,“ hélt hann áfram, „að ég þekki hvorki fólkið né aðstæðurnar þar, en þú þekkir hvort tveggja, og það er mikilvægasta ástæðan til þess að ég þarf að hafa þig með mér.“ Hjartað sló ofsalega í brjósti hennar, og hana svimaði næst- um af gleði, en svo vaknaði allt í einu illur grunur með henni. „Segðu mér hreinskilnislega, Bruce — gerirðu þetta aðeins af því að þú vorkennir mér?“ APRÍL, 1955 61

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.