Fréttatíminn - 28.06.2013, Síða 25
okkar en undir því merki eru
til dæmis hlýrabolir og stutt-
ermabolir svo eitthvað sé nefnt.
Mínímí er barnamerki sem við
Magndís Anna Waage hönnum
saman," segir Andrea. Um það bil
helmingur framleiðslunnar fer
fram á Íslandi. Við Norðurbakk-
ann í Hafnarfirði er saumastofa
og frá upphafi hefur Andrea átt
í nánu samstarfi við litla sauma-
stofu í Hong Kong. „Sú saumastofa
opnaði á svipuðum tíma og við
svo fyrirtækin hafa vaxið saman.
Þetta er lítil saumastofa sem
saumar fyrir okkur í litlu upplagi
og gerir jafnvel bara eitt eintak af
kjól ef við óskum þess. Sá sem á
saumastofuna saumar til dæmis
alla klútana okkar ásamt öllu sem
er undir merkjum ByBlack og
mínímí. Flest annað framleiðum
við hérna heima. Í Hong Kong
eru líka gerðir fyrr okkur miðar,
þjófavarnir, gínur og fleira,“ segir
Andrea brosandi.
Andrea og samstarfsfólk hennar
leitast við að hafa vörurnar á sann-
gjörnu verði svo að í búðinni sé
eitthvað fyrir alla. „Séu flíkur úr
dýru efni og fá eintök framleidd þá
er það dýrara. Ég vil hafa búðina
þannig að allir geti verslað hjá
okkur og við leggjum mikið upp
úr því að veita skemmtilega og
persónulega þjónustu.“
Í hönnunarferlinu kasta Andrea
og samstarfsfólk hennar hug-
myndum á milli sín á saumastof-
unni. Andrea sýndi blaðamanni
hugmyndavegg með ýmsum
myndum sem notaðar eru við
hönnun á haustlínu þessa árs.
„Við byrjum á ákveðnum stað og
setjum upp myndir, til dæmis núna
af ýmis konar þjóðlegum fötum frá
Balkan löndunum. Svo skoðum við
myndir af frumbyggjum í Malasíu
og fáum fleiri hugmyndir þaðan
svo þetta er eins og ferðalag og
alltaf mjög skemmtilegt ferli,“
segir Andrea sem fær oft góðar
hugmyndir að hönnun þegar hún
er ekkert sérstaklega að reyna það
en viðurkennir að þægilegra væri
ef þær kæmu eftir pöntun á vinnu-
tíma.
Á stuttum tíma hefur fyrirtækið
vaxið og dafnað og eru klútarnir
litríku seldir í versluninni Kistu í
Hofi á Akureyri og um borð í vél-
um Icelandair. Andrea viðurkennir
þó að hafa fengið ýmis tilboð en
að þau séu ekkert að flýta sér að
stækka reksturinn. „Við ákváðum í
upphafi að byggja fyrirtækið upp í
rólegheitum og eiga fyrir öllu sem
við gerum. Hvað verður kemur í
ljós en það gengur ótrúlega vel.
Fyrirtækið er lítið og því auðvelt
að halda utan um reksturinn.“
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Klútarnir og kjólarnir
litríku hafa notið
mikilla vinsælda.
Mynd/Aldís Pálsdóttir.
Andrea hannar og
framleiðir boli undir
merkinu By Black.
Mynd/Aldís Pálsdóttir.
nafn og m
erki fyrirtæ
kis
A
ndreA
- Svart hvítt eða grátt vector
M
ÍN
ÍM
Í - Svart hvítt eða litur
By BLA
C
K - b
asic línan
nafn og m
erki fyrirtæ
kis
A
ndreA
- Svart hvítt eða grátt vector
M
ÍN
ÍM
Í - Svart hvítt eða litur
By BLA
C
K - b
asic línan
Fyrirtækið hannar
undir þremur
merkjum. Undir
merkinu AndreA
er kvenfatnaður.
Merkið Mínímí
er með föt fyrir
börn, hönnuð af
Andreu og Magn-
dísi A Waage.
„Basic línan“ er
framleidd undir
merkinu By Black.
nafn og m
erki fyrirtæ
kis
A
ndreA
- Svart hvítt eða grátt vector
M
ÍN
ÍM
Í - Svart hvítt eða litur
By BLA
C
K - b
asic línan
við erum 25 Helgin 28.-30. júní 2013