Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.06.2013, Side 28

Fréttatíminn - 28.06.2013, Side 28
Fyrir mér er að fara í sálfræði- tíma jafn eðlilegt og að fara út í búð og kaupa kók. hollur borgari Prófaðu grænmetisborgarann frá hälsans Kök og finndu hvað bragðmunurinn er lítill á honum og venjulegum kjötborgara. holl og bragðgóð tilbreyting. iNNihalD Prótein úr soja (60%) og hveiti (17%). laukur, jurtaolía, eggjahvítuduft, salt (1,8%), ger, maltódextrín, trefjar úr ertum, sterkja, bragðefni, maltextrakt (bygg). S ölvi Tryggvason f jöl- miðlamaður er nýkom- inn úr tveggja mánaða ferð um Asíu. „Ég lagði upp í þetta ferðalag í aðra röndina sem andlega vegferð til að kynnast sjálfum mér enn betur. Ég fékk allt það sem ég vildi og meira til út úr ferðinni en á annan hátt en ég hafði búist við. Ég hélt að lær- dómurinn yrði alvarlegri en það besta var að mér fannst ég tengjast aftur barninu í mér. Mér fannst ég verða aftur tíu ára þegar ég var í fót- bolta á ströndinni, á brimbretti og í göngutúrum. Þegar við fullorðn- umst hættir okkur til að gleyma að leika okkur,“ segir Sölvi. Síðasta áratug hefur hann reynt að ferðast mikið um heiminn. Alls hefur hann komið til um þrjátíu landa en margar ferðirnar hafa ver- ið heldur stuttar og fannst honum hann skulda sjálfum sér að fara í alvöru ferð. Hann fór einn út og reiknaði allt eins með að vera einn allan tímann en vinur hann var þó með honum seinni mánuðinn. Sölvi fór til Indónesíu, Malasíu, Tælands og loks til Dubai. Hann segir afar lærdómsríkt að ferðast einn. „Það er stórt skref út úr þægindaramm- anum en er samt svo fljótt að venj- ast.“ Hann fór sína fyrstu utanlands- ferð einn árið 2007. Þá var hann í sambandi og hafði pantað ferð fyrir tvo. Sambandinu lauk en Sölvi vildi ekki afbóka ferðina og hélt einn út í heim. „Það var skrýtið, til dæm- is að fara í fyrsta skipti einn út að borða, en eftir að hafa gert þetta einu sinni þá minnkar meðvirknin - sérstaklega í útlöndum þar sem enginn þekkir mig. Ef fólki finnst undarlegt að ég gangi einn inn í að- stæður þar sem fólk er oft í pörum þá er það þeirra vandamál,“ segir hann, öruggur í eigin skinni. Lifir minimalísku lífi Í Asíuferðinni fór hann út fyrir þæg- indarammann á fleiri vegu, meðal annars þegar hann fór í fyrsta skipti í teygjustökk. „Ég er mjög loft- hræddur þannig að þetta var mjög ólíkt mér. En þetta var bara ákvörð- un.“ Hann segir að þetta hafi verið upplifun en reiknar ekki með að fara aftur í teygjustökk. „Ég held að ég þyrfti þá frekar að fara næst í fall- hlífastökk.“ Það var líka á listanum að læra á brimbretti sem hann gerði í ferðinni, hann snorklaði í sjónum, skoðaði framandi dýr og fór í dans- tíma bæði zumba og salsa. „Ég fór til Indónesíu, Malasíu, Tælands og loks til Dubai. Með því að fara frá Balí í Indónesíu til Dubaí ertu í raun að sjá sitthvorn endann á heimin- um. Í Balí eru allir ofboðslega glað- legir jafnvel þó fólk væri hreinlega svangt. Í Dubaí sá maður síðan allt sem hægt er að gera við peninga. Ég hef ferðast víða en Indónesía var alveg sérstök. Þar er alveg yfirmáta létt orka og stutt í gleðina.“ Eftir öll ferðalögin segist hann vera búinn að kynnast sjálfum sér ansi vel. Ég veit að það er kannski dónalegt en ég spyr hvernig hann hafi efni á öllum þessum ferðalög- um. „Ég lifi minimalísku lífi og eyði mjög litlu almennt. Ég lifi ekki dýrt þegar kemur að húsnæði, bíl eða húsgögnum. Ég rek lítinn bíl og held að ég hafi eytt langstærstum hluta þeirra peninga sem ég hef átt aukreitis síðustu tíu ár í ferðalög.“ Hann segist ekki sjá eftir einni einustu krónu. „Peningum sem þú eyðir í það sem verður eftir í sjálfum þér eru peningar sem er vel varið.“ Sölvi er hins vegar þekktur fyrir að Ögrar sjálfum sér reglulega Sölvi Tryggvason reynir að fara út fyrir þægindarammann sem oftast. Hann lagði einn upp í ferðalag til Asíu sem hann leit á sem andlega vegferð. Sölvi hefur sterkar skoðanir á samfélaginu og telur 12 spora-kerfi vera hina nýju íslensku þjóðkirkju. Hann er í dag einhleypur og mælir með því að allir prófi að vera fullorðnir og einhleypir. 28 viðtal Helgin 28.-30. júní 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.