Fréttatíminn - 28.06.2013, Qupperneq 30
hann eigi við drykkjuvandamál að
stríða því ég tengi 12 spora-sam-
tök helst við alkóhólisma en auðvi-
tað eru þau fjölmörg. Hann verður
hissa en bregst annars vel við. „Ég
hef aldrei átt við drykkjuvandamál
að stríða. Ég hef aldrei einu sinni
prófað fíkniefni. Nema þegar ég
tók nauðgunarlyfið,“ segir hann og
vísar til þess þegar hann tók svo-
nefnt nauðgunarlyf þegar hann var
að vinna að þætti um lyfjanauðg-
anir fyrir Málið á Skjá einum. „Ég
drekk mjög hóflega. Ég tók tímabil
í kring um tvítugt þar sem ég datt
oft í það en ég vil ekki lengur setja
sjálfan mig í þannig ástand að ég
upplifi raunveruleikann ekki eins
og hann er. Ef ég gerði eitthvað á
fylleríi sem mér fannst skemmtilegt
þá hef ég æft mig í að gera þessa
sömu hluti edrú og njóta þeirra enn
meira.“
Allt of margir á geðlyfjum
Honum liggur á hjarta að efla sjálfs-
rækt og þykir þess vegna til að
mynda miður hversu mikið feimn-
ismál það er að fara til sálfræðings.
„Það er árið 2013 og það er tabú
hjá sumum að fara í samtalsmeð-
ferð. Fyrir okkur fjölmiðlafólk til að
mynda ætti að vera skylda að fara í
handleiðslu einu sinni í viku. Það
ætti bara að vera hluti af starfskjör-
um. Pabbi minn er doktor í barna-
sálfræði og ég lærði sálfræði. Fyrir
mér er að fara í sálfræðitíma jafn
eðlilegt og að fara út í búð og kaupa
kók.“ Beintengt þessu er umræðan
um notkun geðlyfja á Íslandi. „Fyr-
ir mér er þetta einfalt. Læknar eru
búnir að koma sér vel fyrir í kerfinu
þannig að þeir eru orðnir hluti af
tryggingakerfinu, allir nema tann-
læknar. Ef þú átt við vandamál að
stríða sem snúa að tilvistarkrísu eða
erfiðleikum í lífinu þá stendur valið
á milli þess að fara til sálfræðings
eða geðlæknis. Eftir skamman tíma
ertu kominn með sjúkrakort sem
veitir þér afslátt hjá geðlækni þann-
ig að innan skamms er tíminn hjá
honum orðinn meira en helmingi
ódýrari en tíminn hjá sálfræðingi.
Þetta leiðir af sér að fólk fer frekar
til geðlækna. Þeir eru síðan margir,
ekki allir en margir, þétt setnir og
meðhöndla fólk með lyfjum. Allar
rannsóknir sem gerðar hafa verið á
meðhöndlun geðrænna kvilla sýna
að lyfjameðferð ein og sér skilar
aldrei eins góðum árangri og ef
hún er samþætt samtalsmeðferð. “
Fyrir Hrun stóð til að byrja að nið-
urgreiða sálfræðiþjónustu á Íslandi
en aldrei varð af því. „Hér er allt of
mikið af fólki á geðlyfjum sem hef-
ur aldrei farið í samtalsmeðferð.“
Sölvi leggur áherslu á hvað hon-
um finnst það heilbrigt skref að fara
í fyrsta skipti í samtalsmeðferð.
„Það eru mikil veikindi að vera
með stóra og þunga hluti hvílandi
á sér og taka aldrei á þeim. Það er
miklu heilbrigðara að taka skrefið
og byrja að vinna í sínum mánum.
Þannig ert þú að segja að þú ætlir að
takast á við það sem er í gangi í þínu
lífi. Ég er ekki feiminn við að segja
að ég hafi farið til sálfræðings. Ég
hef ekki gengið í gegn um erfiðari
hluti en aðrir. Ég hef bara gengið í
gegn um mína hluti og þurft að end-
urskoða mig. Fólk er svo misjafnt.
Sumir fara í starf eða hjónaband og
líf þeirra er í föstum skorðum þar til
það kemur eitthvað áfall. Mér líður
eins og að á síðustu fimmtán árum
hafi ég lifað fleiri en eitt æviskeið,
slíkar breytingar hafa orðið á mín-
um högum. Þegar ég var unglingur
var ég ofboðslega feiminn en í dag
hef ég stýrt sjónvarpsþáttum í mörg
ár. Þetta er því ég hef sífellt verið
að stækka þægindarammann minn.
Í dag er gríðarlega margt sem ég
treysti mér til að gera sem ég hafði
aldrei kjark til að gera.“
Hefur látið af dómhörku
Svotil síðustu tíu ár hefur Sölvi ver-
ið í samböndum en hann hefur verið
einhleypur síðan á síðasta ári. „Mér
finnst nauðsynlegt að prófa að vera
fullorðinn og einhleypur. Ef maður
nær góðu jafnvægi þá kemst maður
á þann stað að maður getur boðið
annarri mannesku inn í líf sitt, en
hún verður aldrei þitt líf. Það er það
sem ég myndi vilja þegar og ef ég
fer næst í samband. Þá vil ég vera
í góðu jafnvægi með mitt líf, önn-
ur manneskja er með mér og ég er
með í hennar lífi. Ég held að það sé
heilbrigt.“
Sölvi hefur nóg fyrir stafni og
hann er þegar byrjaður að taka við-
töl fyrir næstu seríu af Málinu sem
sýnd verður í september. Þá er hann
búinn að skrifa undir samning um
gerð þriðju seríunnar sem verður
sýnd í janúar og tekur við ábend-
ingum í gegn um netfangið solvi@
skjarinn.is. Í millitíðinni leggur
hann síðan lokahönd á bók um Jón
Pál Sigmarsson kraftlyftingamann.
Ég kannaðist við Sölva áður en
ég tók þetta viðtal við hann en við
höfðum aldrei sest niður og rætt
málin eins og nú. Mér finnst ég allt
í einu þekkja hann miklu betur og
ég tek heils hugar undir þegar hann
kemur inn á mikilvægan kost við
starf fjölmiðlafólks. „Ég hef í gegn
um tíðina neyðst til að láta af dóm-
hörku. Ég hef hitt fólk sem ég hef
verið búinn að mynda mér skoðun
á í gegn um fjölmiðla, yndislegt
fólk sem ég hélt að væru einhverj-
ir vandræðagemlingar. Það hefur
kennt mér að maður getur ekki
dæmt fólk sem þú þekkir ekki og
þú getur ekki dæmt manneskju út
frá fyrirsögnum.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Indónesía heillaði Sölva. Honum finnst orkan þar með eindæmum létt og stutt í gleðina.
Sölvi var einn úti í mánuð en síðan kom vinur hans, Kristinn Jón Ólafsson, út og sjást
þeir hér saman í Kuala Lumpur.
30 viðtal Helgin 28.-30. júní 2013