Fréttatíminn - 28.06.2013, Side 49
matur 49Helgin 28.-29. júní 2013
Svo létt á brauðið
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
57
65
5
Fátt er sumarlega en berjaeftir-
réttir á góðviðrisdögum. Hér er
einn girnilegur og þó nokkuð
hollur – að minnsta kosti af
eftirrétti að vera.
Innihald
2½ dl ab-mjólk
50 g haframjöl
50 g heilhveiti
1 msk hrásykur
1 stk egg
1 stk rautt epli, afhýtt, kjarn-
hreinsað og skorið í smáa bita
örlítil repjuolía til steikingar
Meðlæti
j arðarber eða önnur ber eða
ávextir
grískt jógúrt
hlynsíróp eða hunang
Aðferð:
1. Hrærið fyrstu fimm hráefn-
unum saman. Bætið þá
eplabitunum saman við.
2. Hitið teflonpönnu og hafið
stillt á meðalhita. Látið
örlitla olíu á pönnuna ef
þurfa þykir.
3. Setjið góða matskeið
af deigi á pönnuna og
steikið varlega í u.þ.b.
fimm mínútur hvora
hlið. Hægt er að baka
nokkrar pönnukökur
í einu.
4. Berið fram með berjum,
grískri jógúrt og
hlynsírópi eða hunangi.
Uppskriftin er fengin af
vefnum gottimatinn.is og
höfundur uppskriftar er
Erna Sverrisdóttir.
Uppskrift sUmarlegUr eftirréttUr
Eplapönnukökur með jarðarberjum og grískri jógúrt
Humarsalat
sumarsins
Þ essi réttur er stút-fullur af brakandi ferskum salatlaufum
og ávöxtum og dásamlegri
hvítlauks- og sítrónudress-
ingu sem kyndir undir sanna
sumarstemningu.
Aðalréttur fyrir fjóra til sex
1 kíló af humri, án skeljar
klípa af smjöri
3-4 hvítlauksrif, smátt söxuð
2 msk. timjan og/eða steinselja,
saxað
1 avókadó
1 mangó
melóna (helst kantalópa, appelsínu-
gult kjöt)
grænt salat, til dæmis klettasalat
eða spínat
graslaukur
handfylli af bláberjum
salt og grófmalaður pipar
Hitið hvítlaukinn í smjörinu
á pönnu og bætið timjani
og/eða steinselju út í og
síðan humrinum. Steikið
humarinn í nokkrar mínútur
og takið af hitanum, saltið
og piprið. Skerið avókadó,
mangó og melónu í fallega
bita. Setjið salatið í stóra
skál og raðið ávöxtunum
fallega ofan á. Bætið humr-
inum ofan á (en síið soðið
fyrst af), klippið graslauk
yfir og sáldrið bláberjum
ofan á í lokin. Dreypið ríku-
lega af dressingunni yfir allt
þegar salatið er borið fram.
Gott að hafa hvítlauksbrauð
með.
Dressing
3 msk. ólífuolía
3 msk. sítrónusafi
1 tsk. dijon sinnep
3 hvítlauksrif, marin
1 -2 msk. saxað timjan og/eða
steinselja
salt og grófmalaður pipar
Hráefnið sett í skál og öllu hrært vel
saman með gaffli.