Fréttatíminn - 28.06.2013, Síða 58
58 skák og bridge Helgin 28.-30. júní 2013
Skákakademían Jóhann Sigraði á SecuritaS-mótinu í árneShreppi
Frábær skákhátíð á Ströndum
S kákhátíð í Árneshreppi var nú haldin í sjötta sinn og var efnt til fjölteflis á Hólmavík, tvískákarmóts í Djúpa-vík, afmælismóts Jóhanns í Trékyllisvík, og hraðskák-
móts í Norðurfirði. Allir heppnuðust þessir viðburðir framúr-
skarandi vel, og gleðin lá í loftinu á sólbökuðum Ströndum.
Á afmælismóti Jóhanns voru tefldar 8 umferðir. Össur
Skarphéðinsson alþingismaður, sem þekkir vel til á Strönd-
um, flutti setningarávarpið og bar verðskuldað lof á stór-
meistarann. Össur rifjaði upp nokkur afrek Jóhanns, en hann
hefur náð lengst allra Íslendinga í keppninni um heimsmeist-
aratitilinn og hefur um árabil verið stigahæstur Íslendinga.
Það var svo Oddný Þórðardóttir, oddviti Árneshrepps, sem
lék fyrsta leikinn í skák Ástu Þorbjargar Ingólfsdóttur frá
Árnesi gegn sjálfu afmælisbarninu. Þrátt fyrir að vera ann-
álað prúðmenni er Jóhann ekki þekktur fyrir að gefa grið við
skákborðið, og hann vann skák eftir skák á mótinu. Stór-
meistararnir Jón L. Árnason og Hannes Hlífar Stefánsson
voru meðal fórnarlamba Jóhanns, og síðustu umferð skellti
hann fornvini sínum Árna Á. Árnasyni, og tryggði sér þannig
8 vinninga af 8 mögulegum!
,,Bikarinn“ sem kom í hlut sigurvegarans var engin pjátur-
dós: Listilega útskorinn ísbjörn eftir Guðjón Kristinsson frá
Dröngum. Ísbjörninn er mikil gersemi, og er ,,eignarbikar“.
Sérlegur gestur hátíðarinnar, frú Kristjana Guðmundsdóttir
Motzfeldt, var afar hrifin af handbragði Guðjóns, en hún
þekkir allra Íslendinga best til á Grænlandi. Hún var um
árabil gift Jonathan Motzfeldt (1938-2010) sem var forsætis-
ráðherra Grænlands í 17 ár.
Íslandsmeistarinn náði sigri í Norðurfirði
Hannes Hlífar kom næstur með 7 vinninga, Stefán Bergs-
son framkvæmdastjóri Skákakademíunnar hreppti bronsið
og næstir komu þeir Jón L. og Róbert Lagerman. Bestum
árangri ungmenna náði hinn bráðefnilegi Jón Kristinn Þor-
geirsson frá Akureyri, sem var sjónarmun á undan Vigni
Vatnari Stefánssyni.
Um kvöldið var slegið upp dýrindis grillveislu í Trékyllis-
vík, þar sem 60 gestir og heimamenn gerðu sér glaðan dag.
Í kjölfarið fór fram hinn árlegi ,,landsleikur“ heimamanna úr
Ungmennafélaginu Leifi heppna og Strandaglópa. Var þar
hart barist en drengilega. Heimamenn voru yfir, þegar flauta
þurfti leikinn af þar sem einn af Strandaglópum sleit liðbönd
– örugglega fyrsta slíka slysið sem sögur fara af á skákhátíð!
Á sunnudag lá svo leiðin í Kaffi Norðurfjörð, þar sem sleg-
ið var upp 6 umferða hraðskákmóti, til heiðurs kempunni
Böðvari Böðvarssyni, sem varð 77 ára þann dag. Böðvar
hefur um árabil látið að sér kveða við skákborðið, og unnið
margan frækinn sigur. Aftur voru það hinsvegar stórmeistar-
arnir sem voru í aðalhlutverki: Jóhann Hjartarson og Hannes
fengu báðir 5 vinninga af 6, og þótt Jóhann hefði unnið í
innbyrðis skák þeirra var Hannes hærri á stigum, og hlaut
að launum listaverk úr rekaviði eftir Valgeir Benediktsson í
Árnesi.
m ennta- og menningarmálaráð-herra Illugi Gunnarsson efndi í síðustu viku til móttöku í Ráð-
herrabústaðnum til að heiðra Norðurlanda-
meistara í bridge í opnum flokki. Flutti ráð-
herra stutt ávarp, þakkaði mönnum fyrir góð
afrek og sagði að það væri með ólíkindum
hvað Íslendingar stæðu framarlega í mörg-
um íþróttagreinum. Ráðherra var boðið að
sækja námskeið í Bridgeskólanum næsta
vetur. Bridge er eina hópíþróttin sem Íslend-
ingar hafa orðið heimsmeistarar í.
Aðsókn góð í sumarbridge
Aðsókn hefur verið góð í sumarbridge und-
anfarið. Miðvikudagskvöldið 19. júní mættu
40 pör til leiks. Þrátt fyrir mikinn fjölda para
gerðu Gunnlaugur Sævarsson og Kristján
Már Gunnarsson sér lítið fyrir og unnu
næsta öruggan sigur. Lokastaða efstu para
varð þannig:
1. Kristján Már Gunnarsson - Gunnlaugur Sævarsson 67,0%
2. Stefán Stefánsson - Bergur Reynisson 62,4%
3. Oddur Hannesson - Árni Hannesson 58,3%
4. Halldór Svanbergsson - Gísli Steingrímsson 57,8%
5. Þorgerður Jónsdóttir - Aðalsteinn Jörgensen 56,8%
Mánudagskvöldið 24. júní var spilaður al-
heimstvímenningur og þá mættu 30 pör til
leiks. Þar unnu næsta öruggan sigur Ólaf-
ur Þór Jóhannesson og Pétur Sigurðsson.
Lokastaða efstu para varð þannig:
1. Ólafur Þór Jóhannsson - Pétur Sigurðsson 66,8%
2. Rúnar Einarsson - Stefán Stefánsson 60,9%
3. Páll Valdimarsson - Baldvin Valdimarsson 59,3%
4. Davíð Lúðvíksson - Emma Axelsdóttir 56,1%
5. Birna Stefnisdóttir - Aðalsteinn Steinþórsson 54,7%
Skorið á alheimsvísu getur verið annað. Þar
eru Rúnar Einarsson og Stefán Stefánsson
í fjórða sæti með 62,70% skor þegar þessar
línur eru skrifaðar og Ólafur Þór og Pétur í
sjöunda sæti með 61,15% skor.
Öruggir sigrar í bikar
Nokkrum leikjum er lokið í bikarkeppni
Bridgesambands Íslands. Lögfræðistofa
Íslands vann 98-67 impa sigur gegn Rima,
Stilling var 96-36 impa sigur gegn Svölu
Stelpunum, Lífís/Vís vann 98-38 impa sigur
gegn Vinum Þverárhlíðar og SFG vann 124-
80 impa sigur gegn Vesturhlíð.
Óhræddur við sögn
Spil dagsins er frá sumarbridge 19. júní.
Gunnlaugur Sævarsson og Kristján Már
Gunnarsson fengu hreinan topp fyrir þetta
spil, en þeir sátu í NS, austur gjafari og NS
á hættu. Gunnlaugur
sat í norður og heyrði
austur opna á einu
grandi 15-17 punktar.
Kristján kom inn á 2
spöðum á suðurhönd-
ina, vestur doblaði
t il úttektar, Gunn-
laugur pass, opnari 3 hjörtu, suður pass
og vestur 3 grönd. Gunnlaugur þurfti að
velja sögn og doblaði óhræddur með D5,
ÁG874,D109,1093.
Öll höndin var svona:
♠ D5
♥ ÁG874
♦ D109
♣ 1093
♠ Á987432
♥ D3
♦ 63
♣ G5
♠ G6
♥ 96
♦ KG754
♣ Á862
♠ K10
♥ K1052
♦ Á82
♣ KD74
N
S
V A
Útspil Kristjáns var spaðasjöa og sagnhafi
drap drottningu norðurs á kóng og tók lauf-
slagina. Kristján ákvað að henda einum tígli
sem kostaði líklega slag en varð þess ekki
valdandi að toppurinn hvarf. Sagnhafi tók
á ás í tígli og þegar suður sýndi eyðu næst,
sætti hann sig við 7 slagi. Tíu sagnhafar af
20 reyndu við þrjú grönd í AV. Aðeins tveim-
ur tókst að standa þau þegar vörnin spilaði
ekki út spaða. Engum datt þó í hug að dobla
þann samning sem var nauðsynlegt til að
tryggja toppinn.
Bridge eina íþróttin Sem íSlendingar hafa orðið heimSmeiStarar í
Norðurlandameistarar heiðraðir
Frá móttöku hins frækna landsliðs sem varð
Norðurlandameistari í dögunum. Frá vinstri eru
Jafet Ólafsson, forseti BSÍ, Þorlákur Jónsson,
Guðmundur Snorrason, Jón Baldursson, Guð-
mundur Páll Arnarson, fyrirliði liðsins, Illugi
Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráð-
herra, Bjarni Einarsson, Ragnar Hermannsson og
Aðalsteinn Jörgensen.
Stórmeistarinn, oddvitinn og heimasætan. Oddný Þórðardóttir
leikur fyrsta leikinn fyrir Ástu frá Árnesi í skák gegn sjálfum Jóhanni
Hjartarsyni.
Stórmeistarar á Ströndum. Jóhann, Jón L. og Hannes undir
Árnestindi.
Jóhann Hjartarson kom, sá og sigraði á öflugu og bráðskemmtilegu Securitas-móti, sem haldið var í Trékyllisvík á laugardaginn. Sigur Jóhanns var sérlega
viðeigandi, því mótið var haldið honum til heiðurs. Meðal keppenda voru stórmeistarar, bændur og börn úr sveitinni, og áhugamenn úr öllum áttum