Fréttatíminn - 31.05.2013, Side 6
Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun . i s
Með Borgun tekur þú
við öllum kortum
– hvar og hvenær sem er
J
ó
n
s
s
o
n
&
L
e
’m
a
c
k
s
•
jl
.i
s
•
s
Ía
Loksins virka
debetkort á netinu
Það eru álíka mörg debet- og kreditkort í umferð á Íslandi.
Tekur þín vefverslun við öllum kortum?
Fáðu frekari upplýsingar á www.borgun.is eða í síma 560 1600
Þ að er mál til komið að gefa verkum Kristínar Guð-mundsdóttur sanngjarna
umfjöllun því þau bættu án efa lífs-
gæði margra. Hún vann með eigin-
manni sínum og arkitekt, Skarp-
héðni Jóhannssyni, en einnig með
öðrum arkitektum og hannaði inn-
réttingar húsa. Það merkilega er
að nafn hennar kemur hvergi fram
á teikningum, heldur eru arkitekt-
arnir sem teiknuðu húsin sjálf alltaf
skrifaðir fyrir öllum teikningum og
þar með hennar framlagi,“ segir dr.
Halldóra Arnardóttir listfræð-
ingur sem hlaut í vikunni
styrk frá Hönnunarsjóði
Auroru til vinna að rann-
sókn og skrifa bók um
framlag Kristínar Guð-
mundsdóttur, fyrsta
íslenska híbýlafræð-
ingsins, til íslenskrar
innanhússhönnunar.
Ritið mun jafnframt sameina þjóð-
félagslegar aðstæður þess tíma sem
Kristín vann sem híbýlafræðingur,
menntun íslensku konunnar auk
þess að fjalla um mikilvægi þess að
skapa fyrirmynd í þjóðfélaginu.
Að mati Halldóru er saga Krist-
ínar að mörgu leyti merkileg. „Bæði
hún sjálf sem fagmenneskja og verk
hennar en einnig hvernig þjóðfélagið
var á þessum tíma. Áhrifa Kristínar
gætti víða. Hún sinnti kennslu og
flutti fjölmörg erindi í Ríkisútvarp-
inu. Síðast en ekki síst er hún góð
fyrirmynd og við þurfum auðvitað
öll á þeim að halda,“ segir Halldóra.
Áhrifamikill híbýlafræðingur
Kristín Guðmundsdóttir útskrif-
aðist sem híbýlafræðingur frá
Northwestern University í
Chicago árið 1946. Síðan
stundaði hún nám í eitt
ár við New York School
of Interior Design og
kom síðan heim. Híbýlafræðingur
er það sama og innanhússarkitekt
í dag, þó námið hafi teygt sig í allar
hliðar heimilisins hvort sem það var
skipulag, innréttingar, litaval eða að
útbúa blóm í vasa. Að sögn Halldóru
hefur Kristín, þrátt fyrir menntun
sína oftar verið þekkt fyrir að vera
kona mannsins síns, móðir barnanna
sinna og systir bróður síns en hann
var einnig arkitekt. Fyrst að loknu
námi starfaði Kristín hjá skipulags-
deild Reykjavíkur en eftir að hún
giftist Skarphéðni vann hún með
honum á stofunni, þá sérstaklega á
kvöldin þegar börnin voru sofnuð,
var bílstjóri, bakaði fyrir þá sem
unnu á teiknistofunni, ásamt fleiru.
„Kristín hefur mörgu breytt og
bætt lífsgæði margra. Hún teiknaði
innréttingar í hús við Flókagötu og
víðar og einnig í þeirra eigið hús við
Laugarásveg. Þar var stórt tilrauna-
eldhús og sex baðherbergi sem voru
mjög óvenjuleg á sínum tíma,“ segir
Halldóra.
Kristín hannaði eldhúsinnrétt-
ingar, alls kyns skápa og hirslur og
leitaðist hún við það í störfum sínum
að auðvelda húsmóðurstörfin, hag-
ræða og fegra heimilið. Kristínu var
skipulag heimilisins einstaklega
hugleikið og leitaði eftir jafnvægi,
hvort sem það var í litum eða hvern-
ig húsgögnum var hagrætt í stofum
og herbergjum. „Það er ekki aðeins
framhlið húsanna sem skiptir máli
eða borgarmyndin heldur líka inn-
viðirnir. Það er eins og með mann-
eskjuna sjálfa, huga þarf líka að
sálinni. Heimilið hefur mikil áhrif á
þroska hennar,“ segir Halldóra.
Kynntust hjá RÚV
Á árunum 2005 til 2007 vann Hall-
dóra röð útvarpsþátta um hönnun,
heimilið og borgina. Kristín var við-
mælandi Halldóru í einum þessara
þátta um borgina í huga mannsins.
„Við undirbúning þáttarins spjölluð-
um við saman um borgareinkenni
Chicago og Reykjavíkur. Þá kvikn-
aði áhugi hjá mér að skrifa bók um
Kristínu og hennar framlag,“ segir
Halldóra. Kristín mun fagna níræð-
isafmæli sínu 12. júní næstkomandi
og ætlar Ríkisútvarpið þá að endur-
flytja þáttinn af því tilefni.
Halldóra hóf rannsóknarvinnu
sína vegna bókarinnar árið 2011 og
stefnir að útgáfu á næsta ári.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Hönnun Dr. HallDóra arnarDóttir skrifar bók um frumkvöðul í íslenskri innanHússHönnun
Ævistarf fyrsta íslenska híbýlafræðingsins á bók
Fyrsti íslenski híbýlafræðingurinn, eða innanhússarkitektinn
eins og fagið kallast í dag, var Kristín Guðmundsdóttir sem lauk
námi fyrir miðja síðustu öld. Verk Kristínar voru eftirsótt en þó
var þeirra aldrei getið á teikningum. Dr. Halldóra Arnardóttir
listfræðingur hlaut í vikunni styrk frá Hönnunarsjóði Auroru til
rannsókna á verkum og hugmyndum Kristínar.
Dr. Halldóra Arnardóttir vinnur nú að rannsókn á verkum Kristínar Guðmunds-
dóttir, fyrsta íslenska híbýlafræðingsins. Ljósmynd/Hari.
Kristín Guðmundsdóttir útskrifaðist
sem híbýlafræðingur frá Northwes-
tern University í Chicago árið 1946
og leitaðist meðal annars við það í
störfum sínum að auðvelda húsmóður-
störfin. Ljósmynd/Hornsteinar arkitektar.
Litið inn í baksturs-
skápinn í eldhúsinu
að Laugarásvegi
71. Allt við höndina.
Ljósmynd/Hornsteinar
arkitektar.
Hreinlæti er
mikilvægur þáttur í
hönnun þvottahúss,
en ekki síður litaval.
Ljósmynd/Hornsteinar
arkitektar.
6 fréttir Helgin 31. maí-2. júní 2012