Fréttatíminn - 31.05.2013, Síða 18
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
E
Erlendir ferðamenn streyma til landsins
sem aldrei fyrr. Hvert metið á fætur öðru er
slegið. Í liðnum apríl fóru 45.800 erlendir
gestir frá landinu um flugstöðina á Kefla-
víkurflugvelli, 8.100 fleiri en í sama mánuði
í fyrra. Aldrei hafa fleiri erlendir ferðamenn
heimsótt Ísland í apríl en aukningin milli
ára nemur 21 prósent – og var apríl í fyrra
þó metmánuður. Fjöldametin hafa fallið
mánaðarlega um langt skeið.
Á fyrsta fjórðungi þessa árs
voru erlendir ferðamenn
167.900 en á sama tíma í
fyrra, sem var metfjöldi, voru
þeir 125.300. Aukningin milli
ára á tímabilinu er 34 pró-
sent. Mikilvægt er að þessi
mikla fjölgun er utan helsta
annatíma sumarsins.
Kortavelta segir sömu sögu.
Ekkert lát er á vexti tekna
af erlendum ferðamönnum.
Heildarúttekt erlendra greiðslukorta nam
tæplega 5,3 milljörðum í apríl. Aukningin
milli ára var 18,4 prósent.
Mikilvægi ferðaþjónustunnar sést af því
að hún aflaði á síðasta ári 23,5 prósent af
gjaldeyristekjum þjóðarinnar, var í öðru
sæti á eftir sjávarútvegi. Gjaldeyristekjur af
ferðaþjónustu námu 238 milljörðum króna,
samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Ferða-
þjónustan hefur mörg undanfarin ár verið í
þriðja sæti, á eftir álvinnslu, en fór fram úr
henni á síðasta ári en þá fjölgaði erlendum
ferðamönnum um 19 prósent og gjaldeyris-
tekjur af þeim jukust um 21 prósent. Gjald-
eyristekjur af sjávarútvegi námu á liðnu ári
269 milljörðum króna. Álvinnslan skilaði
225 milljörðum.
Í samanburði við sjávarútveg og ál-
vinnslu sést mikilvægi ferðaþjónustunnar
sem undirstöðuatvinnugreinar. Það er því
að vonum að ný ríkisstjórn leggi áherslu á
langtímastefnumótun fyrir ferðaþjónustu í
stjórnarsáttmála með tilliti til uppbyggingar,
innviða, markaðssetningar og sköpunar
verðmætra starfa í greininni. Í sáttmálanum
kemur fram að kannaðir verði möguleikar á
gjaldtöku til uppbyggingar ferðamannastaða
til að bregðast við auknum fjölda ferða-
manna í náttúru Íslands og tryggja sjálf-
bærni. Undan því verður vart vikist enda er
álag á suma vinsælustu ferðamannastaðina
komið að þolmörkum, að óbreyttu. Íslend-
ingar greiða möglunarlaust aðgangseyri að
náttúruundrum ytra. Hið sama ætti að eiga
við hér. Áður en til gjaldtöku kemur þarf þó
að gæta samræmis í gjaldtöku milli staða,
hófs í verðlagningu og að frágangur og þjón-
usta sé boðleg. Áþreifanlegasti stuðningur
nýrrar ríkisstjórnar við ferðaþjónustuna er
að falla frá áformum um hækkun virðisauka-
skatts á ferðaþjónustu.
Ferðamálastofa stóð fyrr í þessum mánuði
fyrir fundi til að greina þarfir í ferðaþjón-
ustu en um gildi slíkra rannsókna fyrir upp-
byggingu og þróun greinarinnar þarf ekki
að efast. Þar var rætt um grunnrannsókir,
markhópagreiningar, þolmarksrannsóknir
og tölfræði og enn fremur að lengi hefði
verið kallað eftir öflugri rannsóknarmiðstöð
sem hefði mannafla til að matreiða kannanir
og rannsóknir sem gerðar eru fyrir grein-
ina, stjórnvöld og almenning. Tiltekið var að
ferðaþjónustan fengi einungis 0,5 prósent
af því rannsóknarfé sem fer til atvinnuveg-
anna. Miðað við stjórnarsáttmála nýrrar
ríkisstjórnar er líklegt að stjórnvöld líti til
þess og færi til betri vegar. Vart verður við
það unað að undirstöðuatvinnugrein búi við
slíkt svelti.
Það að stjórnvöld falla frá hækkun á
virðisaukaskatti á gistingu þýðir að fylgjast
verður með af mun meiri þunga en gert
hefur verið að sá skattur – sem og aðrir í
greininni – skili sér. Svört atvinnustarfsemi
hefur loðað við ferðaþjónustuna. Því ber að
fagna átaki ríkisskattstjóra sem kynnt var
fyrr í mánuðinum en embættið mun fara í
vettvangsferðir og skoða aðila sem bjóða
gistiþjónustu þar sem hvorki eru greiddir
skattar né önnur gjöld.
Því hefur verið haldið fram að um 90
prósent þeirra sem bjóða herbergi til útleigu
í heimahúsum hafi ekki leyfi og greiði þar
af leiðandi litla sem enga skatta af atvinnu-
starfseminni. Á höfuðborgarsvæðinu eru
þessi ólöglegu herbergi talin vera um 1000
– nær fjórðungur gistiherbergja á svæðinu.
Það er ólíðandi, hvort heldur á það er litið
frá samkeppnissjónarmiði eða þjóðarhags-
munum.
Ljósar og dökkar hliðar undirstöðuatvinnugreinar
Rannsóknarsvelti ferðaþjónustunnar
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Kynjafræði 101
Þá er spurningin sú: Á að
refsa öðrum fyrir það að ég
hafi fæðst karlkyns?
Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, forsætisráðherra,
velti upp tilvistarlegri spurn-
ingu þegar hann svaraði fyrir
kynjahalla í ríkisstjórn sinni.
Gróa á Leiti ehf
Þessi maður er ekki til og
líklega er þetta einhver
sem þiggur laun fyrir
að elta mig eða slíkt því
umræðan síðustu fjögur
ár í kommentakerfunum
er náttúrulega alveg
einstök.
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Fram-
sóknarflokksins, telur ljóst að fjársterkir
aðilar standi á bak við það sem hún vill
kalla rógsherferð gegn sér á netinu.
Borða meira, masa
minna
Mér er sagt að maturinn
sé svo góður að þingmenn
verði að gæta að vigtinni.
Elín Hirst, nýkjörinn þing-
maður Sjálfstæðisflokksins,
er búin að kynna sér að-
stæður á nýja vinnustaðnum.
Æra metin í ærgildum?
Engar takmarkanir virðast á upplognum
hugarórum til þess eins að eyðileggja
mannorð heiðarlegs fólks.
Jón Ingi Gíslason, formaður
Framsóknarfélags Reykjavíkur, grípur til
varna eftir að fréttir um ákæru á hendur
honum fyrir skattsvik komu fram.
Baráttukonur sjá rautt
Leiga á líkömum kvenna er þarna
kynnt til sögunnar sem hluti
af hressilegu sumarfríi
en ekki birtingarmynd
kynferðislegs ofbeldis.
Hildur Lilliendahl
Viggósdóttir og Steinunn
Rögnvaldsdóttir tóku
flugfélagið WOW á beinið
á vefritinu Knúz.is fyrir sérkennilegan
auglýsingatexta um Amsterdam þar sem
vakin var athygli á að þar mætti finna
vændiskonur og gras til reykinga.
VÁ! Óheppni
Við hjá WOW air viljum
biðjast velvirðingar á því
að þessi skrif hafa sært
eða móðgað einhvern en
það var svo sannarlega ekki
ætlunin. Við höfum fjarlægt textann af
heimasíðu okkar.
Flugfélagið WOW brást snarlega
við ábendingum og harðri gagnrýni
á fyrirtækið fyrir kvenfyrirlitningu í
kynningu á Amsterdam.
Árni vinalausi
Við verðum greinilega að
fá þig heim Árni til að
lesa fréttir. Þú átt enga
vini.
Árni Snævarr, upplýs-
ingafulltrúi hjá Sameinuðu
þjóðunum og fyrrverandi
fréttamaður á Stöð 2, furðaði sig á því
á Facebook að Logi Bergmann Eiðsson
skyldi stíga fram í Íslandi í dag og
tjá sig um áralanga vináttu hans og
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Gamla fréttahauknum þótti óheppilegt
að vinátta fréttalesara, eins og Loga, og
forsætisráðherra færi höfð í flimtingum.
Logi var skjótari en skugginn að skjóta
til baka.
Íslenskt óeðli
Stjórnmálamenn, fjölmiðla-
menn, bloggarar og margir
fleiri taka af fullum krafti
þátt í eineltinu og oftar
en ekki er fórnarlambið
einhver sem truflar vegferð
hinna velheppnuðu eða sker sig úr á
nokkurn hátt – í skoðunum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi
utanríkisráðherra, kvað sér hljóðs í
vikunni og kvartaði yfir eineltistilburðum
í stjórnmálaumræðunni. Sérstaklega
misbýður henni meðferðin á Jóni
Bjarnasyni og Vigdísi Hauksdóttur.
Vikan sEm Var
Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar:
Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af
hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun,
nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi
skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn
ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi
fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum
(NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum
asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið.
Síðustu 3 mánuðir meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri.
Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir eða
augu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi
lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar
hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð
ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á almennum
aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði
við lækni. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem
börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á
Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Fæst án lyfseðils
Verkjastillandi
bólgueyðandi
Veldur síður
lyfjaáhrifum um
allan líkamann eins
og þegar töflur eru
teknar inn
18 viðhorf Helgin 31. maí-2. júní 2012