Fréttatíminn - 31.05.2013, Side 22
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3-
14
64
Draumaferð á hverjum degi
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Ef þú vilt sparneytinn og rúmgóðan fjölskyldubíl sem kemur skemmtilega á óvart er óþarfi að leita lengra. Nýr
Mercedes-Benz B-Class eyðir frá aðeins 4,4 l/100 km í blönduðum akstri og mengar svo lítið að hann fær frítt
í stæði í Reykjavík í 90 mínútur. Mercedes-Benz B-Class með 7 þrepa sjálfskiptingu kostar frá 5.090.000 kr.
Hlökkum til að sjá þig í sýningarsal Öskju á Krókhálsi 11.
Mercedes-Benz B-Class 180 CDI með 7 þrepa sjálfskiptingu, rafstýrðri árekstrarvörn
og glæsilegum aukahlutapakka. Verð 5.590.000 kr. Til afhendingar strax.
· Hiti í sætum
· Inniljósapakki
· Hraðastillir
· 16” álfelgur
· Heilsársdekk
· Bakkmyndavél
· Krómpakki
· Rafstýrt bílstjórasæti með minni
· Sæta-þægindapakki
· Málmlitur
Fullkomnunarárátta kvenna
Mistökin skapa meistarann
a f hverju þurfa konur alltaf að ein-blína á veikleika sína í stað þess að horfa á styrkleikana,“ spurði
góð vinkona mig fyrir stuttu, þegar hún
sagði mér frá spennandi starfi
sem hún var að velta fyrir sér að
sækja um. Þetta var starf sem
var nánast búið til fyrir hana, svo
mörg hæfnisskilyrði uppfyllti
hún. Samt sem áður var hún full
efasemda um að hún kæmist
ekki einu sinni í viðtal.
Þegar ég lauk grunnnámi í há-
skóla datt mér í hug að ég gæti
haft gaman af blaðamennsku.
Það hvarflaði hins vegar ekki
að mér að sækja um starf á fjöl-
miðli, heldur skráði ég mig í
hagnýta fjölmiðlun, sem var
diplóma nám í Háskóla Íslands
fyrir þá sem lokið höfðu BA
prófi. Nemendurnir voru, að mig minnir,
18 talsins – og allt konur.
Okkur skólasystrunum var tíðrætt
um ástæður þess að í hóp okkar væru
engir karlar. Samanlögð reynsla okkar,
vangaveltur og umræður leiddu okkur
að þeirri niðurstöðu að karlmennirnir
sæu líklega ekki ástæðu til að fara í þetta
nám. Þeir einfaldlega sóttu um vinnu á
fjölmiðlum – og fengu. Ég veit ekki til
þess að nokkur okkar hafi sótt um vinnu
á fjölmiðli fyrir þennan tíma og fengið
höfnun. Við höfðum einfaldlega ekki
þorað að reyna. Þó svo að námið hafi
ekki reynst neitt sérstaklega hagnýtt
gaf það okkur hins vegar fyrst og fremst
kjark og þor til þess að ganga inn á rit-
stjórnarskrifstofu fjölmiðlanna og sækja
um starf. Með diplóma í höndunum.
Eitt af því sem konur kljást við á lífs-
leiðinni er fullkomnunarárátta. Það má
til að mynda sjá á vinnubókum grunn-
skólabarna þar sem bækur stúlknanna
eru ósjaldan snyrtilegri og vandaðri en
drengjanna. Ég veit að þetta er alhæfing
– en hana byggi ég á reynslu minni. Eitt
mest notaða skriffæri stúlkna í skólum
er strokleðrið. Sjálf man ég eftir frústra-
sjóninni sem helltist yfir mig í teikningu
– því ég var (og er) arfaslakur teiknari.
Því er áhugavert að kynnast, í gegnum
sjö ára dóttur mína, því hvernig Hjalla-
stefnan vinnur gegn fullkomnunaráráttu
stúlkna, sem Margrét Pála hjallastefnu-
höfundur, hefur sett fingur á. Í Hjalla-
stefnuskólum eru engin strokleður. Það
er því ekki hægt að leiðrétta, lagfæra,
skrifa betur. Jafnframt er reglulega
haldin svokölluð mistakavika hjá stúlk-
unum. Í mistakaviku (þeim er ekki sagt
frá því að nú standi yfir mistakavika)
er þeim falin ýmis verkefni sem dæmd
eru til að mistakast, svo sem að halda
eggjum á lofti. Þegar eggin detta í gólfið
og brotna er þeim hrósað fyrir hversu
duglegar þær voru að æfa sig að halda
eggjum á lofti. Þannig er þeim kennt að
það er í lagi að gera mistök enda er ein
af kjarnasetningum Hjallastefnunnar
(sem ég heyri oft notaða heima hjá mér):
æfingin skapar meistarann.
VikAn í tölum
18
mánuðir eru síðan Jóhanna
Guðrún Jónsdóttir söng-
kona og Davíð Sigur-
geirsson, kærasti hennar,
fluttust til Noregs. Þau er
nú á heimleið.
5
ár eru síðan Gunnar
Heiðar Þorvalds-
son skoraði síðast
fyrir íslenska lands-
liðið í knattspyrnu. Hann
spilaði síðast landsleik í
febrúar 2012.
4,6
milljarða hagnaður varð af rekstri Íslands-
banka á fyrsta ársfjórðungi. Það er einum
milljarði minna en á sama tíma í fyrra.
100
reiðhjól verða boðin
upp hjá óskilamuna-
deild lögreglunnar
á höfuðborgar-
svæðinu annan
laugardag, 8. júní.
2
milljónir króna
þarf Lýður
Guðmunds-
son, fyrrverandi stjórnarformaður Exista,
að greiða í sekt vegna hlutafjáraukningar í
Exista í lok árs 2008.
348
fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta
fyrstu fjóra mánuði ársins.
22 fréttir Helgin 31. maí-2. júní 2012 vikunnar