Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.05.2013, Side 58

Fréttatíminn - 31.05.2013, Side 58
58 skák og bridge Helgin 31. maí-2. júní 2012  Skákakademían Opna íSlandSmótið í Skák hefSt í dag í turninum BOrgartúni Skákin í hæstu hæðum Þ að er óhætt að segja að Skák-samband Íslands sé í hæstu hæðum: Í dag hefst sjálft Íslandsmótið í skák á efstu hæð í Turninum við Borgartún. Af tuttug- ustu hæð er mikilfenglegt útsýni yfir alla borg og nærsveitir. Og án efa mun útsýnið næstu tíu daga veita keppendum innblástur. Í fyrsta skipti er mótið öllum opið, sem þýðir að fulltrúar úr allri fæðukeðju skák- manna eiga sína fulltrúa: Þarna eru gamalreyndar kempur og margfald- ir meistarar, þrautreyndir áhuga- menn úr öllum landsfjórðungum og – ekki síst – skari af efnilegum krökkum, sem nú fá að tefla innan um meistarana! Stigahæstur er stórmeistarinn Héðinn Steingrímsson, sem í tví- gang hefur orðið Íslandsmeistari. Hann á hið glæsilega met að hafa hampað titlinum 15 ára gamall, yngstur í hundrað ára sögu mótsins. Héðinn hefur í vetur dvalið við nám og skák í Texas, og hlýtur að teljast sigurstranglegur með metnað sinn, atorku og 2558 stig. Næstur að stigum kemur okkar bráðefnilegi Hjörvar Steinn Grétars- son, kominn með tvo stórmeistaraá- fanga af þremur. Hann stendur á tvítugu og er með 2516 stig. Hjörvar Steinn mun mæta grimmur og glað- beittur til leiks, svo mikið er víst. Þriðji að stigum er Hannes Hlífar Stefánsson, sem fæddist skákárið mikla 1972. Hann hefur síðustu árin dalað nokkuð á stigalistanum, og hefur nú 2507 stig, sem hreint ekki endurspeglar hæfileika hans. Hannes Hlífar hefur oftast allra orðið Íslandsmeistari í skák – ellefu sinnum! Þá erum við komin að Henrik Danielsen stórmeistara, sem hefur 2505 stig, og sem hefur þegar unnið Íslandsmeistaratitilinn einu sinni. Henrik er danskrar ættar, en flutti til Íslands fyrir sjö árum og hefur síðan auðgað íslenskt skáklíf til mik- illa muna. Hann er allra okkar stór- meistara iðnastur við taflborðið, auk þess að hafa kennt skák á Íslandi, Grænlandi og í Afríku. Af öðrum afrekum má nefna að enginn hefur á Íslandi teflt fleiri blindskákir sam- tímis en Henrik: fyrir fáum árum tefldi hann 18 blindskákir samtímis, gegn mjög efnilegum ungmennum. Hann vann 15 og gerði þrjú jafntefli! Margir munu fylgjast með Stefáni Kristjánssyni stórmeistara, sem nú hefur 2494 stig. Stefán er einn mesti hæfileikamaður sem fram hefur komið í íslensku skáklífi á síðustu árum, en á ennþá eftir að landa sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli. Ekki verður síður gaman að fylgjast með Braga Þorfinnssyni alþjóðameistara, sem á dögunum landaði sínum fyrsta stórmeistaraá- fanga. Guðmundur Kjartansson mun örugglega velgja hverjum sem er undir uggum og Björn Þorfinns- son er til alls vís. Gaman er að sjá kempur á borð við Sævar Bjarnason alþjóðameistara og Gylfa Þórhalls- son margfaldan meistara af Norður- landi, innanum fjölskrúðugan kepp- endahóp, sem er á öllum aldri. Lenka Ptacnikóva er stigahæst kvenna. Hún er margfaldur Íslands- meistari síðustu ára, stórmeistari kvenna að tign, og gríðarlega góður skákkennari. Á Opna Íslandsmótinu 2013 er jafnframt keppt um Íslands- meistaratitil kvenna. Þar er Lenka vitaskuld sigurstranglegust, en enginn skyldi vanmeta þær ungu og bráðefnilegu stúlkur sem stigið hafa fram á síðustu árum. Eitt er víst. Íslandsmótið í skák 2013 er í anda einkunnarorða skák- hreyfingarinnar: Við erum ein fjöl- skylda! skákþrautin Hvítur mátar í 2 leikjum Svarti kóngurinn virðist í góðu skjóli, en það á fyrir honum að liggja að kafna í kastalanum. Sérðu hvernig hvítur klárar dæmið? í slenska landsliðið í opnum flokki gerði sér lítið fyrir og vann sigur á Norðurlandamótinu í bridge sem fram fór um síðustu helgi á Hótel Keflavík. Spilarar í landsliði Íslands í opnum flokki voru Jón Baldurs- son-Þorlákur Jónsson, Aðalsteinn Jörgensen-Bjarni H. Einarsson og Ragnar Hermannsson-Guðmundur Snorrason. Allar Norðurlandaþjóð- irnar mættu til leiks í opnum flokki en líka var keppt í kvennaflokki. Þar vantaði fulltrúa Finnlands og Fær- eyja. Í opnum flokki var spiluð tvöföld umferð og 16 spila leikir. Íslands vann sigur í öllum leikjum fyrri umferðar- innar og lögðu grunninn að sigrinum. Í síðari umferð tapaðist leikurinn gegn Danmörku og jafntefli í leiknum gegn Finnum en Svíar, Færeyingar og Norðmenn lutu í gras. Það nægði til að skila næsta öruggum sigri þar sem lið Danmerkur var eina þjóðin sem veitti Íslandi keppni. Lokastaða í opnum flokki var: 1. Ísland ................................................ 137,10 2. Danmörk.......................................... 129,17 3. Finnland .......................................... 108,07 4. Noregur ........................................... 95,50 5. Svíþjóð ............................................. 74,29 6. Færeyjar .......................................... 55,87 Sveit Dana vann sigur í kvenna- flokki eftir úrslitaleik við Noreg. Spilarar í sveit Dana í kvennaflokki voru Hella Rasmussen-Lone Bilde og Fia Houlberg Jensen-Kristina Lund Madsen. Kvennalið Íslands var skipað Önnu Ívarsdóttur-Guð- rúnu Óskarsdóttur, Ólöfu Þorsteins- dóttur-Svölu Pálsdóttur og Bryndísi Þorsteinsdóttur-Maríu Haraldsdótt- ur. Þær höfnuðu í fjórða sæti eftir tap í úrslitaleik um bronsið gegn liði Svíþjóðar. Bötlerárangur íslensku paranna var jafn og góður í opnum flokki. Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson deildu efsta sætinu með 0,67 impa í plús með Terja Aa-Allan Livgård frá Noregi. Í þriðja og fjórða sæti voru jafnir Aðalsteinn-Bjarni og Ragnar-Guðmundur með 0,56 impa í plús. Við skoðum hér síðasta spilið í mótinu í leik Íslands gegn Finnum. Austur var gjafari og eng- inn á hættu. Þorlákur Jónsson var með suðurspilin og átti út gegn 3 gröndum. Hann var með: KG9753, 65, 84, K109. Sagnir höfðu gengið þannig að austur opnaði á einum tígli, Þorlák- ur sagði 2 spaða (veik innákoma), vestur doblaði til úttektar og austur stökk í þrjú grönd.  Bridge nOrðurlandamótið Íslenska landsliðið Norðurlandameistari Lausn: 1.Rg6+!! hxg6 2.Dh6 mát ÞITT VILLTAH ARTAJ Helg ina 7 . – 9. jún í - Lýsuhól i , Snæfel lsnes i Y o u r W i l d H e a r t - A w e e k e n d o f d a n c i n g 5 R h y t h m s ® , Y o g a , R i t u a l & C e r e m o n y a n d S t o r y t e l l i n g . Kennarar : S igurborg Kr . Hannesdótt i r / 5Rytmar Annska Ólafsdótt i r / 5Rytmar Auður B jarnadótt i r / Jóga • 5 R y t m a ® d a n s • J ó g a • S ö g u s t u n d i r • R i t ú a l Ævintýraleg helgi til að næra þitt villta hjarta, líkama og sál í einstakri náttúru. S k r á n i n g o g u p p l ý s i n g a r : K o l b r ú n G u ð m u n d s d ó t t i r i n f o @ 5 r y t m a r . i s - s í m i 8 6 9 3 9 0 4 . w w w . d a n s f y r i r l i  d . i s Þorláki leist ekkert á spaðaútspilið og spilaði út laufatíu. Sagnhafi setti lítið í blindum, Jón drottningu og hélt áfram með litinn. Sagnhafi átti aðeins 8 slagi og gat ekki búið til þann níunda. Þrjú grönd í AV var lokasamningurinn á öllum borðum í Norðurlandamótinu og fékk að standa á 8 borðum af 10. Á hinu borðinu fékk Aðalsteinn 9 slagi. nýr formaður í Bridgefélagi reykjavíkur Nýverið var haldinn aðalfundur Bridge- félags Reykjavíkur. Nýr formaður var kosinn, Bergur Reynisson. Fráfarandi for- maður, Rúnar Einarsson lét af störfum. Hár prósentusigur í sumarbridge Á öðru kvöldi sumar- bridge var góð þátttaka, 29 pör mættu til leiks á öðru spilakvöldinu 22. maí. Leifur Aðalsteins- son og Guðmundur Ágústsson gerðu sér lítið fyrir og unnu með 65,2% skor. Jafnir í 2. sæti voru Sigurður Steingrímsson-Krist- inn Kristinsson og Brynjar Jónsson-Ingvar Hilmarsson með 56,6%. Spilað er á mánudags- og miðvikudagskvöld- um í sumarbridge. Íslensku spilar- arnir voru að vonum ánægðir með sigur- inn á Norðurlanda- mótinu. Á myndinni eru þeir með Árna Sigfússyni bæjar- stjóra í Reykjanesbæ og Jafet Ólafssyni, forseta Bridgesam- bands Íslands. ♠64 ♥ÁD832 ♦96 ♣D532 ♠ KG9753 ♥ 65 ♦ 84 ♣ K109 ♠ 1082 ♥ K1097 ♦ D107 ♣ Á74 ♠ ÁD ♥ G4 ♦ ÁKG532 ♣ G86 n s V a Lenka: Fremst skák- kvenna og margfaldur Íslands- meistari. 74,6% ... kvenna 35 til 49 ára á höfuðborgar- svæðinu lesa Fréttatímann* *konur 35 – 49 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent jan-mars. 2013 H E LGA R BL A Ð

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.