Fréttatíminn - 31.05.2013, Blaðsíða 70
H ún átti fyrst að heita Landís en Landsbankinn vildi ekki lána mér peninga. Pabbi lánaði mér í staðinn og því varð ég eiginlega að nefna
búðina eftir honum,“ segir Gylfi Þór Valdimarsson
sem hefur opnað ísbúðina Valdísi í verbúðunum á
Grandagarði.
Gylfi er nýfluttur til landsins eftir tólf ára búsetu í
Danmörku. Hann er kokkur að mennt og hefur unnið
í faginu í tvo áratugi. „Ég var að vinna á Hilton í fimm
ár og var svo í Danmarks Radio í sex ár. Nú langar
mig að gera eitthvað nýtt. Það er gaman að gera eitt-
hvað sjálfur, að þurfa ekki að treysta á aðra í kringum
sig.“
Gylfi kveðst hafa furðað sig á því af hverju Íslend-
ingar borði allir sama „loft ísinn“. Þeir geti allt eins
sett lakkrís eða Snickers inn í frysti og fengið sér
bita. Hann kemur heim með háleitar hugmyndir. „Ég
ætla að reyna að breyta íslenskri ísmenningu. Ég ætla
að gefa Íslendingum að smakka góðan ís, alvöru ís,“
segir hann ákveðinn.
Hvað verður á boðstólum í Valdísi?
„Það verður ferskur ís á hverjum degi. Hér verður
ítalskur gelato-ís, sorbet og líka soft-ís. Sorbet-ísinn
er mjólkurlaus ís sem er gerður úr sykurblöndu og
ferskum ávöxtum. Þegar ég geri ananas-sorbet tek ég
sykurblönduna mína og blanda við ferskan ananas,“
segir Gylfi sem kveðst munu bjóða upp á 20 tegundir
af ís í borðinu hverju sinni. Hvaða tegundir verða í
boði ræðst af framboði á fersku hráefni hverju sinni.
Mikil uppbygging er nú á Grandagarði eftir að
listamenn hreiðruðu um sig í gömlu verbúðunum.
Sjóminjasafnið er beint á móti og Sögusafnið verður
opnað í gamla Ellingsen-húsinu innan tíðar. Þá verður
ítalskur veitingastaður opnaður við hlið ísbúðarinnar
í sumar.
„Þetta er frábært húsnæði sem ég datt inn á. Ég
var bara svo heppinn að geta selt það konsept fyrir
listamennina í kring að ísbúð myndi trekkja að fólk
hingað. Þetta á eftir að verða líflegt hér,“ segir Gylfi.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Sumar Gylfi Þór ValdimarSSon opnar íSbúðina ValdíSi á GrandaGarði
Ætlar að breyta
íslenskri ísmenningu
Þegar Gylfi Þór Valdimarsson flutti heim eftir tólf ára búsetu í Danmörku fannst honum ísmenn-
ing landans ekki upp á marga fiska. Hann hefur því opnað eigin ísbúð og kemur með ferska
strauma frá gamla höfuðstaðnum.
Gylfi Þór Valdimarsson hefur opnað ísbúðina Valdísi í verbúðunum á Grandagarði. Gylfi er kærasti leikkonunnar Önnu Svövu
Knútsdóttur og hefur hún aðstoðað hann við undirbúning opnunarinnar. Ljósmyndir/Hari
KViKmyndir anton máni oG Guðmundur SlóGu í GeGn með HValfjörð
Frá Remax á rauða dregilinn í Cannes
„Fasteignasalan er ekki það ólík framleiðslunni. Og ég hef
getað nýtt ýmsa reynslu úr framleiðslunni í fasteignasöluna
og öfugt,“ segir Anton Máni Svansson, aðalframleiðandi
stuttmyndarinnar Hvalfjörður sem hlaut dómnefndarverð-
laun á kvikmyndahátíðinni í Cannes um liðna helgi.
Anton framleiddi myndina ásamt Guðmundi Arnari Guð-
mundssyni, sem jafnframt er leikstjóri og handritshöfundur
hennar.
Anton Máni hefur getið sér gott orð sem sölumaður fast-
eigna hjá Remax. Hann er 28 ára gamall en hefur starfað sem
sölumaður síðan 2007. „Þetta byrjaði nú bara þannig að ég og
konan vorum að reyna að fjárfesta í húsnæði en mér fannst
þjónustan sem ég fékk ekki nógu góð. Ég hugsaði með mér
að ég gæti gert betur og ákvað að sækja um starf. Svo datt ég
þarna inn á versta tíma, rétt fyrir hrun,“ segir hann.
Anton Máni hefur verið viðloðandi kvikmyndagerð síðan
2004. Hann kveðst hafa fengist við hitt og þetta og áhuginn
ágerðist sífellt. Hægt og bítandi færði hann sig yfir í fram-
leiðslu. „Það kom í ljós að ég var ábyrgi aðilinn,“ segir hann
léttur í bragði. Anton kynntist Guðmundi Arnari árið 2007 og
saman gerðu þeir tilraunakennda stuttmynd árið 2008. Sam-
starf þeirra leiddi svo af sér verðlaunamyndina Hvalfjörð sem
verður að líkindum frumsýnd hér á landi í haust.
Anton og Guðmundur Arnar ætla að hamra járnið meðan
það er heitt. Næst á dagskrá er kvikmynd í fullri lengd,
Hjartasteinn, sem þegar er komin með vilyrði um fjármögn-
un hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Umsetnir í Cannes. Rúnar Rúnarsson meðframleiðandi
Hvalfjarðar, Guðmundur Arnar leikstjóri og Anton
Máni framleiðandi. Mynd/Halldór Kolbeins
Erótíska skáldsagan Elskhuginn kemur út í næstu viku. Bókin
er eignuð Karl Franssyni sem er dulnefni höfundarins sem
sagður er vel þekktur og hafi hlotið ýmsar viðurkenningar á
ferli sínum. Fréttatíminn greindi frá huldupennanum fyrir viku og strax
í kjölfarið fóru forvitnir að bera sig upp við útgefandann, bæði með til-
gátur og spurningar um hver stæði í raun og veru á bak við Elskhugann.
Höfundurinn sjálfur segir að dulnefnið standi fyrir „maður frá
Frakklandi.“ Sagan gerist í París og í viðtali við Fréttatímann lýsti Karl
Fransson dálæti sínu á borginni. Þetta varð til þess að böndin bárust
að Þorgrími Þráinssyni sem sagður er mjög hrifinn af borginni.
Forlagið gefur ekkert uppi um hver er þarna á ferðinni frekar en
að á þeim bænum hafi verið flett ofan af Stellu Blómkvist sem einnig
gefur út hjá Forlaginu.
Glæpasögur Stellu hafa gert hana að þekktasta hulduhöfundi lands-
ins og að sögn Egils Jóhannssonar, hjá Forlaginu, vilji margir meina að
Karl og Stella séu sami höfundurinn. Nafn Árna Þórarinssonar hefur
einnig verið nefnt í þessu sambandi en hann er einn þeirra sem legið
hefur undir grun um að vera Stella og ýmsir telja að hann hafi fært sig
frá glæpum yfir í erótík í skjóli nafnleyndar.
Aðrir sem hafa í gegnum árin verið bendlaðir við Stellu Blóm-
kvist eru til dæmis Davíð Oddsson, Elías Snæland Jónsson og Auður
Haralds að ógleymdum Stefáni Jóni Hafstein en þeir sem halla sér að
kenningunni um að hann sé höfundur Elskhugans benda á að hann sé
nýkominn heim frá Afríku og hafi gert sig gildandi í samfélagsumræð-
unni undanfarið en kjósi að skrifa erótíkina án þess að tengja sig
henni beint. -þþ
Karl franSSon leitað að HulduHöfundi
Ýmsir grunaðir elskhugar
Þorgrímur
Þráinsson
er að sumra
mati líklegur
höfundur
Elskhugans
en bókin
kemur út í
næstu viku
og þá má
ætla að leitin
að höfundin-
um byrji fyrir
alvöru þegar
textarýnar
sökkva sér
í erótíkina
með kenn-
ingar á lofti.
F r a n z K o r t
Patrice er þrítugur arkitektanemi af íslenskum ættum
sem vinnur með náminu á lúxushóteli í París. Lífið er í
föstum skorðum þar til hann kemst í kynni við hina heill-
andi Mirabelle, konu auðugs demantakaupmanns, sem
er að leita sér að nýju leikfangi ... eða hvað? Hún getur
veitt Patrice meiri unað en hann hefur nokkru sinni áður
upplifað en hvað vill hún fá í staðinn og hvers vegna er
hún að draga hann inn í heim hinna ríku og frægu? Hún er
heldur ekki eina konan sem kveikir hjá honum ástríðubál
og löngun til æsilegs kynlífs – og fyrr en varir er hann
kominn í aðstæður sem geta leitt hann á hálar slóðir
háskalegra nautna.
Höfundurinn hefur víða getið sér gott orð og hlotið ýmsar
viðurkenningar á ferli sínum en Elskhuginn er fyrsta erótíska skáldsaga hans.
Fr
a
n
z Ko
r
t
Ég var á valdi Mirabelle. Það gæti kostað mig
starfið. Hún lokaði ekki á eftir sér. Ég nam
staðar og leit aftur fyrir mig áður en ég togaði
í hurðina. Hún þreif í mig, læsti og þrýsti mér
upp að veggnum.
Árni Þórarinsson
er meðal þeirra
sem grunaðir
eru um að vera
erótíski rithöf-
undurinn Karl
Fransson.
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
3. - 13. ágúst
Fararstjóri: Pavel Manásek
Verð: 208.800 kr.
á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið!
Alpafegurð & Arnarhreiður
Salzburgerland í Austurríki og þjóð-
garðurinn Berchtesgaden í Þýskalandi eru
heillandi á þessum árstíma þar sem allt er
í blóma og Alpafjöllin skarta sínu fegursta.
Sumar 12
70 dægurmál Helgin 31. maí-2. júní 2012