Fréttatíminn - 07.06.2013, Blaðsíða 29
Höfuðborgar-
svæðið
Austurver
Domus Medica
Eiðistorg
Fjörður
Glæsibær
Hamraborg
JL-húsið
Kringlan
Landsbyggðin
Glerártorg Akureyri
Hrísalundur Akureyri
Dalvík
Hella
Hveragerði
Hvolsvöllur
Keflavík
Selfoss
Vestmannaeyjar
Þorlákshöfn
Nurofen Apelsin
Íbúprófen mixtúra fyrir börn
á aldrinum 6 mánaða til 12 ára
Nýtt í Lyfjum & heilsu
Nurofen Apelsin 40 mg/ml mixtúra, dreifa. Inniheldur Íbúprófen. Til skammtímameðferðar gegn vægum til miðlungi alvarlegum verkjum eða hita. Skammtar og
lyfjagjöf: Til inntöku. Dagsskammtur af Nurofen er 20-30 mg/kg líkamsþyngdar tekin inn í 3-4 aðskildum skömmtum á u.þ.b. 6 til 8 klst. fresti. Mælt er með því
að sjúklingar sem eru viðkvæmir í maga taki Nurofen með mat. Ekki ráðlagt fyrir börn yngri en 6 mánaða eða undir 8 kg. Aðeins til skammtímanotkunar. Leita
skal til læknis ef einkenni versna. Ef lyfið er notað án lyfseðils og einkenni barnsins eru viðvarandi í meira en 3 daga skal leita til læknis. Lágmarka má
aukaverkanir með því að nota lægsta virka skammt í eins stuttan tíma og hægt er til að meðhöndla einkenni. Ekki má taka lyfið ef þú: Hefur ofnæmi fyrir
íbúprófeni, bólgueyðandi gigtarlyfjum, hveiti eða einhverju innihaldsefnanna, sögu um berkjukrampa, astma, nefslímubólgu eða ofsakláða í tengslum við inntöku
acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja, sögu um blæðingar eða rof í meltingarvegi í tengslum við fyrri meðferð með bólgueyðandi gigtarlyfjum, virk
sár, eða sögu um endurtekin sár/blæðingar í maga, virka blæðingu í heila eða annars staðar, alvarlega lifrarbilun, alvarlega nýrnabilun, alvarlega hjartabilun,
storkuvandamál, óútskýrðar truflanir á blóðmyndun svo sem blóðflagnafæð, ert á síðasta þriðjungi meðgöngu, tekur önnur bólgueyðandi gigtarlyf eða meira en
75 mg af acetýlsalicýlsýru daglega, ert með hlaupabólu, hefur nýlega gengist undir stóra skurðaðgerð, hefur ofþornað. Gæta skal sérstakrar varúðar og ræða
við lækni eða lyfjafræðing ef þú ert með, hefur einhvern tíman fengið eða átt hættu á að fá: Bandvefssjúkdóm, þarmasjúkdóm, hjarta og/eða æðasjúkdóm,
skerta nýrnastarfsemi, lifrarsjúkdóm, óþol fyrir sykrum eða ef þú tekur önnur lyf. Regluleg notkun verkjalyfja getur leitt til varanlegra truflana á nýrnastarfsemi.
Andþyngsli geta komið fyrir ef barnið hefur astma, langvinnt nefrennsli, sepa í nefi eða ofnæmissjúkdóma. Örsjaldan hefur verið greint frá alvarlegum viðbrögðum
í húð í tengslum við notkun bólgueyðandi gigtarlyfja. Hætta skal notkun Nurofen Apelsin strax við fyrstu merki um útbrot á húð, sár á slímhúðum eða önnur
einkenni ofnæmisviðbragða. Lyf svo sem Nurofen Apelsin geta tengst aukinni hættu á hjartaáfalli eða heilaslagi. Ekki nota meira en ráðlagðan skammt og ekki
lengur en ráðlagt er. Ef blæðing eða sár koma fram í meltingarvegi ætti að hætta meðferð strax. Hættan á blæðingum, sáramyndun eða rofi í meltingarvegi eykst
við notkun stærri skammta af bólgueyðandi gigtarlyfjum, hjá sjúklingum með sögu um sár í meltingarvegi, einkum ef þeim hafa fylgt blæðingar eða rof og hjá
öldruðum. Lyfið getur dulið einkenni sýkinga og hita. Sjúklingar með sögu um aukaverkanir í meltingarfærum, sérstaklega aldraðir, ættu að hafa samband við
lækni án tafar og greina frá öllum óvenjulegum einkennum frá meltingarvegi. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem
börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
• Bólgueyðandi
• Verkjastillandi
• Hitalækkandi
Fæst án lyfseðils í apótekum
3 m/s - raforkuframleiðsla hefst 15 m/s 28 m/s 34 m/s - raforkuframleiðsla stöðvast
Kjöraðstæður til raforkuvinnslu
Bíltúr á Búrfell
Gagnvirka orkusýningin í Búrfellsstöð við Þjórsá er skemmtileg
og lærdómsrík fyrir fólk á öllum aldri. Skammt fyrir norðan stöðina
eru vindmyllurnar tvær sem Landsvirkjun hefur reist í rannsóknar-
skyni, þær fyrstu sinnar gerðar á Íslandi. Akstur frá Reykjavík
tekur aðeins um eina og hálfa klukkustund og við erum alltaf
með heitt á könnunni.
Gestastofur Landsvirkjunar eru opnar 10-17 alla daga í allt sumar:
Búrfellsstöð
Gagnvirk orkusýning og vindmyllur á Hafinu
Kröflustöð
Jarðvarmasýning í gestastofu
Fljótsdalsstöð
Gestastofa í Végarði og leiðsögn um Kárahnjúka
Nánari upplýsingar á
www.landsvirkjun.is/heimsoknir
Hvarf Valgeirs
Víðissonar
Hvarf Valgeirs Víðissonar og leitin
að honum vakti mikla athygli á
sínum tíma. Hann fór frá heimili
sínu að kvöldi þess 19. júní 1994
og síðan þá hefur ekkert til hans
spurst. Í fyrstu var talið að hann
væri í felum en þegar leið á leitina
hallaðist lögreglan að því að honum
hefði verið ráðinn bani vegna
fíkniefnaviðskipta.
Valgeir mun hafa átt í útistöðum
við hóp fíkniefnasala og við yfir-
heyrslur kom fram að honum hafði
verið hótað lífláti áður en hann
hvarf. Ýmsar flökkusögur gengu um
undirheima Reykjavíkur og víðar
um hvar lík Valgeirs væri falið og
þrátt fyrir að margir hafi verið yfir-
heyrðir vegna málsins fundust ekki
sannanir til þess að hægt væri að
sakfella nokkurn mann.
Faðir Valgeirs barðist um árabil
fyrir því að betur yrði rannsakað
hver örlög sonar hans urðu en málið
er enn óleyst.
Blóðugur
skiptilykill
Næst var mér sýnd atburðarás.
Svartur bíll, sem líktist eldgömlum
lögreglubíl, hafði stoppað á
afviknum stað. Þrír menn voru inni
í farþegarýminu og einn vafinn inn í
teppi aftur í skotti. Einn mannanna
dró fórnarlambið, sem leit út fyrir
að slasað, út úr bílnum og tók að
berja það með því sem líktist skipti-
lykli. Ég gat ekki heyrt nein hljóð
en gat séð að mennirnir drösluðu
fórnarlambinu niður fyrir veginn
og á bak við stein u.þ.b. þrjá metra.
Ég bað leiðbeinanda minn um að
ég fengi að skoða bílinn nánar,
númeraplötur og þess háttar og
ég fékk það. Ég sá númerið mjög
greinilega og blóðugan skiptilykil
í afturrýminu. Þessu lýsti ég jafn-
óðum og ég skynjaði það. Mér leið
eins og ég væri að lýsa kvikmynd.
Þetta hafði engin áhrif á mig.
(Valsað milli vídda bls. 67)
Valgeir Víðisson hvarf sporlaust
í júní 1994.