Fréttatíminn - 07.06.2013, Blaðsíða 44
44 börn Helgin 7.-9. júní 2013
Margverðlaunaða Lottie dúkkan er ekki að herma
eftir heimi fullorðinna eins og margar aðrar dúkkur.
Hún er ekki á háum hælum, notar ekki farða, er
ekki hlaðin skartgripum og er ekki með húðflúr.
Lottie er mótvægi við alla þá neikvæðu líkams-
ímynd í samfélaginu og þá staðreynd að ungar stúlk-
ur séu gerðar að kyntákni. Við hönnun á dúkkunni
var unnið með virtum sérfræðingum á sviði nær-
ingar og heilsu til þess að dúkkan fengi þá líkams-
lögun sem er æskilegust miðað við aldur. Lottie er
bara eins og venjuleg níu ára stelpa í laginu og hefur
mörg áhugamál og endurspegla föt hennar þau.
Áræðin og hugrökk
Lottie er 18 cm á hæð, með fallegt hár sem flækist
lítið og auðvelt er að taka hana með sér hvert sem
er. Með hverri dúkku fylgir saga sem ætlað er að
ýta undir hugmyndaflugið. Með Lottie er í raun
snúið aftur til gömlu góðu daganna þar sem börn
eru skapandi og nýta sér hugmyndaflug sitt við
leik. Dúkkurnar eru núna sex talsins og hafa þær
allar mismunandi áhugamál.
Nálgun Lottie til lífsins er að vera áræðin, hug-
rökk og að vera hún sjálf. Þá hefur hún ríkt ímynd-
unarafl og er athafnasöm. Hún er sveigjanleg og
getur staðið á eigin fótum.
Lottie fæst í helstu barnavöruverslunum ásamt
því að vera seld í Hagkaup, á femin.is og heimkaup.
is. Hægt er að fá nánari upplýsingar um Lottie á
atc@atc.is. -ss
KYNNING
Leikföng Unnið með sérfræðingUm
Lottie stuðlar að jákvæðri líkamsímynd
Dúkkan Lottie er mótvægi gegn þeirri staðreynd að ungar stúlkur eru gerðar að kyntákni. Hún
er dúkka með eðlilega líkamslögun.
KYNNING
kátir krakkar metnaðUr LagðUr í persónULega og góða þjónUstU
Afmælisafsláttur
Barnafataverslunin Kátir Krakkar á þriggja ára afmæli um þessar mundir og býður því upp á
afslátt af völdum vörum.
„Kátir Krakkar fagna um þessar
mundir þriggja ára afmæli og
af því tilefni bjóðum við upp á
30% afslátt af völdum vörum. Við
hvetjum alla til að koma og kíkja
á úrvalið,“ segir Anna Margrét
Sigurðardóttir, annar eigandi
barnafataverslunarinnar Kátra
Krakka.
Anna Margrét opnaði versl-
unina ásamt eiginmanni sínum,
Lárusi Einari Huldarssyni, árið
2010 og hefur verslunin stækkað
um helming síðan þá. „Hvatinn að
opnun verslunarinnar var þegar
við kynntumst merkinu Smafolk.
Krakkarnir okkar þrír notuðu föt
frá því merki og við vorum mjög
hrifin. Okkur langaði einfaldlega
að leyfa fleiri að kynnast þeim
frábæra fatnaði sem er bæði mjög
fallegur og vandaður, og ákváðum
við því að selja föt frá merkinu.
Smafolk er þekkt fyrir slitsterkar
og litríkar buxur ásamt því að vera
með flotta boli, kjóla og margt
fleira sem barnið þarf. Einnig
erum við með mörg önnur merki
til sölu,“ segir Anna Margrét.
Kátir Krakkar leggja metnað
sinn í að veita persónulega og góða
þjónustu og er þeirra helsta mark-
mið að selja vandaðan og fallegan
barnafatnað á krakka á aldrinum
0 til 14 ára. „Á þessum þremur
árum sem verslunin hefur verið
starfandi höfum við eignast marga
mjög góða viðskiptavini sem við
erum afar þakklát fyrir. Verslunin
okkar er orðin glæsileg, við erum
til að mynda með barnahorn sem
er með mikið af leikföngum fyrir
börnin svo foreldrarnir fá næði til
þess að skoða. Flestum börnum
finnst mjög gaman að koma og fá
að leika sér,“ segir Anna Margrét.
Kátir Krakkar er á Suðurlands-
braut 52 í einu af bláu húsunum
við Faxafen. Á næstu dögum
verður opnuð vefverslunin www.
kátirkrakkar.is þannig að fólk
sem ekki hefur tök á að koma til
okkar getur verslað af netinu.
Kátir Krakkar bjóða öllum við-
skiptavinum sem búa utan höfuð-
borgarsvæðisins að fá sent heim
að kostnaðarlausu. -ss
Þú nnur okkur á Facebook
undir “Fatabúðin”
Skólavörðustíg 21a 101 Reykjavík S. 551 4050
Ný sending af dásamlegum
sængurfatnaði, mikið úrval
Laugavegi 25 - S: 553-3003
H ö n n u n a r
h ú s
www.hrim.is
Opnunartími
Mán-fös
10:00-18:00
Laugardaga
11:00-18:00
Sunnudaga
13:00-17:00
Flott hönnun er góð gjöf
Laugavegi 53 Sími 552 3737 opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Vor/sumar
2013
Ný kjóla
sending
verð frá:
kr. 3.450