Fréttatíminn - 07.06.2013, Blaðsíða 23
ÞVottaefni fyrir hVert tilefni
StórÞVottur
framundan?
hafðu Það fínt
nú er Það SVart
Ekkert jafnast á við
Neutral Storvask til
að komast til botns
í þvottakörfunni.
Hentar fyrir þvott
af öllu tagi.
Silkihönskum, ullarteppum
og dúnúlpum hæfir 30 til
40 gráðu þvottur í höndum
eða vél með Neutral Uld-
og finvask.
Neutral Sort vask varðveitir
svartan glæsileikann svo hann
tapi ekki lit sínum. Upplitað er
bara ekki í tísku þessa dagana.
Fyrir alla muni, ekki láta
þennan lenda í hvíta
þvottinum.
Létt er að flokka
litríka sokka.
nú er Það hVítt haltu lífi í litunum
Ensímin í Neutral Hvid vask
losa þig við erfiða bletti og
óhreinindi. Það skilar sér í
björtum og hvítum þvotti.
Fljótandi Neutral leysist vel
upp og hentar því líka vel í
handþvottinn.
Settu svolítið af Neutral Color
í hólfið og njóttu þess að fá
þvott inn jafn litríkan úr vélinni
aftur. Þetta er kröftugt, þú
notar bara lítið af dufti í
hverja vél. Fljótandi Neutral
Color endist líka og endist.
Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi
mælir með vörum frá Neutral
Dönsku astma- og
ofnæmissamtökin
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
N
AT
6
27
19
0
1.
20
13
nánari upplýSingar á neutral.iS
S tundum þegar ég svara í símann í vinnunni og kynni mig, segi „Davor“, þá held-
ur fólk að ég heiti Dagur. Ég þarf
jafnvel að endurtaka mig nokkr-
um sinnum og útskýra að ég heiti
ekki íslensku nafni,“ segir Davor
Purusic. Hann talar nánast lýta-
lausa íslensku og sumir taka því
ekki strax eftir hreimnum. Davor
starfar sem lögfræðingur hjá Um-
boðsmanni skuldara og stefnir að
því að öðlast málflutningsréttindi
í haust. „Það kemur í ljós hvort
það tekst í fyrstu tilraun. Við
sjáum til,“ segir hann og brosir.
Davor er fæddur í fyrrum Júgó-
slavíu, Bosníu-Herzegóvínu, og
alinn upp hjá einstæðri móður
í höfuðborginni Sarajevo. Eftir
að Bosnía-Herzegóvína lýsti yfir
sjálfstæði í byrjun apríl árið 1992
braust út blóðugt stríð við Serbíu
og Bosníu-Serba sem neituðu
að viðurkenna sjálfstæðið. Á
árunum 1992-1993 var framið
mesta þjóðarmorð í Evrópu síðan
í seinni heimsstyrjöldinni þegar
serbneskar hersveitir myrtu þús-
undir Bosníumanna og Króata
um alla Bosníu-Herzegóvínu. Da-
vor var lögreglumaður í Sarajevo
á þessum tíma. Hann slasaðist
fjórum sinnum og var á endanum
fluttur illa haldinn til lækninga
til Íslands á vegum Sameinuðu
þjóðanna.
Lífvörður ráðherra í Bosníu
Hann tekur á móti mér á heimili
í sínu í Skaftahlíð þar sem hann
býr ásamt konu sinni, Önnu
Gunnhildi Ólafsdóttur, tveimur
dætrum og hundi. Eldri dótt-
irin, Halldóra Ana, sem verður
sautján ára í nóvember, fylgist
spennt með viðtalinu. Sú yngri
er nýfermd, Valgerður Marija.
Seinni nöfn stúlknanna eru í
höfuðið á móður Davors og stjúp-
móður hans. „Hundurinn okkar
heitir Emil. Hann er tíu mánaða,“
segir Halldóra Ana og kallar á
nýjasta fjölskyldumeðliminn.
Í Bosníu átti Davor doberman-
hund sem hét Albert og voru þeir
miklir mátar en Albert fældist í
sprengjuárás og týndist í stríð-
inu.
„Ég starfaði í öryggisdeild lög-
reglunnar sem sá um lífvörslu
ráðherra í ríkisstjórn Bosníu.
Þegar átök brutust út hafði
Bosnía engar vopnaðar sveitir og
fyrstu sex mánuðina voru lög-
reglusveitir í hlutverki hersins,“
segir Davor sem beinlínis var í
eldlínunni. Hann hendir gaman
að því að hann hafi alltaf haldið
Davor Purusic kom til
Íslands með sjúkraflugi
frá Bosníu fyrir tæpum
tuttugu árum eftir að
hafa slasast alvarlega
í stríðinu. Ung kona af
Morgunblaðinu tók við
hann fyrsta viðtalið,
þau urðu ástfangin og
eiga í dag tvær dætur.
Davor einsetti sér fljótt
að læra íslensku og
komast inn í samfélagið.
Skortur á háskóla-
menntun hamlaði
starfsframa hans, því
skráði hann sig í lög-
fræði og útskrifaðist
fjórum árum síðar með
meistaragráðu. Davor
er metnaðarfullur með
eindæmum og segir
hindranir til þess eins
að yfirstíga þær.
áfram þar til hann var gjörsam-
lega óstarfhæfur eftir fjórða
slysið: „Ég er býsna þrjóskur,“
segir hann sposkur á svip.
Ástin bankar á dyrnar
Í byrjun október fór Davor með
herflugvél frá Sarajevo til Kaup-
mannahafnar. Það þótti stórfrétt
að íslensk yfirvöld tækju á móti
tveimur slösuðum karlmönnum
úr stríðinu, ásamt eiginkonu ann-
ars þeirra, og því ákvað Morgun-
blaðið að senda blaðamann til
Danmerkur til að ná viðtölum við
fólkið áður en mennirnir yrðu
settir í einangrun á Landspítalan-
um vegna sýkinga í sárum. Þessi
blaðamaður er kona Davors í dag.
Ég spyr hvort þau hafi strax orðið
ástfangin. Davor hlær við. „Það
spyrja allir þessarar spurningar.
En á þessum tíma komst lítið
annað að en að fá læknisaðstoð.“
Hann kom til Íslands 27 ára
gamall, 8. október 1993. Davor
er hávaxinn maður en þarna
vó hann aðeins 61 kíló, hafði
misst um 40% af líkamsþyngd
sinni. Stríðið tók sinn toll bæði
andlega og líkamlega. Við tóku
tuttugu mánuðir þar sem Davor
fór í fjölda uppskurða og milli
þess sem hann var á sjúkrahús-
inu dvaldist hann á sjúkrahóteli
Rauða krossins við Rauðarár-
stíginn. Þegar ég spyr nánar
um hvernig þau hjónin kynnt-
ust finnst Davor fara best á því
að Anna útskýri það og kallar
á hana. Hún segist hafa tekið
annað viðtal við Davor og ungu
hjónin sem komu frá Bosníu eftir
að þeir voru lausir úr einangrun.
„Þegar þau voru á sjúkrahótelinu
bauðst ég síðan til að sýna þeim
borgina því þau höfðu ekkert
skoðað.“ Og fyrr en varði urðu
þau ástfangin, íslenskumenntaði
blaðamaðurinn á Morgunblaðinu
og fyrrverandi lögreglumaðurinn
frá Bosníu.
Einkakennsla í íslensku
Eftir aðeins nokkra mánuði á Ís-
landi fór hann að velta fyrir sér
möguleikanum á því að setjast
hér að. „Hér voru allir svo góðir
og gestrisnir.“ Hann segir að Ís-
lendingar hafi í fyrstu verið hissa
á þessum áhuga hans en síðan
hafi allt verið gert til að auðvelda
honum að komast inn í samfé-
lagið.
„Við fengum sérstaka undan-
þágu og vorum fljótt komin með
fast dvalar- og búsetuleyfi. Kerfið
virkar allt öðruvísi í dag. En um
leið og ég treysti mér til var ég
kominn á vinnumarkaðinn. Ég
byrjaði að vinna sem bréfberi og
síðan sem þjónn. Mesta hjálpin,
það sem hefur reynst mér best,
var íslenskukennsla sem Rauði
krossinn skipulagði fyrir okkur.
Þetta var í raun einkakennsla þar
sem við þrjú fengum klukkutíma
kennslu, fimm daga vikunnar í
hálft ár. Þetta var frábær grunn-
ur. Íslensk málfræði er svipuð
viðtal 23 Helgin 7.-9. júní 2013