Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.06.2013, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 07.06.2013, Blaðsíða 18
Þ að er einhver lýðræðishalli í vinnubrögðum um tilnefning-ar á stjórnarmönnum í stjórnir lífeyrissjóðanna. Þetta á við bæði hjá launþegum og atvinnurekendum. Ég held að bæði launþegar og atvinnu- rekendur hafi sofnað á verðinum og látið sjálfvöldum fulltrúum samtaka launþega og samtaka atvinnurekenda það eftir að ákveða hvernig og í hverju sparnaður þeirra er ávaxtaður með því að ákveða fyrir þeirra hönd hverjir sitji í stjórnum lífeyrissjóðanna. Ég hélt að þessir hlutir væru í góðu lagi þangað til ég upplifði annað á eigin skinni. Fulltrúar hverra sitja í stjórnum lífeyrissjóðanna? Lög og reglugerðir allra vinnumark- aðssjóðanna ganga út frá svipuðum gildum en nokkrar áherslubreytingar eru á samþykktum sjóðanna. Allir sjóðirnir kjósa sér fulltrúaráð úr hópi launþega og atvinnurekenda. Fulltrúa- ráð launþega virðast almenn vera virk- ara í lífeyrissjóðunum en fulltrúaráð atvinnurekenda. Fulltrúaráð atvinnu- rekenda eru nánast óvirk í sumum sjóðum og fara þá Samtök atvinnulífs- ins með tilnefningar og ákvarðanir fyrir hönd atvinnurekenda. Hagsmun- um hverra þjónar það að hafa aðildar- félög atvinnurekenda óvirk? Er það til að starfsmenn Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins geti tilnefnt og skipað sjálfa sig í stjórnir? Stéttarfélögin 12 skipa sér full- trúaráð sem valið er þannig að hvert stéttarfélag sem aðild á að sjóðnum kýs úr sínum hópi einn fulltrúa fyr- ir hverja 200 virka félagsmenn sem jafnframt eru virkir sjóðfélagar í líf- eyrissjóðnum og einn fulltrúa fyrir hverja 200 félagsmenn. Virkir félags- menn og sjóðfélagar eru þeir sem greiða stéttarfélagsgjöld í fyrrnefnd stéttarfélög og lífeyrisiðgjöld í Sam- einaða lífeyrissjóðinn. Vegna þessara www.rekstrarland.isRekstrarland | Skeifunni 11 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100 PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 31 55 9 Plastpokar – til að geyma, henda, bera eða kæla. Verð frá 149 kr. Ruslapoki, 50X60 cm, 25 stk. Lýðræðishalli í vinnubrögðum um tilnefningar á stjórnarmönnum í stjórnir lífeyrissjóðanna Spilaborg lífeyrissjóðanna reglna um fjölda félags- manna á bak við hvern fulltrúaráðsmann eru of oft breytingar á hverjir sitja í stjórn lífeyrissjóðs- ins fyrir hönd launþega. Þannig geta fulltrúar launþega í stjórn sjóðs- ins verið að hoppa inn og út úr stjórn á 2ja, 4ja og 6 ára ára fresti. Lýðræði eða fámennis full- trúaræði? Mjög ámælisvert er einnig að engar reglur eru um hámarkssetu fulltrúa launþega í stjórn lífeyrissjóðsins. Nú- verandi varaformaður Sameinaða líf- eyrissjóðsins, fulltrúi launþega, hefur lengsta stjórnarsetu í sögu sjóðsins samfleytt í 14 ár. Fámenn stéttarfélög eiga aldrei möguleika á að eignast mann í fulltrúaráðið og þar með aldrei stjórnarmann í stjórn lífeyrissjóðsins. Í skýrslu rannsóknarnefndar lífeyris- sjóðanna segir að það sé einfaldlega of löng leið frá vilja eigenda lífeyris- réttinda til þess hver verður stjórnar- maður fyrir hans hönd. Þetta er ekki lýðræði þetta er eitthvað skrýtið full- trúaræði. Með nýjum reglum FME um að stjórnarmenn lífeyrissjóðanna gang- ist undir hæfismat verða sjálfkrafa allir sjóðfélagar hæfir sem stjórnar- menn. Ég hef fulla trú á því að stór hluti almennra sjóðfélaga sé fær um að gegna stjórnarsetu í lífeyrissjóðun- um, því væri æskilegt að leita út fyrir raðir starfsmanna stéttarfélaganna í leit að hæfum stjórnarmönnum. Starfsmenn Samtaka iðnaðarins tilnefna hvor annan í stjórnir lífeyrissjóða Það er mjög einkennilegt að Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins skulu í reglubók Sameinaða lífeyris- sjóðsins vera skilgreind sem aðilar að lífeyrissjóðnum. Bæði Samtök at- vinnulífsins og Samtök iðnaðarins eru samtök stofnuð af atvinnurekendum. Aðlildarfélög atvinnurekenda greiða félagsgjöld til SA og SI sem nýtt eru til að standa undir rekstri samtak- anna. Starfsmenn SA og SI eru því launamenn hjá aðildarfélögunum en ekki atvinnurekendur. Aðilar atvinnu- rekenda að lífeyrissjóðnum eiga ein- göngu að vera greiðandi aðildarfélög sem spegla hliðstæðu við stéttarfélög launþega. Reglan er sú að þegar laun- þegahreyfingin er búin að skipa sitt fulltrúaráð út frá fjölda félagsmanna í viðkomandi stéttarfélögum og fyrir liggur hver fulltrúafjöldi stéttarfélag- anna er og úr hvaða atvinnugrein, skal viðkomandi atvinnurekanda- félagi tilkynnt um fulltrúafjölda þann sem aðildarfélagið á rétt á að tilnefna. Reglurnar segja mjög skýrt að að- ildarfélögin eigi að tilnefna úr sínum röðum í stjórn lífeyrissjóðsins. En raunin er sú að undanfarin 5 ár hefur það verið framkvæmdastjóri og að- stoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins ásamt þá verandi formanni Samtaka iðnaðarins, Helga Magnús- syni, sem tilnefnt hafa stjórnarmenn í stjórnir lífeyrissjóðina enda hafa þeir tilnefnt sjálfa sig í stjórnir nokk- urra lífeyrissjóða. Fv. formaður Sam- taka iðnaðarins, Helgi Magnússon, er varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Orri Hauks- son, er stjórnarmaður í Gildi og að- stoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Jón Bjarni Gunnarsson, er núverandi formaður Sameinaða lífeyrissjóðsins. Með þessu sjálfskip- aða tilnefningarvaldi hafa starfsmenn Samtaka iðnaðarins komið sér í þá sérstöðu að vera með sjálftöku á laun- um. Á sama tíma og þeir eru á launum sem starfsmenn Samtaka iðnaðarins eru þeir á launum sem stjórnarmenn í stjórnum lífeyrissjóð- anna. Raunveruleik- inn er sá að ég sem aðildarfélagsgreiðandi í Samtök iðnaðarins og iðgjaldagreiðandi í Sam- einaða lífeyrissjóðnum er að greiða aðstoðar- framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins tvöföld laun morgnana sem hann mætir á stjórnarfund í líf- eyrissjóðnum. Vikið úr stjórn vegna „hættu- legra“ skoðana Ég var tilnefnd af aðildarfélagi Málms og skipuð af Samtökum atvinnulífsins til stjórnarsetu í Sameinaða lífeyris- sjóðnum árið 2008. Ég var stjórnar- maður í 4 ár þar af formaður í eitt ár. Þetta voru árin eftir hrun, allir verk- ferlar sjóðsins voru endurskoðaðir. Síðast verk mitt sem formaður var að skipa og leiða nefnd sem mótað áhættustefnu sjóðsins, ég vildi líka gera breytingar á samþykktum sjóðs- ins varðandi skipan í stjórn. Á stjórn- arfundi Sameinaða lífeyrissjóðsins í febrúar 2012 lagði ég fram sem for- maður tvær breytingartillögur á sam- þykktum Sameinaða lífeyrissjóðsins, önnur tillagan var að hámarksseta stjórnarmanna í stjórn væri 8 ár hin tillagan var að kjósa ætti 2 af 6 stjórnarmönnum á ársfundi úr hópi sjóðfélaga. Ég fékk símtal frá aðstoð- arframkvæmdastjóra Samtaka iðnað- arins sem einnig var stjórnarmaður í lífeyrissjóðnum þar sem hann sem tilkynnti mér að ég yrði ekki tilnefnd til stjórnarsetu fyrir hönd atvinnurek- anda hjá Samtökum Iðnaðarins. En þar sem ég sit í stjórn Málms, einu af aðildarfélögum Samtaka iðnaðarins, vissi ég að þessi umræða hafði ekki farið fram í stjórn Málms svo ekki var það aðildarfélagið sem tók þessa ákvörðun. Ég hafði fullan áhuga og getu til að sinna áfram starfi mínu inn- an stjórnar en var látin víkja án þess að þeir sem koma áttu að því að víkja mér úr stjórn væru hafðir í samráði. Valdaherrarnir gátu sem sagt komið í veg fyrir að önnur sjónarmið en þeirra kæmust að. Núverandi fyrirkomulag laun- þega um val í stjórnir er mjög baga- legt þar sem annars vegar tapast dýrmæt reynsla stjórnarmannsins vegna skamms tíma í stjórn og hins- vegar þar sem þaulsetin forræðis- hyggja stjórnar öllu vegna of langrar stjórnarsetu. Vonandi verður breyting á þessu fyrirkomulagi með tilkomu hæfismats FME á stjórnarmönnum. Það verður einfaldlega of kostnaðar- samt fyrir lífeyrissjóðinn að mennta stjórnarmenn til að standast hæfi og sitja síðan í stjórn skemur en 8 ár. Fá- menn stéttarfélög eignast aldrei beint fulltrúa úr sínu stéttarfélagi, það eru alltaf stóru félögin sem verða ráðandi í fulltrúaráðinu. Ég fullyrði að núver- andi fyrirkomulag Samtaka iðnaðar- ins um tilnefningar stjórnarmanna fyrir hönd atvinnurekenda sé brot á lögum og samþykktum Sameinaða líf- eyrissjóðsins. Einnig tel ég rangt að starfsmenn Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins sitji í stjórnum líf- eyrissjóða fyrir hönd atvinnurekenda. Einkennilegt er líka að í ráðningar- samningi framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins er sérstaklega tilgreint að hann skuli sitja í stjórn lífeyrissjóðs. Þetta uppfyllir ekki lög og reglur samþykkta sjóðsins þar sem segir að „Framangreind samtök atvinnurek- enda sem aðild eiga að sjóðnum til- nefni jafn marga fulltrúa úr sínum röð- um og viðkomandi stéttafélag kýs.“ Framkvæmdastjóri og aðstoðarfram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins eiga ekki samsvörun við stéttarfélögin frekar en aðrir starfsmenn Samtaka iðnaðarins og Samtaka atvinnulífsins. Lífeyrissjóður Fulltrúi atvinnurekenda í stjórn Starfsmenn SA og SI Gildi Vilhjálmur Egilsson fv. framkvæmdastjóri SA Gildi Orri Hauksson framkvæmdastjóri SI Lífeyrissjóður verslunarmanna Hannes G. Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri SA Lífeyrissjóður verslunarmanna Helgi Magnússon f.v. formaður SI Sameinaði lífeyrissjóðurinn Jón Bjarni Gunnarsson aðstoðarframkvæmdastjóri SI Gildi (varamaður í stjórn) Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri SA Sameinaði lífeyrissjóðurinn með 9.496 sjóðfélaga Fulltrúaráð launþega Sameinaða lífeyrissjóðsins er mjög virkt en fulltrúaráð atvinnurekenda algjörlega óvirkt. Stéttarfélag launþega Aðildarfélög atvinnurekenda Samtök aðildarfélaga Starfsgreinafélag Austurlands Bílgreinasambandið SA Samtök atvinnulífsins Fagfélagið Félag blikksmiðjueigenda SI Samtök iðnaðarins Félag bókagerðarmanna Félag húsgagna og innréttingaframleiðenda Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri Félag pípulagningameistara Félag skipstjórnarmanna Félag skrúðgarðyrkjumeistara Félag vélstjóra og málmtæknimanna Félag veggfóðrarameistara Iðnsveinafélag Skagafjarðar Landssamband veiðafæragerðar Stéttarfélag Vesturland Málarameistarfélag Reykjavíkur Veggfóðrarafélag Reykjavíkur Málmur samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði Verkstjórasamband Íslands Meistarafélag bólstrara Þingiðn Meistarafélag húsasmiðja í Reykjavík Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði Meistarafélag Suðulands Múrarameistarafélag Reykjavíkur Samband garðyrkjubænda Auður Hallgrímsdóttir fyrrverandi stjórnarmaður í Sameinaða lífeyrissjóðnum 18 viðhorf Helgin 7.-9. júní 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.