Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.06.2013, Blaðsíða 62

Fréttatíminn - 07.06.2013, Blaðsíða 62
62 bíó Helgin 7.-9. júní 2013 Hvort Jaden litli geti nýtt þetta tækifæri til þess að sanna sig sem leik- ara með föður sinn á hliðar- línunni er svo eitt- hvað sem áhorfend- ur verða að skera úr um.  Frumsýnd AFter eArth h eldur hefur syrt í álinn hjá leikstjóran-um M. Night Shyamalan frá aldamót-um. Hann sló eftirminnilega í gegn með draugamyndinni The Sixth Sense 1999 og gerði krakkaorminn huggulega Haley Joel Osment að skærri barnastjörnu sem hefur ekki náð að springa út að gelgjuskeiði loknu. Endalok The Sixth Sense komu áhorfendum í opna skjöldu og sátu lengi í fólki. Shyamalan tókst einnig vel að snúa upp á söguna í frumlegri ofurhetjumynd sinni, Unbreakable, sem hann sendi frá sér í kjölfar The Sixth Sense ári síðar. Í þeirri mynd treysti hann, líkt og í The Sixth Sense, á Bruce Willis í aðalhlutverki en hann fékk dyggan stuðn- ing frá Samuel L. Jackson sem var góður að vanda. Þær myndir sem leikstjórinn hefur gert í framhaldinu hafa valdið vonbrigðum og ef til vill hafa þær fyrst og fremst sýnt og sannað að Shyamalan er ekkert sérstaklega flinkur sögumaður og eina stílbragðið sem hann virð- ist kunna er að afvegaleiða áhorfendur til þess að reyna að koma þeim á óvart í lokin. Þetta höfundareinkenni varð satt best að segja fljótt þreytandi og að súrri klisju. Næstu tvær myndir hans, Signs með Mel Gibson og The Village sem skartaði Joaquin Phoenix og öðru ágætu fólki sluppu fyrir horn en Lady in the Water, The Happening og The Last Airbender voru fast að því óbærilegar þannig að nú reynir á leikstjórann og After Earth. Í After Earth bregður Shyamalan sér út í geim og inn í framtíðina og segir frá hildarleik feðganna Cypher og Kitai Raige sem feðgarn- ir Will Smith og sonur hans Jaden leika. Þeir lenda í ævintýrum sínum þúsund árum eftir að hörmungar og eyðilegging hafa gert jörð- ina óbyggilega. Mannkynið sá sér því þann kost vænstan að yfirgefa plánetuna og hefur komið sér fyrir í nýjum heimi, Nova Prime. Will Smith leikur Cypher Raige, dáðan her- foringja, sem snýr heim eftir langan herleið- angur þar sem hann hittir fyrir fjölskyldu sína sem hann hefur haft lítið að segja af. Hann er þess þó albúinn að axla föðurlegar skyldur sínar gagnvart þrettán ára gömlum syni sínum, Kitai. Feðgunum virðist þó ekki ætlað að treysta blóðböndin í rólegheitum þar sem smástirni laska geimfar þeirra og þeir neyðast til þess að brotlenda á vorri gömlu fósturjörð. Jörðin er gerbreytt og stórhættulegur staður að vera á og á meðan Cypher liggur helsærður í stjórnklefa geimflaugarinnar þarf sonurinn að sýna hvað í honum býr og stíga úr skugga hetjunnar sem getur sér nú engar bjargir veitt. Kitai hefur ekki um annað að velja en fara einsamall í gegnum hættusvæði á jörðinni til þess að koma neyðarkalli til Nova Prime. Drengurinn hefur ekki þráð neitt heitar en að verða hermaður eins og faðirinn og þarna fær hann tækifæri til þess að sanna sig. Hvort Jaden litli geti nýtt þetta tækifæri til þess að sanna sig sem leikara með föður sinn á hliðar- línunni er svo eitthvað sem áhorfendur verða að skera úr um. Aðrir miðlar: Imdb: 4,6, Rotten Tomatoes: 12%, Metacritic: 33% Indverski leikstjórinn M. Night Shyamalan vakti mikla athygli og almenna hrifningu með The Sixth Sense 1999. Hann fylgdi henni eftir með hinni um margt vanmetnu mynd Unbreakable ári seinna en eftir það fór að halla jafnt og þétt undan fæti og það er orðið býsna langt síðan maður sá góða mynd eftir þessa kulnuðu vonarstjörnu í bíó. Nýjasta mynd Shyamalans er framtíðarspennumynd- in After Earth þar sem hann teflir fram feðgunum Will og Jaden Smith í aðalhlutverkum. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Feðgar í framtíðarhremmingum Feðgarnir Will og Jaden Smith snúa bökum saman í After Earth þegar sonurinn þarf að manna sig upp í að bjarga málunum á meðan faðirinn liggur óvígur. Fjórir sjónhverfingamenn fremja bankarán af stakri snilld en yfirvöld ætla ekki að láta þá komast upp með brellur sínar.  Frumsýnd now You see me Fingralangir sjónhverfingamenn Leikstjórinn Louis Leterrier (The Transporter 1 og 2, Clash of the Titans, The Incredible Hulk) hefur smalað saman úr- valsmannskap í spennumynd- inni Now You See Me. Jesse Eisenberg, Woody Harrelson, Isla Fisher og Dave Franco leika sjónhverfingamenn sem fremja bankarán á meðan á sýningum þeirra stendur og gleðja síðan áhorfendur sína með því að gefa þeim ráns- fenginn. Útsendarar FBI og Interpol, sem Mark Ruffalo og Mélanie Laurent leika, eru á hælum þeirra. Það er þó ekki heiglum hent að átta sig á brögðum fjórmenninganna og eins og gefur að skilja er ekki allt sem sýnist. Gömlu brýnin Morgan Freeman og Michael Caine láta einnig til sín taka í mynd- inni þannig að ekkert er út á mannskapinn að setja í þessari mynd. Aðrir miðlar: Imdb: 7,4, Rotten Tomatoes: 42%, Metacritic: 50% Fáðu þér Sinalco og taktu þátt! PI PA R \T BW A • SÍ A • 1 30 88 1 Mundu að kíkja í tappann! Félagarnir Walter og Jesse hafa kokkað metamfetamín í sjónvarpinu við miklar vinsældir en nú nálgast endalokin.  soderbergh bYltingArkennd hugmYnd Vill sjá Breaking Bad klárast í bíó Átta þátta lokahnykkur hinna frábæru sjónvarpsþátta Breaking Bad, sem fjalla um krabbameinsveika efnafræði- kennarann Walter White sem drýgir lífeyri fjölskyldunnar með því að kokka metamfetamín, hefst í ágúst. Leikstjórinn Steven Soderbergh liggur ekki á skoðunum sínum frekar en venjulega þótt hann þykist vera að draga sig í hlé frá kvikmyndagerð. Hann kastaði nýlega fram þeirri hugmynd að síðustu tveir þættirnir af Breaking Bad verði sýndir saman sem bíómynd í kvikmynda- húsum. Soderbergh leggur til að þætt- irnir verði frumsýndir föstudaginn eftir að næst síðasti þátturinn fer í loftið. Soderbergh fullyrðir að það væri stórkostlegt að gefa áhorfendum kost á því að upplifa endalok þáttanna í hóp í bíósal. Hann efast ekki um að dæmið myndi ganga upp og aðsóknin yrði mögnuð. „Þetta hefur aldrei verið gert áður.“ SIRIUS (12) LAU - SUN: 17:50, 20:00, 22:10 SIGHTSEERS (16) LAU: 18:10, 20:00, 22:00 SUN: 18:00, 20:00, 22:00 SKÓLANEMAR: 25% AfSLáTTUR GEGN fRAMvíSUN SKíRTEINIS! MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711 Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t KjúKlingamáltíð fyrir 4 Grillaður kjúklingur – heill Franskar kartöflur – 500 g Kjúklingasósa – heit, 150 g Coke – 2 lítrar* *Coca-Cola, Coke Light eða Coke Zero 1990,- Verð aðeins + 1 flaska af 2 L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.