Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.06.2013, Blaðsíða 49

Fréttatíminn - 07.06.2013, Blaðsíða 49
heilsa 49Helgin 7.-9. júní 2013 Sem 3ja barna móðir, hlaupari /- þríþrauta- kona og hársnyrtir verð ég að passa vel upp á líkamann minn. Ég er rétt skriðinn yfir þrítugt, í líkamlega krefjandi vinnu og var farin að finna fyrir stirðleikum í liðum, sérstaklega fingrum og ökkla sem hefði getað komið niður á starfi og íþróttum. Sú tilfinning var óþægileg. En var svo heppin að fá ábendingu frá viðskiptavini um ágæti NutriLenk sem ég hef notað síðan með frábærum árangri. Fann árangur fljótt Ég ákvað að fjárfesta í bæði í Nutrilenk GOLD og ACTIVE og tók inn samkvæmt leiðbeining- um og strax á annarri viku var ég farin að finna gríðarlegan mun. Ökklarnir eru orðnir miklu betri, minni stirðleiki í fingrum, ég er ferskari í líkamanum og get stundað mitt sport án þess að finna fyrir verkjum og stirðleika. Nutrilenk verður tekið með morgunmatnum mínum um ókomin ár svo ég geti haldið áfram að lifa lífinu verkjalaus, sinnt börnunum mínum, starfinu og bætt mig í sportinu mínu.. Nutrilenk er fáanlegt í estum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna Skráðu þig á facebook síðuna Nutrilenk fyrir liðina - því getur fylgt heppni! Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is P R E N T U N .IS NUTRILENK Active • Eykur liðleika og sér til þess að lið- irnir séu heilbrigðir og vel smurðir. • Hjálpar liðunum að jafna sig eftir æfingar og átök. • Inniheldur vatnsmeðhöndlaðan hanakamb, hátt hlutfall af Hýalúrónsýru. NUTRILENK Gold • Fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski og slitnum liðum. • Unnið úr fisk- og hvalbrjóski, hátt hlutfall af kóntrótín súlfat. • Eitt mest selda fæðubótaefnið fyrir liðina á Íslandi síðastliðinn ár.    NUTRILENK - hollráð við liðkvillum. Náttúrleg bætiefni fyrir liðina NUTRILENK Active og NUTRILENK Gold eru efni sem geta unnið mjög vel saman fyrir fólk sem þjáist af liðverkjum. Liðheilsan skiptir mig miklu máli Ebba Særún Brynjarsdóttir Tofusteik á grillið Auður Ingibjörg Konráðsdóttir heilsukokkur hefur lengi einbeitt sér að heilsuréttum. „Ég fékk heiftar- legt ofnæmi þegar ég var að læra kokkinn og tók mataræðið í gegn. Það er til svo mikið af uppskriftum þar sem ekkert er spáð í hollustu. Mér finnst ekkert veita af því að hugsa um hollustuna,“ segir Auður. Hún hefur þegar gefið út tvær matreiðslu- bækur, Heilsudrykkir og Heilsusúpur og salöt. Þriðja bókin er væntanleg með haustinu, Heilsubakstur. „Það er alltaf hollur matur hjá mér. Hann er samt misjafnlega hollur. Ég fæ mér alveg „hamborgara“ og pitsu en ég geri holla grænmetisútgáfu,“ segir Auður. Hún deilir hér heilsuuppskriftum með lesendum Fréttatímans. Tofugrillsteik 1 pk stíft tofu Marinering: • 1 msk dijon sinnep • 2 msk hunang • 1 msk tómatpúrra • ½ dl tamari sósa • 1 dl sesamolía • ½ msk engiferrót, söxuð • 1 hvítlauksgeiri • 1 tsk reykt paprikuduft • Himalaya salt og cayenne pipar eftir smekk Kljúfa tofu í tvennt eftir endilöngu. Leggja á milli tveggja bretta og pressa vatnið úr. Setja hráefni í marineringu í blandara og mauka. Leggja tofusneiðar í marineringu og geyma í kæli yfir nótt. Grilla á heitu grilli þar til sneiðarnar brúnast fallega. Einnig má baka tofu- steikina í ofni við 190°C í um 25 mínútur. Grænmetisgrill • Olíublanda: • 1 dl sólblómaolía • Safi úr 1 sítrónu • 1 tsk timian • 1 tsk sjávarsalt • ½ tsk nýmalaður svartur pipar Blanda öllu saman. Skera uppáhalds grænmetið í sneiðar. Nota má t.d. rauðlauk, papriku, sveppi og kúrbít svo eitthvað sé nefnt. Pensla með olíublöndu og grilla á grilli eða steikja í ofni í um 30 mínútur við 190°C. Kókoskokteill • 2 dl kókosmjólk • 2 dl rísmjólk • 4 dl ananas safi • 2 tsk kókos- pálmasykur • 1/2 tsk van- illukorn • ¼ tsk múskat • Ísmolar Þeyta allt í blandara. Bera fram strax. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Auður leggur mikla áherslu á hollustu í eldamennsku.  Heilsa Miðstöð Heilsutengdra upplýsinga var opnuð í vikunni Nýtt Heilsutorg á netinu „Þetta er í raun gömul hugmynd sem nú er orðin að veruleika,“ segir Fríða Rún Þórðardóttir næringar- fræðingur um nýjan heilsuvef þar sem hún er einn þriggja ritstjóra. Vefurinn Heilsutorg.com er hugsaður sem mið- stöð fyrir alla flokka heilsutengdra upplýsinga. „Heilsutorg.com er lifandi vefur sem uppfærist daglega alla daga vikunnar allt árum um kring. Í byrjun munu yfir 20 sérfræðingar á ýmsum sviðum skrifa inn á vefinn að staðaldri en einnig verða gestapennar fengir til að skrifa um hin ýmsu málefni eftir tíðarandanum og því sem við á hverju sinni,“ segir hún. Fríða ákvað að slá til þegar hún sá Landlæknisembættið auglýsa til umsóknar styrki úr lýðheilsusjóði og fékk hún þar styrk sem var tileink- aður verkefnum sem áttu að snúast um heilsu og heilsueflingu. Heilsutorg.com er aðgengilegur í gegn um iPhone og Android-snjall- síma. Þá er boðið upp á lifandi efni í gegn um HeilsutorgTV sem Fríða segir að komi með nýja vídd inn í heilsuflóruna á Íslandi. -eh Vefurinn var form- lega opnaður í World Class á miðvikudag en þar hefur Fríða starfað til fjölda ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.