Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Síða 58
Rafmagnsmorðið
ný skemmtisaga eftir Val Vestan. — Meginefni sögunnar er á þessa leið:
Ung stúlka, sem var í „bransanum" finnst örend í herbergi sínu í Reykja-
vík einn morgun og sömuleiðis roskinn drykkjumaður. Líkskoðun leiðir í
ljós, að hjartaslag hefir orðið honum að bana. í fljótu bragði lítur út fyrir,
að rafplata hafi valdið dauða stúlkunnar, en við nánari athugun kernur í
ljós, að hún hefir verið myrt. En hver er morðinginn? — Lögreglan byrjar
nú eltingaleikinn — og Krummi, sem er hér ein aðalsöguhetjan eins og í
Týndi hellirinn, og Flóttinn frá París, fer einnig á stúfana. Lögreglan þykist
fljótt vera viss í sinni sök og handtekur ungan mann. En Krummi var ekki
sammála lögreglunni. Hann fór sínar eigin götur við rannsókn málsins og
leysti gátuna — en lausnin kom öllum á óvart. — Sagan er fjörlega skrifuð
og laus við allar málalengingar. Hún er svo spennandi, að maður les liana
í einni lotu.
Týndi hellirinn
heitir fyrsta skemmtisagan, sem kom út eftir Val Vestan.
Flóttinn frá París
var næsta skemmtisagan eftir Val Vestan, sem kont út á vegum Hjartaásút-
gáfunnar. — Hugmyndaauðgin er mikil í öllum sögunum og stíllinn lipur
og fjörlegur. — Báðar síðasttöldu sögurnar eru nú að heita má uppseldar.
H J ART AÁSÚTGÁF AN
hefir einnig gefið út nýlega eftirfarandi sögur:
Ástir Kleópötru
eftir Rider Haggard. Það er ógleymanleg ástarsaga.
Sál fallbvssanna
eftir sinn góðkunna norska höfund, Övre Richter Frich, sem er kunnastur
fyrir sögurnar um Jónas Field hetjuna miklu.
Bankaránið
eftir Leslie Charteris. Þetta er nýjasta sagan unt „Dýrlinginn“, hinn fífl-
cljarfa ævintýramann, refsivönd glæpamannanna.
Lífið að veði
amerísk skáldsaga, sem hlotið hefir óvenjulegar vinsældir. Inn i söguna er
ofið spennandi ástarævintýrum.
Hnefaleikarinn
er ein af skemmtilegustu sögiím skáldsagnasnillingsins Jack London. Þetta
er í senn unaðsleg ástarsaga og baráttusaga ungrar hnefaleikahetju.
Leyndardómur frumskóganna
segir frá hinum furðulegustu ævintýrum tveggja enskra ofurhuga og fylgd-
armanna þeirra í frumskógum Afríku.
HTARTAÁSÚTGÁFAN
/