Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.07.2013, Qupperneq 4

Fréttatíminn - 26.07.2013, Qupperneq 4
GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST BERIÐ SAMAN VERÐ OG GÆÐI Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 www.grillbudin.isOpið kl. 11 - 18 virka daga Opið kl. 11 - 16 laugardaga 42.900 Kraftmikið, meðfærilegt og frábærlega hannað 2ja brennara gasgrill fyrir heimiliðeða í ferðalagið VELDU GRILL SEM END IST OG ÞÚ SPARA R veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Hægur vindur, víða Hafgola, skýjað og þoka við sjóinn. Bjart og Hlýtt til landsins. HöfuðBorgarsvæðið: Hafgola og skýjað með köflum. Hægur vindur, Bjart að mestu. Hlýtt, en víða svöl Hafgola. HöfuðBorgarsvæðið: sólríkt framan af, en síðan skýjað. meira skýjað á landinu og kröftugar fjallaskúrir síðdegis. HöfuðBorgarsvæðið: skýjað að mestu og skúrir lítið lát á góðviðrinu Hlýtt loft er yfir landinu þessa dagana og við erum undir áhrifasvæði há- þrýstings sem gerir það að verkum að heiðskýrt sé að mestu. einnig hægur vindur. Það þýðir líka að þokan getur orðið þrálát við strendur. Á laugardag verður vindur þó aðeins s-stæður sem er hagstætt fyrir n- og a-land. Á sunnudag má síðan gera ráð fyrir síðdegisskúrum um leið og dregur úr mestu hlýindunum. 13 17 15 18 21 15 17 20 18 16 13 15 15 17 14 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is M ikil aðsókn er í læknanámið. Það eru 48 manns sem komast áfram á hverju ári og það hefur verið í umræðunni að fjölga þeim til þess að stemma stigu við læknaskorti en spítalinn ræður ekki við að taka fleiri í verklegt nám. Þar er hindrun því að það er ekki hægt að hlaða endalaust á þá lækna sem fyrir eru,“ segir Ólöf Birna Margrétardóttir, læknir á lyflækningasviði, sem nú er í fæðingarorlofi. Eftir þriggja ára bóklegt nám fara læknanemar í verklegt nám á Land- spítalanum. „Kennslan fer fram á deildum og ef álagið er þannig að læknarnir ná ekki að sinna sjúklingunum tímanlega þá bitnar það auðvi- tað á læknanemunum. Klárlega fá læknanemarnir slakari kennslu því að þeir verða út undan,“ segir Ólöf Birna. Ólöf Birna útskrifaðist árið 2009 og telur að starfsaðstæður hjá nýjum læknum hafi versnað mikið. Ástæður fyrir óánægju lækna segir hún vera ósamkeppnishæf laun sem og slæmar starfsaðstæður. Segir hún að sér- fræðilæknar sem hafa komið heim eftir nám stoppi nú styttra við á Íslandi vegna þess að Landspítalinn geti hvorki boðið upp á samkeppnishæf laun né sambærilegar starfsaðstæður sem leiði til þess að þeir fara út í vinnu. „Þeir sem eftir eru reynast okkur almennum læknum mjög vel. En þeir eru störfum hlaðnir, það er alveg sama að hverjum þú kemur. Þeir sinna ráðgjafarvinnu, sinna sínum eigin sjúklingum, eru með stofu úti í bæ og svo er mælst til þess að þeir sinni rann- sóknarstörfum sem er nánast ekkert svigrúm fyrir,“ segir Ólöf Birna Segir hún að álagið á spítalanum sé mikið hjá öllu starfs- fólkinu. „Manni finnst það liggja í augum uppi að eftir því sem álagið eykst þá hljóta að vera auknar líkur á mistökum, alveg sama á hvaða stigi þau eru, hvort sem það er hjá lækn- um, hjúkrunarfræðingum eða öðrum stéttum á spítalanum, það eru allir að hlaupa hraðar,“ segir Ólöf Birna Ólöf Birna hefur starfað á slysadeild og síðast á lyflækn- ingasviði og segir ástandið vera slæmt þar. „Það hefur gengið illa að manna stöður lækna og er það slæmt því að þeir læknar eru framlína spítalans. Nú eru þessi svið mönnuð meira og minna læknanemum í sumar. Það er bæði verið að láta fólk í stöðu sem það er ekki tilbúið í og verið að auka álag á sérfræðilækna og annað starfsfólk verulega. Ástæðan er að það er miklu meira álag fyrir sérfræðilækna að vera með óreyndar manneskjur á gólfinu,“ segir Ólöf Birna. „Búið er að verja fjármunum í að mennta lækna og það er synd að ekki sé betur hlúð að þeim. Íslenskir læknar þurfa að afla sér menntunar erlendis og við þurfum að fá þá heim, ekki bara til þess að manna heilbrigðiskerfið heldur til að fá til Íslands þekkingu, nýjungar og reynslu. Það þarf að viðhalda almennum upplýsingum og fræðslu um það sem er að gerast úti í heimi, það gerist ekki á meðan maður er hér á Íslandi,“ segir Ólöf Birna. „Landspítalinn er ekki samkeppnis- hæfur, hvorki hvað varðar laun, aðstæð- ur eða tækjakost fyrir lækna og það er synd að mennta lækna sem síðan sjá sér ekki fært að vinna hér á landi,“ segir Ólöf Birna Hún segir að hætta á læknaskorti í ýmsum sérgreinum sé yfirvofandi, til dæmis sé há prósenta heimilis- lækna að komast á aldur og ekki líti út fyrir að hægt verði að manna með nýliðun í stéttinni. maría elísabet Pallé maria@frettatiminn.is  HeilbrigðisMál Mjög slæMar starFsaðstæður Hjá læknuM Ekki er hægt að fjölga læknanemum Starfsaðstæður eru erfiðar hjá læknum á Landspítalanum og þeir leita annað. Ólöf Birna margrétardóttir unglæknir segir synd að ekki sé betur hlúð að læknum eftir að varið hefur verið fjármunum í menntun þeirra. ólöf Birna margrétar- dóttir, læknir á lyflækninga- sviði. Mynd/Hari róandi te úr kannabislaufunum karlmaður á fertugsaldri var nýverið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi austurlands fyrir að hafa á heimili sínu tæp 130 grömm af kannabis- laufum. maðurinn sagðist hafa notað efnin til að útbúa sér róandi te en ekki sem vímugjafa, að því er Austurfrétt greinir frá. Þar kemur fram að húsleit hafi verið gerð á heimili mannsins, bifreið hans og tveimur öðrum húsum sem hann hafði yfir að ráða eftir að lögreglu bárust ábendingar um að á heimili hans héngu kannabisplöntur „til þerris.“ „Í öðrum húsakynnum,“ segir enn fremur, „fundust sumarblóm sem héngu til þerris en kannabislaufin fundust í tveimur ílátum í eldhúsi á heimili mannsins. mað- urinn kvaðst hafa þegið laufin að gjöf en gaf ekki upp hvaðan. Hann áliti að þau inni- héldu ekki virkt efni og teldi þau fremur lyf heldur en fíkniefni. Hann notaði laufin til að laga sér róandi te úr þeim. Dómurinn taldi þessi rök „haldlausa vörn“ þar sem varsla á kannabisefnum, óháð notkun, er bönnuð á íslensku yfir- ráðasvæði. Var maðurinn því dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára og til greiðslu 460 þúsund króna í sakar- kostnað.“ - jh Hækkandi íbúðaverð Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum júní hækkaði um 1,8% frá fyrri mánuði. Tólf mánaða hækkun vísitölunnar er 6,9% að nafnvirði og 3,4% að raunvirði, að því er fram kemur hjá Hagfræðideild landsbankans. Vísitala leiguverð íbúðar- húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hækkaði minna milli mánaða eða um 0,9%. - jh dýraverndarinn kemur út eftir þrjátíu ára hlé Dýraverndarinn, tímarit dýravina á íslandi hefur verið endurvakið en útgáfa þess hefur legið niðri í þrjátíu ár. Dýraverndarinn kom reglulega út í tæplega sjötíu ár, fram til 1983 en þá varð hlé á útgáfunni. Dýraverndarsam- band íslands gefur ritið út og er stefnt að útgáfu þess vor og haust ár hvert. „Ég hef frétt af fólki, sér- staklega sem komið er á efri ár og man eftir blaðinu, sem gleðst mjög yfir að heyra af útgáfunni. Blaðið var fastur hluti af heimilislífi margra og þess jafnan beðið með óþreyju. Gömul kona á Vesturlandi mun hafa tárast af gleði við fréttirnar, sem sýnir áhrif blaðsins í bernsku hennar,“ segir Hallgerður Hauksdóttir, ritstjóri Dýraverndarans. Fyrstu dýraverndarlögin sem sett voru á Íslandi voru samin fyrir tilstuðlan Tryggva Gunnarssonar, föður Dýraverndarans, og samþykkt nær óbreytt á Alþingi árið 1915. „Tímaritið var vettvangur ýmissa ritsmíða tengdum dýrum, svo sem greina og frétta ásamt ljóðum og sögum sem annars hefðu ekki orðið, en ritstjórar þess leituðu textasmíða hjá skáldum og rithöfundum á sínum tíma. Við munum leitast við að halda þeim gildum á lofti sem blaðið ætíð stóð fyrir, að vera rödd dýra og dýravina á Íslandi. Allir sem vilja geta sent greinar og annað efni til blaðsins,“ segir Hallgerður. -dhe Hallgerður Hauks dóttir, ritstjóri Dýra- verndarans. Dýraverndarinn Dýravernd í fortíð og framtíð Ill meðferð á íslenska hestinum Geta öll dýrin í skóginum verið vinir ? Tímarit dýravina á Íslandi. 70. árgangur , 1. tbl 2013. Verð 1.299 kr. Dýraverndarsamband íslands hefur endurvakið útgáfu tímaritsins Dýraverndarinn. 4 fréttir Helgin 26.-28. júlí 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.