Fréttatíminn - 26.07.2013, Qupperneq 10
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
H Hvalir eru verðmæti við Íslandsstrendur. Þeir hafa lengi verið veiddir en í seinni tíð frekar skoðaðir af ferðamönnum. Hvala-skoðun er atvinnugrein í sókn, hvalveiðar eru atvinnugrein í krappri vörn, á undan-
haldi sem vart verður stöðvað. Til lengri
tíma litið verður ekki annað séð en hvala-
skoðun muni gefa miklu meira af sér til
þjóðarbúsins en hvalveiðar sem virðist
haldið gangandi af þrákelkni,
að minnsta kosti hvað stór-
hvelaveiðar varðar.
Reynt hefur verið að reka
þessar greinar hlið við hlið,
þ.e, hrefnuveiðar og hvala-
skoðun, en þar er svo að
sjá sem stjórnvöld dragi
fremur taug veiðimanna en
skoðunarfyrirtækja. Samtök
ferðaþjónustunnar fordæmdu
á dögunum þá ákvörðun sjáv-
arútvegsráðherra að minnka
án samráðs hvalaskoðunarsvæði í Faxa-
flóa. Í ályktun samtakanna, í framhaldi af
ákvörðun ráðherrans, sagði að hvalaskoð-
un væri stærsta auðlind ferðaþjónustunnar
á höfuðborgarsvæðinu með árlega veltu
upp á tæpan milljarð króna, atvinnuvegur
sem skapaði í umhverfi sínu hundruð
starfa. „Með ákvörðun sjávarútvegsráð-
herra er hagsmunum og framtíð greinar-
innar fórnað fyrir sérhagsmuni örfárra ein-
staklinga sem hafa takmarkaðar tekjur af
hrefnuveiðum,“ sagði meðal annars.
Hvalaskoðun hefur einnig verið í örum
vexti norðanlands, og víðar um land, en
segja má að miðstöð hvalaskoðunar nyrðra
sé Húsavík enda er Skjálfandi kjörinn til
hvalaskoðunar. Lítið hefur hins vegar sést
til hrefnu norður af landi í sumar og segir
Hörður Sigurbjarnarson, skipstjóri og eig-
andi hvalaskoðunarfyrirtækisins Norður-
siglingar á Húsavík, í viðtali við Morgun-
blaðið að það megi rekja til hrefnuveiða
en hrefnuveiðimenn segja fæðuframboð
fremur ráða. Hörður segir hvalaskoðunar-
fyrirtækin nyrðra standa heilshugar með
kollegum í Reykjavík um að þeir fái stærra
friðað svæði og hafi „vitað af þessari ógn
sem verður allt í einu að veruleika í sumar;
að það kemur hrefnuveiðiskip hérna og
fer að skjóta hrefnurnar rétt við skoðunar-
svæðin okkar.“ Hörður segir að ferðaþjón-
ustuaðilar hafi talað fyrir daufum eyrum
þrátt fyrir að hrefnuskoðun hafi verið
gríðarlega stór þáttur í ferðaþjónustunni,
beðist hafi verið vægðar hjá ráðherra
eftir ráðherra. Hörður segir að skoðunar-
fyrirtækin fari ekki fram á að hrefnuveiði
verði bönnuð, þau bendi hins vegar á að
núverandi fyrirkomulag muni eyðileggja
hrefnuskoðun nema friðuðu svæðin verði
stækkuð. Þær hrefnur sem veiddar hafa
verið og skipta hundruðum síðustu ár, verði
ekki skoðaðar.
Það er því ekki af tilfinningalegum
ástæðum sem endurskoðunar er þörf
heldur efnahagslegum. Hrefnuskoðun er
verðmætari atvinnugrein en hrefnuveiðar.
Stórhvelaveiðum er sjálfhætt ef ekki er
hægt að selja afurðirnar. Fraktskip kom til
baka til Reykjavíkur í vikubyrjun með sex
gáma af langreyðarkjöti en ekki hafði tekist
að koma kjötinu á markað. Skipafélagið
Samskip hafði flutt kjötið til Rotterdam en
mætti þar tregðu hafnaryfirvalda við að
umskipa hvalkjötinu. Fulltrúi Samskipa
lýsti því yfir að sjálfhætt væri þessum flutn-
ingum því hafnir sem hvalkjötið hefur verið
flutt til hafi sett bann á þessar afurðir.
Jónas Kristjánsson ritstjóri lýsti þessum
tveimur hliðum hvalamála með eftirfarandi
hætti: „Hvalaskoðun er bisness, sem gefur
evrur, alvörupening. Ekki skrípó eins og
flótti á hvalkjöti undir dulnefni milli hafna
við Norðursjó. Kjötinu var svo snúið aftur
til Íslands. Verðlaus afurð, sem enginn
vill flytja, enginn vill geyma og enginn
vill kaupa. Hrefnan er skrípó. Hvalveiðar
eru að vísu ekki ógnun við náttúru, heldur
ógnun við bisness.“
Þegar upp er staðið snýst málið um þetta.
Það er arðvænlegra að skoða hvali en veiða,
sýna þessar skepnur við Íslandsstrendur
áhugasömum ferðamönnum, innlendum
en einkum erlendum sem skilja fyrir vikið
eftir dýrmætan gjaldeyri, meira fé en fæst
fyrir hrefnukjöt, svo ekki sé minnst á lang-
reyðarkjöt sem flutt er fram og til baka með
skipum og safnast fyrir í frystigeymslum.
Þegar deilt er um svæði sem veiðimenn
og skoðunarfyrirtæki sækja á verður að for-
gangsraða í þjóðarþágu, minni hagsmunir
verða að víkja fyrir meiri.
Skoðunar- eða veiðisvæði hvala
Minni hagsmunir víki fyrir meiri
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Óstöðvandi
Mér finnst þetta afar gaman og ég vonast
til að keppa áfram næstu árin og að
sjálfsögðu langar mig að bæta mig enn
frekar en orðið er.
Aníta Hinriksdóttir lét engan Íslending
ósnortinn með frábærum árangri á
hlaupabrautinni þar sem hún landaði
heims- og Evrópumeistaratitlum í 800
metra hlaupi.
Alltaf í boltanum
Ég man varla eftir meiri afleik
hjá stjórnmálamanni.
Sigurjón M. Egilsson, verð-
launablaðamaður á Sprengi-
sandi á Bylgjunni, var gáttaður
á ummælum Þorbjargar Helgu
Vigfúsdóttur, borgarfulltrúa, í Nýju lífi
um veikindi Ólafs F. Magnússonar.
Minni um gullfisk
Þeim væri nær að æfa sig betur í fótbolta
en að vera að kvelja dýr.
Svíinn Ludvig Lindstrom er ekki par
ánægður með að Sigurwin, lukkudýr ís-
lenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu,
sé látið dúsa í krukku og eigi jafnvel yfir
höfði sér klósettferð vegna taps liðsins
gegn sænskum boltastelpum.
Er hægt að nefna nöfn?
Það eru margir sem hafa komið að máli við
mig og skorað á mig að fara í fyrsta sætið
hjá Framsóknarflokknum í Reykjavík.
Óskar Bergsson, fyrrverandi borgar-
fulltrúi, útilokar ekki endurkomu
í borgarpólitíkina. Vegna fjölda
áskorana.
Er þetta ekki orðið þreytandi?
Þetta er bara bull eins og venjulega.
Bjarni Ármannsson fjárfestir hafnar
alfarið aðkomu að kaupum á skulda-
bréfi Orkuveitu Reykjavíkur.
Hjá þessum eina smitaða
Hjá hverjum eru allar þessar íslensku
dömur að sofa?
Sóley Björk Stefánsdóttir, ritstjóri
vefmiðilsins Akureyrivikublad.is,
furðar sig á frétt um tíðni klamydíu hjá
íslenskum konum en þar komu karlmenn
lítið sem ekkert við sögu.
Trúarleg stólpípa
Ég hef hugsað málið mjög
vandlega! Ég vil alls ekki
moskur á Íslandi.
Jónína Benediktsdóttir mót-
mælti fyrirhugaðri moskubygg-
ingu harðlega á Facebook.
Ókei, bæ
Ég hef ekkert við þig að ræða þannig að
við skulum bara ljúka þessu samtali.
Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir, eigandi
365, hafði nákvæmlega engan áhuga
á því að ræða hugsanlega sölu á fjöl-
miðlarisanum við Inga Frey Vilhjálms-
son, blaðamann á DV.
Vikan sem Var
PI
PA
R\
TB
W
A
-S
ÍA
-
1
3
1
9
5
5
Vinur við veginn
11 kg
2 kg
5 kg
10 kg
Smellugas fyrir
grillið, útileguna
og heimilið
Einfalt, öruggt og þægilegt!
Smellugas
DY
N
AM
O
R
EY
KJ
AV
ÍK
1. SÆTI
BÓKSÖLULISTIN
N - ALLAR BÆKU
R
VIKUM SAMAN
Í FYRSTA SÆTI!
SJARMA
SPRENGJA
SUMARSINS!
„Á SKILIÐ AÐ
VERÐA SUMAR-
SMELLUR!“
★★★★★
„Stórkostleg saga.
Hún grætir og kætir.“
– Kristjana Guðbrandsdóttir,
DV
„Ekki láta sumarið líða
án þess að lesa Maður
sem heitir Ove ... í senn
hrífandi og fyndin.“
– Kolbrún Bergþórsdóttir,
Morgunblaðinu
„Einfaldlega
hrein
dásemd“
– Kolbrún Bergþórsdóttir, Morgunblaðinu
– Kolbrún Bergþórsdóttir, Mbl.
„Feykiskemmtile
g“
– FRIÐRIKA BENÓNÝ
S,
FRÉTTABLAÐINU
10 viðhorf Helgin 26.-28. júlí 2013