Fréttatíminn - 26.07.2013, Page 28
28 bílar Helgin 26.-28. júlí 2013
Fáðu meira
út úr Fríinu
Viltu afslátt af hótelgistingu,
ókeypis morgunmat eða Frítt
Freyðivín upp á herbergi?
bókaðu sértilboð á gistingu,
ódýr hótel og bílaleigubíla
út um allan heim á túristi.is
T Ú R I S T I
Skvetta er skrímsli í
krapinu og svellköld,
líkt og flest kvenkyns ís-
skrímsli. Hún hefur verið virk í
starfi femínísa um langt skeið
og er mikið samkvæmisljón.
Hún veit fátt skemmtilegra
en vel heppnaða ísveislu í
góðra skrímsla hópi — og
á það til að slá upp veislu
í nálægum frystikistum.
Hún er ekki öll
þar sem hún er
séð, enda erfði
hún viðskiptavit föður
síns, sem var ákaflega
virt og dáð lakkrísbindi,
sem og skipulags-
kunnáttu móður sinnar,
sem var finnsk
eistnesk snjóblásturs-
vél. Hún stundar jöklajóga
af miklum krafti og er
áhugasöm um
verndun hins
íslenska
íspinnastofns.
Leiktu
við skr
ímslin
á
www.k
joris.is
/skrim
sli
Þ etta er hinn fullkomni pæjubíll,“ hugsaði ég þegar ég settist undir stýri á nýrri
kynslóð Lexus IS sem ég fékk
í prufuakstur á dögunum. Bara
handsaumaða leðurstýrið eitt og
sér fékk mig til að finnast ég vera
ögn meira „glamorous“ en venju-
lega og aðsniðnu leðursætin juku
enn á þá tilfinningu. Hún náði síðan
hámarki þegar ég ók af stað, hljóð-
laust, því bíllinn sem ég prófaði er
með svokallaða hybrid-vél, sem nýtir
rafmagn að hluta til að knýja bílinn.
Meira um það á eftir.
Mér hafði verið bent á að prófa
endilega sport-takkann á bílnum,
sem ég og gerði. Og viti menn: bíll-
inn breyttist í sportbíl. Þegar ég
gaf í tók vélin heldur betur við sér,
skipti sjálfkrafa og áreynslulaust
af rafmagninu yfir í bensínið, enda
rafmagninu einungis ætlað að knýja
bílinn upp að 65 km hraða á klukku-
stund en þá tekur bensínvélin við.
Bíllinn liggur sérstaklega vel við akstri, jafnt í
hægri borgarumferð sem í hraðari akstri á vegum
úti. Það sem mér fannst einna helst einkenna
Lexusinn var lítill hávaði hjá vélinni, jafnvel þótt
bensínvélin væri í gangi, og veghljóð var að sama
skapi mjög lítið.
Bíllinn er búinn öllum mögulegum „lúxusfídus-
um“, svo sem rafmagsstilltum sætum, skynjurum
að framan og aftan, bakkmyndavél, sjö tommu
litaskjá með þráðlausri tengingu við farsíma og öfl-
ugum hljómflutningstækjum svo fátt eitt sé nefnt.
Í mælaborðinu birtast allar þær
upplýsingar sem þörf er á, meira
að segja heiti laga sem verið er að
hlusta á þannig að bílstjórinn þarf
aldrei að gjóa augunum annað.
Ennfremur eru allir takkar og
stillingar innan seilingar, þeir helstu
í stýrinu.
Þó svo að bíllinn sé mikill pæjubíll
er gert ráð fyrir því að börn þurfi að
ferðast í honum – því flestar pæjur
eru líka mömmur. ISOFIX festingar
fyrir barnastóla eru mjög aðgengi-
legar og gátu tveir fimm ára drengir,
sem fengu að koma á rúntinn í fína
bílnum, auðveldlega fest beltin sín
sjálfir. Skottið er rúmgott þrátt fyrir
að Hybrid-rafhlaðan sé geymd undir
því. Auðvelt er að komast inn og út
úr bílnum þótt hann sé tiltölulega
lágur.
Af því að við pæjur erum svo um-
hverfislega þenkjandi – og vegna
þess að við gleðjumst síður en svo
þegar við reiðum fram á annan tug
þúsunda í hvert sinn sem við fyllum bensíntankinn
– þá er þessi nýja Hybrid-tækni algerlega málið.
Lexus var fyrsti lúxusbíllinn til að tileinka sér
tæknina sem hefur fest sig í sessi undanfarin ár og
er notuð í æ fleiri bíla og nýtur vaxandi vinsælla
meðal hagsýnna bílaeigenda. Hybrid-tæknin gerir
það að verkum að eyðsla Lexusins er ekki nema
4,3 lítrar af eldsneyti á hverja hundrað kílómetra,
sem er eins og eyðslugrannur smábíll. Munurinn er
bara sá að hér erum við komin með eyðslugrannan
lúxusbíl – fyrir pæjur.
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@ frettatiminn.is
ReynsluakstuR lexus Is 300h
Myndir/Teitur
Eyðslugrannur
lúxusbíll fyrir pæjur
Ný kynslóð Lexus IS er kominn á markað og er fáanlegur með Hybrid-tækninni sem gerir hann
að eyðslugrönnum lúxusbíl. Vönduð innrétting og hönnun auk þess hve fimur hann er í akstri
gerir hann ennfremur að hinum fullkomna pæjubíl.
Plúsar
+ Fallegur að innan og utan.
+ Eyðir litlu.
+ Góður í akstri.
Mínusar
÷ Hátt verð.
Helstu upplýsingar
IS 300h
Hámarks afköst (DIN hö): 223
CO2 blandaður akstur (g/km): 99*
Blandaður akstur (l/100km): 4.3*
Hröðun 0-100 km/klst.: 8.3
Hámarkshraði (km/klst): 200
* Tölurnar miðast við IS 300h Eco