Fréttatíminn - 26.07.2013, Page 60
Hvað:
Fótboltamót
Hvenær:
Laugardagur
Klukkan:
15.15
Á laugardeg-
inum verður haldið
fótboltamót þar sem
keppt verður í tveimur
aldursflokkum, sex til
fjórtán ára og fimmtán
ára og eldri. Opnað verður
fyrir skráningu klukkan
15.15 á laugardeginum og
mun hún standa í sólar-
hring. Skráningin fer fram
í salnum en mótið sjálft
verður á battavellinum.
Fyrirkomulagið verður á
þann hátt að fimm leik-
menn eru í hverju liði en
fjórir spila inni á vellinum
í hvert sinn. Liðin verða
kynjablönduð og verður
bikar í verðlaun í aldurs-
flokkunum tveimur.
Kristján Davíð hjá
knattspyrnufélagi SÁÁ
hefur umsjón með mótinu
og segir hann markmiðið
að hafa gaman, skapa
góða stemningu og spila
saman fótbolta. „Ef ein-
hverja vantar fleiri í sitt lið
er um að gera að koma til
mín og ég finn þá fólk sem
vill slást í hópinn svo liðið
verði fullskipað.“
A
rnþór Jónsson var kjörinn for-
maður SÁÁ fyrr í sumar en hafði
áður starfað innan stjórnar sam-
takanna í sautján ár. Arnþór er
Vesturbæingur sem hætti í MR
og hélt til Englands nítján ára gamall í tónlistar-
nám og var síðar fastráðinn sellóleikari hjá Sin-
fóníuhljómsveit Íslands í nokkur ár. Eftir alvar-
legt bílslys tók Arnþór sér launalaust leyfi frá
Sinfóníunni og heillaðist á þeim tíma af tölvu-
tækninni og var svo árið 1993 meðal stofnenda
fyrsta internetfyrirtækisins á Íslandi sem hét
Miðheimar. „Þetta voru sérstakir tímar. Fólk
skyldi ekki alveg hvað við vorum að tala um og
hvað við vorum að selja; að tengja saman tölvur
og eiga í samskiptum í gegnum þær var fram-
andi tækni árið 1993. Sumir voru samt fljótir að
grípa þetta og það var virkilega gaman að vera
fyrstir á þessum markaði.“
Arnþór er mikill hjólreiðagarpur og hjólar
nær daglega. „Ég hjóla yfirleitt í vinnuna en
annars tek ég einn hring í kringum borgina,
svona þrjátíu kílómetra. Það er miklu betra en
að hamast inni við á hlaupabretti. Maður fær
súrefni, D-vítamín, sólskin og birtu. Arnþór
segir lítið mál að hjóla yfir vetrartímann. Allt
sem til þurfi séu vettlingar, lambhúshetta og
varkárni í snjónum.
Að sögn formannsins eru helstu verkefnin
framundan að veita daglega þá þjónustu sem
þörf er á því ekkert lát sé á eftirspurninni.
Einnig blasi við að ráðast verði í endurbætur á
húsnæði Vogs. „Sjúkrahúsið Vogur verður þrjá-
tíu ára í desember. Húsnæðið er gott og þar er
gott að vera en byggingin er þó barn síns tíma.
Við þurfum að ráðst í nauðsynlegar endurbætur
á vaktinni, koma lyfjaumsýslu í öruggt skjól og
fjölga herbergjum en þeim sjúklingum á Vogi
hefur fjölgað mikið sem eru eldri og veikari og
jafnvel hreyfihamlaðir og þarfnast sérstakrar
aðhlynningar.“ Þá sé fjölskyldu- og barnaþjón-
usta SÁÁ mikilvæg þjónusta sem þarf að efla og
þróa áfram og mikið enn óunnið í réttindabar-
áttu alkóhólista.
Edrú-hátíðin hefur verið haldin í 25 ár og
er í miklu uppáhaldi hjá formanninum. „Þetta
er frábær hátíð fyrir fjölskyldu- og barnafólk.
Þarna getur maður verið alveg áhyggjulaus
með krakkana sína og allir hjálpast að. Í ár verð-
ur frábær dagskrá fyrir alla, unga sem aldna.
Það getur eiginlega ekkert klikkað og veðrið
verður líka gott. Sólin á eftir að skína á okkur
og í hjörtum okkar þessa daga.“
Útilegulög við
varðeld
Hvað: Brennusöngur
Hvenær: Sunnudagur
Klukkan: 23.00
„Við syngjum þessi klassísku útilegulög
eins og Óbyggðirnar kalla, Á Sprengi-
sandi og Kveikjum eld. Lagið Ég er kominn
heim er líka alltaf ómissandi í fjöldasöng,“
segir Valgeir Skagfjörð sem mun stjórna
brennusöng á sunnudagskvöld. „Fólk fær
svo textana á prentuðu formi svo það ætti
ekki mikið að reka í vörðurnar.“
Hvað: Heilsusetur Þykkvabæjar
Hvenær: Laugardegi og sunnudegi
Klukkan: 11-15 á laugard og 12-15 á sunnud.
Heilsusetur Þykkvabæjar verður með aðstöðu
innandyra á Edrú-hátíðinni og mun bjóða upp
á margvíslega þjónustu, svo sem herðanudd,
heilun, regndropa- og natmeðferðir, orku-
punktajöfnun ásamt höfuðbeina- og spjald-
hryggsmeðferðum fyrir börn og fullorðna. „Við
verðum þarna sex frá heilsusetrinu Þykkvabæ
með nuddbekki og annað tilheyrandi,“ segir
Brynja Rúnarsdóttir.
Herðanuddið mun taka fimmtán til tuttugu
mínútur og kosta þrjú þúsund krónur. „Fólk
getur komið til okkar, sest á stól og fengið gott
nudd fyrir herðar og aðeins niður á bak,“ segir
Heilsusetrið Þykkvabæ flytur á Laugaland
Brynja. Einnig verður boðið upp á heilun sem
tekur klukkutíma og kostar fimm þúsund krónur.
Að sögn Brynju er heilun náttúruleg aðferð til
að stilla orkustöðvarnar og hefur áhrif á orku og
tilfinningar fólks þar sem handayfirlögn er beitt.
„Við bjóðum einnig upp á nat- og regndropa-
meðferðir. Sú fyrrnefnda byggist á því að olíur er
settar efst á bak, á háls og hnakka og vinna inn
á taugakerfið. Regndropameðferðin er aðeins
viðameiri en í henni eru notaðar níu tegundir af
olíum sem fyrst eru settar á fætur og svo á bak
með nuddi. Regndropameðferðinni lýkur svo
með heitum bökstrum og slökun. Hún er góð
fyrir bæði stoð- og ónæmiskerfið.“ Natmeðferðin
kostar fimm þúsund krónur en regndropameð-
ferðin átta þúsund. Á laugardeginum klukkan
13:00 verður boðið upp á ilmkjarnaolíukynningu.
Örviðtal
Hekla Jósefsdóttir
Hvað er það besta við Edrúhátíðina?
Kærleiksandinn.
Hvað er mikilvægast í lífinu?
Synir mínir.
Hvernig er veðrið?
Veðrið er lygilega gott.
Fótboltamót á battavellinum
NýkjöriNN FormAður SÁÁ Leikur Á SeLLó og HjóLAr dAgLegA
Sólin á eftir að skína
á edrú-hátíðinni
Sigurvegarinn
syngur með hljóm-
sveit kvöldsins
Hvað: Söngkeppni barna
Hvenær: Sunnudagur
Klukkan: 16.00
Valgeir Skagfjörð hefur umsjón með
Söngkeppni barna sem fram fer á
sunnudagskvöld. Keppnin er öllum opin
og fer skráning fram á staðnum. „Börnin
koma með undirleik með sér eða syngja
án undirleiks. Svo get ég líka spilað undir
er því er að skipta,“ segir Valgeir. Auk
verðlauna fær sigurvegarinn í keppninni
að syngja með hljómsveit kvöldsins.
4 EDRÚ VERSLUNARMANNAHELGINA 2.-5. ÁGÚST 2013