Fréttatíminn - 23.08.2013, Side 10
www.volkswagen.is
Evrópu- og heimsmeistari
Volkswagen Golf var kosinn bíll ársins í Evrópu 2013 á
bílasýningunni í Genf og 66 bílablaðamenn hvaðanæva að
útnefndu hann bíl ársins í heiminum á bílasýningunni í New York.
Velkomin í reynsluakstur í HEKLU og hjá umboðsmönnum um land allt
Nýr Golf kostar frá
3.540.000 kr.
Golf Trendline, 1.4 TSI, beinskiptur, 122 hestöfl.
Volkswagen Golf eyðir aðeins frá 3,8 l/100 km HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Í gegnum tíðina hafa verið meiri fordómar gagnvart drykkju kvenna og því fleira sem hamlar þeim en körlum að viður-
kenna vandann og leita sér aðstoðar,“ segir
Valgerður Rúnarsdóttir, læknir hjá SÁÁ.
Ríflega tvöfalt fleiri konur voru lagðar inn á
Vog í fyrra en árið 2009. Samkvæmt könnun
Capacent á drykkju kvenna tímabilið 2003 til
2013 drekkur um það til tíundi hluti kvenna
eitt til tvö glös af léttvíni á dag. Að sögn Val-
gerðar fylgir því oft mikil skömm að leita sér
aðstoðar vegna áfengisneyslu og að skömmin
geti verið meiri hjá konum en körlum þó
það sé ekki algilt. „Oft eru þetta fullorðnar
konur sem eru orðnar ömmur og finnst því
ekki passa að skilgreina sig sem alkóhólista.
Áfengisneysla þeirra getur valdið pirringi hjá
börnum þeirra sem eru orðin fullorðin og svo
eru komin barnabörn,“ segir Valgerður en
bætir við að yfirleitt sé það þó þannig að for-
dómarnir séu mestir hjá sjúklingunum sjálf-
um. „Það er alltaf mikilvægt að viðurkenna
vandann og tala um hann.“
Veikindi tengd neyslu
Valgerður segir fullorðnar konur sem drekka
mikið oft vera mjög veikar vegna neyslunnar
án þess að gera sér grein fyrir því að hún
sé orsökin og missi niður vitræna getu sem
aukið geti við afneitun. Slíkt feli vandann enn
meira. „Þær eru oft orðnar mjög veikar í lifr-
inni, með magabólgur og detta og meiða sig.
Margt fólk, bæði konur og karlar, er oft orðið
mjög veikt þegar það leitar sér fyrst aðstoðar.
„Margir okkar sjúklinga koma frá spítalanum
eftir að hafa leitað þangað vegna afleiðinga
áfengisneyslu. Fólk á að gera eitthvað í vand-
anum áður en það lendir á sjúkrahúsi.“
Auking á daglegri neyslu
„Áfengisvandi er stærsti fíknivandinn og
veldur mestum skaða,“ segir Valgerður og
bendir á að sull eða dagleg neysla áfengis hafi
aukist mikið á Íslandi á síðastliðnum fimmtán
árum. Samkvæmt tölum SÁÁ fyrir síðasta
ár voru þrjátíu og sjö prósent sjúklinga Vogs
dagdrykkjufólk. Árið 2004 var hlutfallið
sextán prósent.
Áfengisneysla er almennari en áður og er
bjór stór hluti af neyslunni. Valgerður tekur
sem dæmi að almennt sé viðhorfið gagnvart
því að fá sér einn bjór yfir sjónvarpsþætti
það að slíkt sé innan marka en ef einhver fær
einfaldan gin yfir sjónvarpinu þyki það mikið.
Í þeim tilfellum þar sem stór, sterkur bjór er
drukkinn er áfengismagnið í honum meira
en í einföldum gin. „Á tímabili var mikil
umræða um að sterkir drykkir væru orsök
ofdrykkju og að lausnin væri að bjóða frekar
upp á léttvín en þarna er það sama á ferðinni,“
segir hún.
Fyrstu merki áfengisvanda
er eigin skömm
Valgerður segir fyrsta merki þess að um
áfengisvanda sé að ræða að það hvarfli að
fólki sjálfu að það drekki of mikið eða að
nákomnir hafi orð á því. „Þegar maður sjálfur
er óánægður með drykkjuna hjá sér er líklegt
að um vanda sé að ræða. Til dæmis þegar
drukknir eru þrír bjórar þegar ætlunin er að
drekka einn. Þá er voða skrítið að halda sig
ekki bara við einn og þá gæti verið einhver
skýring sem vert er að skoða.“
Í Von, húsi SÁÁ, við Efstaleiti í Reykjavík
geta aðstandendur sótt leiðbeiningar frá ráð-
gjöfum og segir Valgerður oft gott að tala
við einhvern utanaðkomandi sem ekki er í
fjölskyldunni. Bæði er hægt að mæta í Von
án fyrirvara eða panta tíma. Við Efstaleiti
og á Akureyri rekur SÁÁ göngudeildir og er
algengt að fólk leiti sér fyrst upplýsinga og
aðstoðar þar og í mörgum tilvikum er hægt
að leysa vandann án þess að til innritunar á
Vog þurfi að koma.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Velferðarmál TVöfalT fleiri konur á Vogi nú en árið 2009
Fordómar gagnvart drykkju kvenna
Á undanförnum árum hefur áfengisneysla Íslendinga aukist og eru konur þar engin undantekning. Meiri fordómar ríkja í samfélaginu gagnvart drykkju kvenna en
karla en oft eru fordómarnir mestir hjá sjúklingunum sjálfum sem þykir það ekki passa við móður- eða ömmuhlutverkið að vera skilgreind sem alkóhólisti.
Um það bil 10% kvenna drekkur eitt til tvö glös af léttvíni á dag og hefur það hlutfall haldist frá árinu 2007. Samkvæmt könnun Capacent. 1,5% kvenna drekka 3 eða fleiri á dag árið 2013.
40%
30%
20%
10%
0%
Hlutfall
dagdrykkjufólks í
sjúklingahópnum á
Sjúkrahúsinu Vogi
2004 2012
Valgerður Rúnarsdóttir, læknir hjá SÁÁ, segir meiri fordóma gagnvart ofdrykkju kvenna en karla og að
það geti hindrað konur frá því að leita sér aðstoðar. Mynd/Hari.
10 fréttir Helgin 23.-25. ágúst 2013