Fréttatíminn - 23.08.2013, Qupperneq 14
Listkennsludeild Listaháskólans
býður uppá námskeið á
meistarastigi fyrir starfandi
listgreina kennara og listafólk
sem vill sækja sér símenntun.
– Listir og sjálfbærni
– Rödd - spuni- tjáning
– Skapandi skrif
– Rafmögnuð tónlist
– Listkennsla nemenda
með sérþarfir
– Námsefnisgerð
– Fræðsla fullorðinna
– Skapandi leiðir
í píanókennslu
– Bókagerð
– Myndrænt leikhús/
hlutaleikhús
Allar nánari upplýsingar um námskeiðin,
og umsóknareyðublað er að finna á lhi.is
Opin námskeið
í list kennslu
deild
námskeið á haustönn 2013
Lífið er gott
Skúli Mogensen athafnamaður
svaraði spurningu blaðamanns DV um
samband hans og sjónvarpskonunnar
Friðriku Hjördísar Geirsdóttur.
Rangar spurningar á röngum
tíma
Þetta viðtal á að vera um peninga-
stefnuna.
Á kynningarfundi um vaxtaákvörðun
Seðlabankans í vikunni fékk Arnór
Sighvatsson aðstoðar seðlabankastjóri
spurningar um símtal Davíðs
Oddssonar og Geirs Haarde frá 6.
október 2008, þar sem ákvörðun um
neyðarlán til Kaupþings var tekin.
Velkominn til samtímans!
Það er móðgun við Íslandssöguna og
alveg sérstaklega við Vestmannaeyinga
sem minnast hryllingsins 16. til 18. júlí
1627, þegar allt líf á staðnum var lagt
í rúst, hátt í 250 teknir fastir og tugir
drepnir.
Borgarstjórinn fyrrverandi, Ólafur
F. Magnússon, hefur áhyggjur af
fyrirhugaðri byggingu mosku í
Reykjavík og setur hana í samhengi
við Tyrkjaránið.
Og var vart á bætandi
Þegar það kemur hins vegar að
ímynd vörumerkis, trausts og annara
þátta sem þeir eru að mínu mati að
vanmeta, þá mun þetta hafa mjög
slæm áhrif til lengri tíma.
Jakob Ómarsson er ósáttur við
framsetningu 365-miðla á tilboði
á áskrift að enska boltanum og
nettengingu.
Vikan sem Var
Börn á Íslandi alast upp við að fara í sturtu með öðru fólki og sjá allskonar líkama.
Við erum allskonar
s tundum hugsa ég um hvað við erum heppin hér á Íslandi að allir afklæð-ast og fara saman í sturtu áður en
þeir fara í sund. Ég heyrði fyrir skömmu af
bandarískri stúlku sem var hér í sumar-
leyfi og fór í sund með foreldrum
sínum. Barnið var hins vegar alveg
miður sín eftir sundferðina því
þar hafði hún séð fullt af nöktum
konum. Það er einmitt það sem mér
finnst svo frábært. Börn á Íslandi
alast upp við að fara í sturtu með
öðru fólki og sjá alls konar líkama.
Stelpur sjá ungar konur, gamlar
konur, óléttar konur, mjóar konur,
feitar konur, konur með lítil brjóst,
konur með sigin brjóst, konur með
sílíkonbrjóst, konur með æðaslit,
sólbrúnar konur, konur með sórí-
asis, stæltar konur og konur með
slit eftir meðgöngu. Við búum við
þau forréttindi að sjá fullt af venjulegum
líkömum í stað þess að sjá bara forsíður
tímarita og íturvaxnar stúlkur í tónlistar-
myndböndum. Við eigum að vita að konur
eru allskonar.
Fyrr í þessari viku birti Erna Hrund Her-
mannsdóttir myndir af slitnum maga sínum
eftir meðgöngu sonar hennar. Erna skrifar
Reykjavík Fashion Journal á Trendnet.is
og sagðist hún þar hafa fengið nóg af for-
síðumyndum glanstímarita af nýbökuðum
mæðrum á bikiníi þar sem þær eru með
hinn fullkomna maga og ekki örðu af sliti.
Þessar myndir gæfu konum óraunhæfar
hugmyndir um hvernig magi nýbakaðra
mæðra lítur út í raun. Erna fæddi 17 marka
dreng eftir 41 viku meðgöngu og fékk mikil
slit. „Mér finnst þau hræðileg og ég er viss
um að ég sé eina konan í heiminum sem er
með svona slæm slit,“ skrifar hún og veit að
það er vegna óraunhæfra staðla sem haldið
er að okkur sem hún er svona óánægð.
Raunar bendir hún á að nýverið kom út bók
erlendis þar sem mæður sátu fyrir hjá ljós-
myndara og sýndu slitin sín stoltar. Erna
fylltist innblæstri og ákvað að gera þetta
sjálf. Nú, þremur mánuðum eftir fæðingu
sonar hennar, lét hún af því verða.
Því er skemmst frá að segja að pistlinum
hennar var deilt yfir 2 þúsund sinnum auk
þess sem bæði DV.is og Vísir.is skrifuðu
um málið og birtu líka myndirnar. Já, í
nútímasamfélagi er hetjudáð að birta ljós-
myndir af slitnum maga eftir barnsburð.
Ein móðir skrifaði athugasemd við færslu
Ernu þar sem hún sagði að ljósmyndari hafi
tekið fallega ljósmynd af maganum hennar
þegar hún var kasólétt og með mikil slit.
Ljósmyndarinn hafi síðan ætlað að gefa
fæðingardeild úti á landi myndina „en þar
var neitað að taka við henni því þetta myndi
hræða óléttukonurnar svo mikið því bumb-
an væri svo illa farin,“ skrifaði hún.
Þetta er auðvitað ekki í lagi. Þó að sumar
konur fái lítil sem engin slitför á meðgöngu
þá megum við samt ekki falla í þá gryfju að
konur með slitför séu ekki fallegar. Erna
ætlar að sættast við slitin sín og endar
pistilinn sinn á þessum fallegu orðum:
„Slitförin mín gera mig að móður.“ Fögnum
fjölbreytileikanum.
Í nútímasamfélagi er hetjudáð að birta ljósmyndir af slitnum maga eftir barnsburð.
Erla
Hlynsdóttir
erla@
frettatiminn.is
80
milljónum króna hyggst athafnamaðurinn
Ólafur Ólafsson verja í átak til að kynna ís-
lenska hestinn í Frakklandi á næstu árum.
Vikan í tölum
5.600.000
voru meðalárstekjur íbúa í 103 Reykjavík í fyrra.
Tekjuhæstu Reykvíkingarnir búa í 103.
490.000
manns gætu búið á Íslandi árið
2060 samkvæmt nýrri mann-
fjöldaspá Hagstofu Íslands. Nú búa
323.810 hér á landi.
3
tonn af ís
fóru ofan í
gesti á Ísdeg-
inum mikla í
Hveragerði um
liðna helgi. Yfir
15 þúsund gestir
sóttu bæinn heim.
3
tonnum af flugeldum verður
skotið upp á Menningarnótt í miðbæ
Reykjavíkur.
57
prósent munur var
í sumum tilfellum á
verði skólabóka í
könnun sem ASÍ
gerði.
14 viðhorf Helgin 23.-25. ágúst 2013