Fréttatíminn - 23.08.2013, Síða 18
Hross í oss er
fyrst og fremst
gerð fyrir fólkið
mitt, þennan
ættbálk sem við
köllum Íslend-
inga.
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn.
Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
NÝ OG BE
TRI
HÖNNUN
!
TANNBURSTAR OG
TANNKREM FYRIR
VIÐKVÆM SVÆÐI
hann að þeirri niðurstöðu að það
væri ekki ómaksins vert og að
efnið kallaði á heils-kvölds-kvik-
mynd. Því lét hann slag standa
og vann að því að láta drauminn
um innansveitarkróníku á hvíta
tjaldinu rætast. „Árið 2004 áttum
við Charlotte alvarlegt samtal
um drauma okkar og væntingar í
kirkjugarði í Valby í Kaupmanna-
höfn og ég komst að því að ef ég
gerði ekki þessa kvikmynd myndi
ég sjá eftir því allt mitt líf.“
Með húmorinn að vopni
Charlotte segir Hross í oss mjög
íslenska mynd og minna sig
svolítið á skáldsöguna Sjálfstætt
fólk. „Þegar ég las Sjálfstætt
fólk í fyrsta sinn skildi ég svona
grunninn í Íslendingum. Myndin
er samt miklu skemmtilegri en
Sjálfstætt fólk,“ segir hún og
Benedikt skýtur inn í að hann
svitni við að heyra þetta. „Bene-
dikt hefur svo beittan húmor og
tekst að komast nálægt íslensku
þjóðarsálinni með kaldhæðni og
þannig skemmta fólki. Íslend-
ingar eru svolítið frumstæðir og
það er ekki alltaf gott. Eins og
til dæmis hann Bjartur í Sumar-
húsum. Hann missti allt sitt og
áttaði sig ekki á því hvað hann
elskaði fyrr en hann var búinn
að missa það,“ segir Charlotte.
„Já, Íslendingar eru náttúrlega
hross. Það er niðurstaðan,“ segir
Benedikt. Hann segir jafnframt
að hann gæti aldrei gert drama-
tískt leikverk né kvikmynd án
húmors. „Það er eitthvað í mér
sem sögumanni sem segir að ég
verði alltaf að skemmta sjálfum
mér um leið og ég segi sorglega
sögu.“
Tileinkar myndina minningu
móður sinnar
Við tökur myndarinnar vissi
Benedikt að hann þyrfti á öllu
sínu að halda og líka landvættun-
um og bað Pál á Húsafelli því að
koma á tökustað og spila á stein-
hörpuna sína. „Þar hélt ég smá
bæn og hét á landvættina að vera
með okkur í liði og líka á heilaga
Sesselju sem er gamall dýrlingur
á Húsafelli. Það varð heldur betur
raunin. Við Friðrik Þór, fram-
leiðandi myndarinnar, erum báðir
miklir spiritistar og segir hann
að móðir mín hafi vakað yfir gerð
myndarinnar.“ Þar á Benedikt
móður sína, Brynju Benedikts-
dóttur leikstjóra, sem lést árið
2008. „Eitt af hennar síðustu verk-
um var að hjálpa mér við handrits-
gerð og fjármögnun myndarinn-
ar.“ Benedikt tileinkar myndina
Charlotte og Benedikt með tvíburadætrunum Brynju og Freyju úti í garðinum sínum í Vesturbænum. Charlotte er frá Danmörku og hefur garðurinn yfir sér danskt yfirbragð með rósum og ávaxtatrjám. Ljósmyndir/Hari.
minningu móður sinnar.
„Mamma var fyrsta Brynjan
af miklu Brynjukyni en hún var
skírð eftir kú í fjósinu á Norður-
fossi, undir Reynisfjalli. Sjálf
átti hún meri þegar hún var ung
kona á Laugarvatni og undan
þeirri meri kom mikið Brynj-
ukyn.“ Benedikt gaf sínum fyrsta
hesti nafnið Brynja en lét hana
í skiptum fyrir aðra sem fékk
nafnið Róshildur í höfuðið á
ömmu hans. Benedikt á þá meri
enn og er hún nú orðin þrjátíu og
tveggja vetra.
„Til allrar hamingju var kvik-
myndin tekin upp síðasta sumar
en ekki í ár, svona vegna veðurs-
ins,“ segir Charlotte en veður-
guðirnir léku stórt hlutverk við
gerð myndarinnar og leystu það
af hendi með stakri prýði. „Það
var alltaf fullkomið veður. Þegar
18 viðtal Helgin 23.-25. ágúst 2013