Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Side 32

Fréttatíminn - 23.08.2013, Side 32
SKÓLANEMAR: 25% AfSLáttuR gEgN fRAMvíSuN SKíRtEiNiS! MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711 pARAdíS: áSt (16) 22/08 - 29/08: 17.40 - 20.00 - 22.20 BEfORE MidNigHt (14) Sjá SýNiNgARtíMA á www.BiOpARAdiS.iS 8,4 á iMdB 98% á ROttEN tOMAtOES ***** Filmophilia.com ***** BíóveFurinn.is Indverskur dans Dansarinn Pragati Sood býr yfir frábærri tækni og dansar áreynslulaust og tignarleg indverska dansinn Kathak. Hún dansar í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi. Kl. 14.00-15.30 Menningarveisla í miðborginni Reykjavíkurmaraþon markar að venju upphaf Menn- ingarnætur sem haldin verður í átjánda sinn nú á laugardaginn. Menningarnótt er hátíð sem allir borgar- búar skapa og upplifa saman, úti á torgum og götum mið- borgarinnar, söfnum, fyrir- tækjum og ekki síst í hús- unum í bænum. Yfirskrift hátíðarinnar er „Gakktu í bæinn!“ sem vísar til þeirrar gömlu og góðu hefðar að bjóða fólk velkomið og gera vel við gesti. Til að gæta öryggis verður miðborgin lokuð umferð frá klukkan 7 að morgni laugardags og til klukkan eitt á aðfararnótt sunnudags. Með yfir 100.000 gesti og 600 viðburði er Menningarnótt stærsta hátíð landsins. Allir viðburðir eru gestum að kostnaðarlausu þannig að borgarbúar, óháð efnahag og stöðu, getið notið menningarlífs og samveru. Upplýsingar um alla viðburði er að finna á vefnum Menn- ingarnott.is en hér má fræðast um brotabrot af dagskránni. Hefur þú skoðað varðskip? Varðskipið Óðinn verður opið gestum og gangandi við Víkina – Sjóminjasafn Reykjavíkur. Um borð taka á móti gestum fyrrverandi skipverjar og segja frá dvöl sinni um borð í skipinu. Varðskipið Óðinn var í þjónustu Landhelgisgæslu Íslands frá 1960 til 2006. Kl. 12.00-22.00 Graffað á Hlemmi Reykjavík Underground Yarnstormers standa fyrir viðburði á Hlemmi og hvetja fólk til að koma og hjálpa sér að graffa Hlemm og umhverfi með garni. Ef þú átt efni til að graffa með máttu endilega taka það með, svo sem gamalt prónles, prufur eða útsaum. Annars verður efni á staðnum. Kl. 13.00-19.00 Kynning á tölvuleik Nýr íslenskur tölvuleikur verður kynntur í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi. Um er að ræða listræna, handteiknaða ævin- týraleikinn Aaru’s Awakening úr smiðju íslenska fyrirtækisins Lumenox Games. Gestir fá að prófa leikinn þar sem blandað er saman hraða, þrautum og hasar. Kl. 13.00-22.00 Vinnslan #6 Vinnslan er listhópur og tilraunavettvangur allra list- greina. Nokkrum sinnum á ári heldur Vinnslan sam- sýningu og að þessu sinni verður sýning haldin í hvala- skoðunarbát og í gömlu ver- búðunum. Um 30 listamenn taka þátt og munu allar list- greinar taka völdin - dans, leiklist, tónlist, myndlist, gjörningalist og fleira. Kl. 20.00-23.00 Leikhópurinn Lotta Leikhópurinn Lotta er þekktur fyrir fjöl- skylduleiksýningar sem sýndar eru utan- dyra um allt land á sumrin. Leikhópurinn verður með sannkallaða Söngvasyrpu á Grjótatorgi við Vesturgötu 5. Söngva- syrpan er brot af því besta í gegnum árin og koma margar skemmtilegar persónur úr öllum fyrri verkum Lottu í heimsókn. Tvær sýningar yfir daginn. 32 menningarnótt Helgin 23.-25. ágúst 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.