Fréttatíminn - 23.08.2013, Qupperneq 34
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Menningardagur í Gallerí Fold
laugardaginn 24. ágúst 11–19
12–14 Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir málar
14–15 Spjall með Tryggva Ólafssyni
14–15 Spjall með Braga Ásgeirssyni
14–16 Soffía Sæmundsdóttir málar
16–18 Spjall með Halli Karli Hinrikssyni
Skapað af list
Listamenn vinna
og spjalla við gesti
um list sína
Minningarsýning
Kristján
Davíðsson
Sýning á verkum þessa stórbrotna
listamanns í Forsalnum. Myndirnar eru
flestar málaðar á fimmta áratug síðustu
aldar og hafa aldrei verið sýndar áður.
Flestar þeirra eru til sölu. Sýningunni
lýkur 8. september.
Opnun kl. 11
Allir velkomnir
Tvö ný uppboð
á netinu; á myndlist og
postulíni
Grafík í 30 ár
Bragi Ásgeirsson
Sýnir í Baksalnum til 1. september
NÝ GRAFÍK
„úr gullastoknum“
Tryggvi Ólafsson
Sýnir í Hliðarsalnum
til 1. september
Kl. 12 og svo á 30 mínútna fresti til 19
Listahapp
Allir gestir fá happdrættismiða. Dregið verður á 30 mínútna
fresti alls 15 sinnum. Dregið verður þangað til vinningar ganga út.
Vinningar eru eftirprent íslenskra listaverka.
Listaverk hangir uppi í galleríinu. Finndu myndina og
skrifaðu niður titil eða hvaða sögu þér finnst myndin
segja. Ein saga verður valin og í verðlaun er
listaverkabók. Dregið er þrisvar yfir daginn.
Leikur fyrir alla
Hvaða saga
er í myndinni?
kl. 11–14, kl. 14–16, kl. 16–19
Bráðlifandi músík
Guðbörn Guðbjörnsson
Hádegistónleikar kl. 13.30 · Síðdegistónleikar kl. 16
Guðbjörn Guðbjörnsson óperusöngvari syngur létt lög við undirleik
Guðbjargar Sigurjónsdóttur. Það þarf ekki að kynna Guðbjörn fyrir
Íslendingum en tónleikar hans í Gallerí Fold á Menningarnótt hafa
verið afar vinsælir á umliðnum árum.
Ratleikur fyrir börn
og fullorðna
kl. 11-13, kl. 13-15, kl. 15-17, kl. 17-19
Leikurinn felst í að finna listaverk sem sýnd eru í
galleríinu. Við hvert þeirra er lítil frásögn og í
henni bókstafur sem er hluti af orði sem gestir
eiga að finna út. Dregið er úr réttum lausnum og
heppinn þátttakandi fær listaverkabók í verðlaun.
Lifum af list í Gallerí Fold
Dagskráin er á myndlist.is • Opið til kl. 19 á Menningarnótt og 14–16 á sunnudag
T he Tin Can Factory er óvenju legt nafn sem vekur upp margar spurningar.
Dósaverksmiðjan? Einfaldasta svar-
ið er að eitt sinn var dósaverksmiðja
þar sem tungumálaskólinn er núna
til húsa. Raunar er The Tin Can Fac-
tory miklu meira en tungumálaskóli
því þar læra nemendur líka um ís-
lenska menningu og sögu. Dósin er
táknræn fyrir að við geymum lengi
hjá okkur auk þess sem baunir í dós-
um byrja að spíra og eitthvað alveg
nýtt verður til. Ég hringdi í stjór-
nanda skólans til að fá rétt aðeins að
heyra um nýtt námskeið sem þar er
boðið upp á. Hún bauð mér í heim-
sókn, sagði að ég yrði að sjá skólann
því hann væri allt öðruvísi en aðrir
skólar. Það var rétt.
Það fyrsta sem mætti mér var
fjöldinn allur af útiskóm svo ég fór
líka úr mínum. „Við vildum hafa
þetta svona heimilislegt,“ segir
Gígja Svavarsdóttir, stjórnandi The
Tin Can Factory. „Við erum með
inniskó fyrir alla sem vilja.“ Áður en
skólinn flutti í núverandi húsnæði í
Borgartúni var hann í íbúðinni fyrir
neðan heimili Gígju og þar á undan
í stofunni hjá henni. Gamlir nem-
endur voru því vanir að fara alltaf
úr skónum og vildu gera það áfram.
Skólinn hét alltaf bara Tungumála-
skólinn en er nú kominn með nýtt
nafn. Helsta sérstaða hans er að þar
læra nemendur með því að gera.
Flutningurinn varð að
kennslustund
„Þegar við f luttum hingað tóku
nemendur þátt í því að fara með
Óhefðbundin íslenskukennsla
Tungumál, menning og saga eru einkunnarorð The Tin Can Factory þar sem nemendur læra
ekki aðeins íslenskt mál heldur kynnast þeir líka samfélaginu. Á þjóðhátíðardaginn er farið
með nemendur í miðbæinn þar sem þeir læra allt um hoppukastala og snuddusleikjó. Í haust
fer af stað nýtt verkefni hjá The Tin Can Factory - leikhópur fyrir útlendinga búsetta á Íslandi
sem setur upp verk á íslensku.
Gígja Svavarsdóttir og Ólafur
Guðmundsson hafa mikla ástríðu
fyrir kennslunni. Mynd/Hari
borðin inn í sendiferðabíl og halda
á þeim hingað inn. Við breyttum
flutningunum bara í íslenskutíma
þar sem þeir lærðu að „lyfta“ borð-
inu og „fara út“ með stólinn,“ segir
Gígja. Ólafur Guðmundsson, kenn-
ari við skólann, tekur annað dæmi.
„Það er hluti af náminu að elda sam-
an og leggja á borð. Ég man eftir
því að hafa verið með heilan hóp að
leggja á borð og í hvert sinn sem
við settum gaffal á borðið sögðu
allir saman: „Þetta er gaffall.“ Öll
kennsla fer fram á íslensku og
ekkert tungumál talað í kennslu-
stofunni nema íslenska. Þrátt fyrir
að skólinn sé fluttur í stærra hús-
næði er enn haldið fast í að hafa litla
hópa, hámark tíu nemendur sam-
an, til að kennarinn geti sinnt öllum
sem best.
Skoða verk eftir Kjarval
Vettvangsferðir eru fastur hluti af
kennslunni og er markmiðið að
nemendur kynnist íslenskri menn-
ingu samhliða því að læra tungu-
málið. „Þegar við kennum nöfnin á
litunum förum við á Kjarvalsstaði
og skoðum listaverk eftir Kjarval,“
segir Gígja og áður en eldað er sam-
an fer hópurinn allur saman út í búð
og kaupir inn. Innkaupaferðin er þá
orðin að kennslustund í íslensku þar
sem fólk lærir nöfnin á lambakjöti,
rófum og flatkökum. Á 17. júní fóru
kennarar með sína hópa í miðbæ-
inn. Gígja rifjar upp þjóðhátíðar-
dag þar sem hún var með hóp sam-
settan af mæðrum annars vegar og
einhleypu fólki hins vegar. Mæð-
urnar höfðu oft séð hoppukastala en
aldrei vitað hvað þeir kölluðust á ís-
lensku. Hópurinn lærði líka að segja
„snuddusleikjó“ og „renna sér.“
Þeir einhleypu og barnlausu höfðu
takmarkaðan áhuga á þessu og sá
einn maðurinn lítinn tilgang í því að
læra um hoppukastala. Hann kom
þó himinlifandi til Gígju nokkrum
dögum síðar og tilkynnti henni að
hann væri orðinn uppáhaldsfrændi
barnanna í fjölskyldunni. „Hann
hafði þá farið í fjölskylduboð og í
fyrsta sinn getað tala við krakkana
um það sem þau gerðu á 17. júní,“
segir Gígja.
Örugg í ófullkomleikanum
Boðið er upp á ýmislegt fleira en
íslenskukennslu fyrir útlendinga.
Fólk getur bókað sig í eins konar
sögugöngu um miðbæ Reykjavíkur
sem lýkur með pönnukökubakstri
og sérstök námskeið eru fyrir ís-
lensk börn sem búa í útlöndum.
Nú í haust hefst nýtt verkefni hjá
The Tin Can Factory þegar stofn-
aður verður leikhópur skipaður
útlendingum búsettum á Íslandi.
Leikhópurinn kallast Baunadósin,
stefnt er að því að verkefnist hefjist
í byrjun september og verður lögð
áhersla á fjölmenningarlega nálgun
á íslenska menningu. Ólafur, sem
hefur lengið kennt leiklist, sér um
hópinn og segir hann að verkefnið
komi til með að mótast af þeim
sem taka þátt en markmiðið er að
halda sýningu í lokin þar sem flétt-
ast saman leiklist, söngur og dans.
„Ég veit ekki til þess að starfandi sé
neinn fjölmenningarlegur leikhóp-
ur á Íslandi sem sýnir á íslensku,“
segir hann. Baunadósin er hluti
af tilraunastarfsemi og nýsköpun
sem tengist íslenskukennslunni
og annarri starfsemi verksmiðj-
unnar. Ólafur leggur áherslu á að
það þurfi ekki að tala fullkomna ís-
lensku til að taka þátt í leiklist. „Við
viljum hjálpa fólki að líða vel í sínum
ófullkomleika. Fólk getur verið af-
skaplega skapandi og haft margt að
segja þó það eigi í vandræðum með
þolfallið,“ segir hann.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Við erum með inniskó fyrir alla.
34 dægurmál Helgin 23.-25. ágúst 2013