Fréttatíminn - 23.08.2013, Side 37
Nafn: Arsene Wenger.
Lið: Arsenal.
Aldur: 63 ára.
Þjóðerni:
Franskur.
Fyrri störf:
Nagoya
Grampus Eight,
Monaco.
Ráðinn: 1996.
Heimir: „Hann
er að mínu mati
frábær knattspyrnu-
stjóri. Hugmyndafræðin
að baki fótboltans hjá Arsenal er mjög góð.
Vandræði Wengers felast í því að hann er
án efa nískasti stjórinn í deildinni. Hann
hefur þurft að kaupa leikmenn og styrkja
liðið síðustu fimm árin en það hefur ekki
gerst. Þó þeir hafi reynt við Suarez finnst
manni að það þurfi meira til. Og svo mætti
hann stundum leggja meiri áherslu á
varnarleikinn. Hann hefur ekki lagast þrátt
fyrir tilkomu Steve Bould í þjálfarateymið.“
Ólafur: „Mér finnst synd hvernig menn
hafa farið með Wenger, Arsenal-menn
og aðrir. Wenger er maðurinn sem sneri
Arsenal gjörsamlega við. Hann tók klúbb-
inn og færði hann upp á annað level. Hann
breytti leikstílnum og kúltúrnum, keypti
menn eins og Henry og Bergkamp og gerði
Arsenal að toppliði. Í raun og veru hefur
hann verið með þá í toppbaráttu allan sinn
tíma. Síðan kemur að því að annað hvort
hann eða klúbburinn er ekki tilbúinn að
eyða eins og hin liðin og það hefur farið illa
í stuðningsmennina. Það sem menn verða
að virða er að félagið hefur stefnu og hún
virðist vera að það sé vel rekið, sé í baráttu
um titla og „once in a while“ nái það
titlum. Wenger er klárlega einn af þremur,
fjórum bestu stjórum sem verið hafa í
Úrvalsdeildinni frá upphafi. Það verður að
dæma hann á réttum forsendum, út frá
umhverfinu sem hann er í.“
Nafn: André Villas-Boas.
Lið: Tottenham Hotspur.
Aldur: 35 ára.
Þjóðerni: Portúgalskur.
Fyrri störf: Chelsea, Porto.
Ráðinn: 2012.
Heimir: „Mér fannst Villas-Boas koma
sterkur inn eftir að hann tók við af
Redknapp. Hann er gríðarlega taktískur
og það sást á leik liðsins að hann er búinn
að undirbúa það vel. Hann minnir mig
reyndar stundum á Hermann Hreiðarsson
á hliðarlínunni, hann mætti vera minna
stressaður. Ég hef samt trú á því að hann
haldi áfram að þróa liðið og það verði
betra en á þeirri síðustu. Auðvitað er for-
senda þess að Bale verði áfram. Ég skil nú
reyndar ekki í Bale. Eftir að Villas-Boas tók
við hefur Bale bæt sig gríðarlega og hann
ætti að sýna honum smá hollustu og vera
eitt eða tvö ár í viðbót hjá liðinu.“
Ólafur: „Mér fannst Chelsea allt of stór
biti fyrir hann þegar hann kom þangað.
Að mínu viti. Það má ekki vanmeta þátt
reynslunnar og þroskann í að taka við
svoleiðis liðum. En hann hefur gert fína
hluti með Tottenham. Hann virðist vera
nokkuð viss í því hvernig hann vill gera
hlutina, bæði á vellinum og í stjórnuninni.
Mér finnst hann samt pínulítið vera að
rembast. Það er eins og jakkafötin sem
hann er í séu aðeins of stór. En hann á
eflaust eftir að vaxa inn í þau. Ég sé þá
keppa um eitt af fjórum
efstu sætunum
en það veltur
á því hvort
Bale fer.
Þeir
þurfa
„goal
getter“.
Ef þeir
selja
Bale á
einhverjar
90 milljónir
punda geta
þeir gert það sem
þeir vilja. En þeir kaupa Bale aldrei aftur.“
Nafn: Roberto Martinez.
Lið: Everton.
Aldur: 40 ára.
Þjóðerni: Spænskur.
Fyrri störf: Wigan,
Swansea.
Ráðinn: 2013.
Heimir: „Ég held að
það hafi verið mikið
framfaraskref fyrir Ever-
ton að fá Martinez sem
sýndi með Wigan að hann er
frábær knattspyrnustjóri. Ég lagði
mig oft fram um að horfa á leiki með
Wigan, sérstaklega á móti sterkari liðum.
Hann kom oft með lausnir og möguleika
á því hvernig hægt væri að vinna þessi
betri lið. Ég held að hann eigi eftir að gera
frábæra hluti hjá Everton.“
Ólafur: „Mér finnst hann
svolítið flottur og hef verið
að grúska svolítið í honum
undanfarið. Hann
passaði svo sannarlega
í jakkafötin sín þegar
hann var hjá Wigan.
Svo stækkaði hann
og fékk sér ný. Þetta
var frábær ráðning hjá
Everton. Eftir veru Moyes
þar er komin festa og mjög
gott umhverfi fyrir Martinez.
Hann hefur skemmtilega
fílósófíu, hann er svipaðri línu og Klopp
hjá Dortmund, og nú fær hann betri leik-
menn en hjá Wigan. Hann gæti tekið eitt
eða tvö skref áfram.“
Nafn: Brendan Rodgers.
Lið: Liverpool.
Aldur: 40 ára.
Þjóðerni: Norður-írskur.
Fyrri störf: Swansea,
Reading, Watford.
Ráðinn: 2012.
Heimir: „Hugmynda-
fræðin hjá Brendan
Rodgers er góð,
hann vill halda bolt-
anum innan liðsins. En
stundum er það þannig að
þegar hugmyndafræðin virkar
ekki, þegar hlutirnir eru ekki að ganga
upp, þá þarftu að breyta og prófa eitthvað
annað. Mér finnst hann ekki tilbúinn til að
gera það og meðan að það er þá verður
Liverpool á svipuðum stað og liðið var á
síðustu leiktíð.“
Ólafur: „Þetta er mitt lið og
það hefur verið ein allsherjar
sorgarsaga hjá því undanfarið.
Rodgers er hinn maðurinn sem
ég veit ekki hvað mér á að finn-
ast um. Hann gerði skemmti-
lega hluti hjá Swansea og ætlar
greinilega að gera svipaða hluti
hjá Liverpool. Mér finnst hann
ekki hafa haft leikmennina sem
hentuðu því sem hann vildi spila. Ekki
fyrr en hann fékk Sturridge og Coutinho.
Rodgers fær greinilega traust og það er
ágætt en hann á eftir að sanna sig. Mér
finnst Liverpool ekki vera með nógu góða
leikmenn til að vera alveg í toppnum.“
fótbolti 37 Helgin 23.-25. ágúst 2013