Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 40
Sveitaórar
É
Ég veit ekkert um búskap. Enda hefur
hann ekki verið stundaður mikið í Kópa-
voginum frá því að síðasti bóndinn á
Lundi brá búi seint á áttunda áratugnum
eða snemma á þeim níunda. Þessi lága
sveitagreindarvísitala mín væri ekki telj-
andi vandamál. Nema fyrir þær sakir að
seint á síðustu öld kynntist ég konuefninu
mínu og hún getur rakið ætlegg sinn aft-
ur margar kynslóðir þingeyskra bænda.
Fyrstu árin var ég þvi ekki beinlínis á
heimavelli þarna í sveitinni. Kallaði gimb-
ur gimbli og talaði fjálglega um hvort
„slátturtíðin“ væri ekki að hefjast þegar
bændur tala nú yfirleitt um heyskap.
Punktastaða mín hjá tengdaforeldrunum
hefur því sjálfsagt verið ansi lág, alla vega
svona til að byrja með. Það er helst að ég
hafi fengið nokkra punkta fyrir að mæta
á svæðið. En miðað við það sem kostar
að halda mér uppi í mat og drykk er ég
ekki viss um að það hafi skapað stórar
inneignir.
Það var því eiginlega ekki fyrr en af-
kvæmi fóru að líta dagsins ljós að staðan
vænkaðist eitthvað að ráði. Því ekki
batnaði ég mikið í sveitastörfunum. Það
er nokkuð ljóst. En ég skaffaði barnabarn
og það er ég viss um að hefur hækkaði
í punktastaflanum. Ég gat því loksins
gengið um sæmilega uppréttur þarna í
sveitinni. Sparkað í dráttavéladekk og
drukkið kaffi með körlunum. Ég drekk
reyndar ekki kaffi en fannst ég kominn
með svo marga punkta að ég gat, óáreitt-
ur, fengið mér kakómalt þarna innan um
grjótharða bændurna. Ég var á toppnum
og mér fannst ég ekki geta gert neitt
rangt. En svo gerðist hið skelfilega – það
kom annar tengdasonur í spilið.
Hmm, hugsaði ég mér þegar sá nýi
tók sér frí í vinnunni til að hjálpa til í
„slátturtíðinni“. Það er svona sem hann
spilar þetta. Mætir á svæðið og beint upp
í dráttarvél. Þurfti engan hálftíma fyrir-
lestur um hvernig þetta allt saman virkar
eins og ég þegar ég prófaði dráttarvélina
fyrst. Hann setti bara í gang og byrjaði
að slá. Rúllaði svo upp þessar líka fínu
sykurpúðalegu rúllur. Þetta var við það
að buga mig.
Þegar hann svo í ofanálag skaut máv-
inn, Guð minn góður! Illfyglið hafði angr-
að tengdamúttu í margar vikur. Borð-
andi unga og skítandi út um allt. Hann
stoppaði bara í miðjum slætti og skaut
kvikindið. Gott ef ekki út um hurðina á
dráttarvélinni. „Þetta var nú lítið mál.
Ég var með haglarann í skottinu,“ sagði
hann þegar hann mokaði mávinn sex fet í
jörðu niður. Ég grét þurrum tárum ofan í
kakómaltið mitt þann kaffitímann. Svona
gat þetta ekki gengið. Ég var að missa
allt. Meira að segja staðinn við hliðina á
brauðristinni – ég var ekki ristarstjórinn
lengur. Við þetta mátti ekki búa en við
ofurefli var að etja. Ég þakkaði þó fyrir að
ég var búinn að skaffa barnabarn. Hafði
því, að mínu mati, enn rétt svo yfirhönd-
ina. Allt var ekki glatað.
Ég fjölgaði því barnabörnunum um eitt.
Svona til að styrkja enn stöðu mína sem
tengdasonur númer eitt. Fór á námskeið
í meðferð á haglabyssu ef ske kynni að
annar skítugur mávur gerði sig heima-
vanan í túninu. En þá komu fréttirnar
sem ég var búinn að óttast svo lengi. Það
var von á barni hjá númer tvö.
Nú var leikurinn hafinn og eitthvað
drastískt þurfti til bragðs að taka. „Ég flyt
norður!“ tilkynnti ég frúnni og byrjaði að
pakka. Hún var ekki alveg á því en benti
á að á jörðinni væri gamall bær sem hægt
væri að laga og nota sem sumarhús. Það
myndi nú hressa upp á punktastöðuna.
Þessu tók ég fagnandi og við hófumst
handa við lagfæringarnar. Þar höfum við
nú dundað okkur í á þriðja ár. Valdajafn-
vægi virtist komið og ég horfði á verkið
auka inneign mína umtalsvert. Þar sem
ég nú skrúbba fjörutíu ára gamlan belju-
kúk úr gömlu fjósi sem stendur við bæinn
sé ég út undan mér þær systurnar tala
saman. Ég rétt greini orðaskil yfir hávað-
ann í vírburstanum og mér heyrist sem
mágkonan segi: „Við eigum von á öðru“!
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Haraldur
Jónasson
hari@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Komdu á
rétta staðinn
og gerðu
góð kaup!
Brautarholti 8
Opið virka daga 9-18
og laugardaga 10-16
sími 517 7210 / www.idnu.is
Tilboðsverð:
6.780 kr.
Laugavegur
N
óa
tú
n
Brautarholt
Þ
ve
rh
ol
t
IÐNÚ
Hlemmur
Skipholt
skólavöruverslun
Ný og endursko
ðuð útgáfa
(G
ild
ir
ti
l 1
0.
s
ep
te
m
be
r
n.
k.
)
En svo gerðist hið skelfilega – það kom
annar tengdasonur í spilið.
40 viðhorf Helgin 23.-25. ágúst 2013