Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 43
NámskeiðHelgin 23.-25. ágúst 2013 43
Svo létt á brauðið
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
57
65
5
Kynning Hreyfing Kynnir ný æfingaKerfi á Hinum vinsælu Club fiT og 5 sTjörnu fiT námsKeiðum
með eigin líkamsþyngd og mót-
stöðu með teygjurenningum og
fleira. Vöðvarnir eru þjálfaðir að
þreytumarki eftir ákveðnu kerfi
ofhleðslu og teygjuæfinga,” segir
Ágústa. „Stífar æfingar fyrir rass,
kvið og læri skila þeim stinnum
og stæltum og í toppformi.“
Ávinningurinn af 5 stjörnu Fit
æfingakerfinu er meðal annars
fallega mótaður líkami, sterk
miðja líkamans, langir og grannir
vöðvar, sterkir og velmótaðir rass-
vöðvar, aukið vöðvaþol, aukinn
liðleiki, bætt líkamsstaða og
aukin beinþéttni.
5 stjörnu FIT æfingarnar ganga
út á sérstaka samsetningu á
styrktar- og teygjuæfingum sem
móta fallega mótaða og sterka
vöðva og brenna fitu?
Fólki leiðist ekki í eina mínútu
Hin vinsælu Club Fit VIP nám-
skeið fyrir konur og karla hefjast
einnig í byrjun september.
„Þar er lögð áhersla á þolþjálf-
un, lyftingar og árangur. Club Fit
æfingakerfið miðar að því að ögra
líkamanum til að komast út úr
stöðnun og tryggja að þú komist
í þitt allra besta form. Námskeið-
in skila hámarks fitubrennslu,
aukinni grunnbrennslu líkam-
ans, betra þoli og aukinni orku
og vellíðan,“ segir Ágústa. „Það
er frábær stemmning á Club Fit
námskeiðunum, hvetjandi tónlist
og fólki leiðist ekki í eina mínútu.“
„Þú æfir á þínum hraða á
hlaupabretti og velur þínar þyngd-
ir á lóðunum,” segir Ágústa. „Það
eru örar skiptingar, tíminn líður
hratt og þú kemst í þitt allra besta
form. Fólk ánetjast þessum tím-
um. Þetta er svo ótrúlega sniðugt
æfingakerfi fyrir alla þá sem vilja
æfa á brettinu og lyfta lóðum. Í
Club Fit ertu einfaldlega að taka
æfingakerfið þitt úr tækjasalnum
inn í skemmtilega stemningu
með nokkrum í hóp og þjálfara,
og þú gleymir tímanum, það er
svo gaman að æfa.“
Á æfingu í 5 stjörnu fit tíma.
námsKeið fyrrverandi íþróTTaKennari Heldur sér í formi með dansi
Línudans fyrir eldri borgara
„Ég er búin að vera í þessu í fjögur ár og
það er alltaf jafn gaman,“ segir Þórir Sig-
urbjörnsson sem situr í dansnefnd Félags
eldri borgara í Reykjavík. Fyrir fjórum
árum byrjaði félagið með línudansnám-
skeið fyrir eldri borgara og er Þórir í þeim
kjarna sem hefur sótt námskeiðin árlega.
„Ég er gamall íþróttakennari og mér finnst
hreyfing alltaf vera mikilvæg. Þannig
heldur maður sambandi frá höfði og niður
í fætur. Þetta er góð aðferð til þess og
skemmtileg þar að auki,“ segir hann.
Þórir hefur alltaf haft áhuga á dansi
og lætur hann sér ekki nægja að mæta í
línudans heldur fer hann úr þeim tímum
beint í samkvæmisdansa með konunni
sinni. „Línudansinn er þá svona upphitun,“
segir hann. Sérlega er hann ánægður með
áherslur kennarans, hennar Lizy. „Hún
er ekki bara á amerísku línunni heldur
kennir okkur líka línudans með írskum
áhrifum,“ segir hann.
Mikil aðsókn hefur verið á dansnám-
skeið hjá félaginu, sér í lagi í samkvæmis-
dönsum. „Sú hugmynd kom upp í fyrra
að vera líka með gömlu dansana og við
stefnum á það í vetur ef næg þátttaka
næst,“ segir Þórir. -eh
Eldri borgarar geta sótt ýmis dansnámskeið
hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík.