Fréttatíminn - 23.08.2013, Qupperneq 44
Námskeið Helgin 23.-25. ágúst 2013
KYNNING
Kynning Hugarlausnir er námsKeið Heilsuborgar í Heildrænni Heilsu
44
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík
Sími 560 1010 • www.heilsuborg.is
Ert þú að kljást við?
offitu?
verki?
háan blóðþrýsting?
orkuleysi?
depurð eða kvíða?
Lausnina finnur þú í Heilsuborg
Heilsulausnir
Stoðkerfislausnir
Hjartalausnir
Orkulausnir
Hugarlausnir
“Mér fannst allt gott, hafði enga
stjórn á skammtastærðum og hafði
lítið þrek. Ég var farin að óttast um
heilsu mína og langaði ekki að vera
svona illa á mig komin lengur,” segir
Sólveig sem vildi læra að borða rétt
og lifa í sátt við sjálfa sig.
„ Þegar ég fór að ná árangri, léttast
og líða betur hugsaði ég tíðum hví
í ósköpunum ég hefði ekki tekið í
taumana fyrr. Ég hafði ekki gert mér
grein fyrir að ég væri að missa af
lífinu og get ég ekki ímyndað mér
hvernig lífið væri nú hefði ég ekki
farið í Heilsuborg.”
Var að missa af lífinu
„Ég hafði ekki gert mér
grein fyrir að ég væri
að missa af lífinu og
get ég ekki ímyndað
mér hvernig lífið væri
nú hefði ég ekki farið í
Heilsuborg.”
Sólveig Sigurðardóttir
“Að breyta um mataræði er
mikil vinna í fyrstu og ég hef
reynt að boð og bönn virka ekki.
Ég hætti að vera svöng þegar
ég lærði að borða reglulega og
langar sjaldnast í nammi því
mér líður svo vel að borða rétt,”
segir Sólveig, 35 kílóum léttari
en fyrir ári síðan.
Sólveig Sigurðardóttir
Ert þú óviss með næstu skref?
Pantaðu tíma í Heilsumat og hjúkrunarfræðingur
fer yfir stöðuna á þinni heilsu og aðstoðar með
næstu skref.
Hreyfing og núvitund
H ugarlausnir heitir átta vikna námskeið í Heilsu-borg sem hentar þeim
sem glíma við einkenni streitu,
depurðar, kvíða og/eða þunglynd-
is. Hreyfing er fyrirferðarmesti
hluti námskeiðisins en sérstaða
þess er fólgin í kennslu í núvitund
eða mindfulness.
“Í raun gætu fleiri haft gagn af
þessu námskeiði,” segir Sigrún
Ása Þórðardóttir, sálfræðingar,
sem kennir á námskeiðinu ásamt
Elvu Brá Aðalsteinsdóttur sál-
fræðingi og Kristínu Birnu
Ólafsdóttur þjálfara. “Nám-
skeiðið hentar öllum sem glíma
við áhyggjur eða álag hvort sem
er í einkalífi eða starfi, og eiga
orðið erfitt með að vera til staðar í
núinu. Í nútímasamfélagi þar sem
hraðinn er mikill, áreitin mörg og
kröfurnar miklar getur verið erf-
itt að vera raunverulega til staðar
og meðvitaður um það sem er að
gerast á meðan það er að gerast.
Að vera til staðar í núinu
Sigrún Ása, ásamt Elvu Brá sér
um þann hluta Hugarlausna sem
snýst um núvitund, sem er kallað
mindfulness á ensku. Það snýst
um að kenna fólki að vera til
staðar í núinu.
“Núvitund felst í því að vita
hvað er að gerast á meðan það
er að gerast og er eiginleiki sem
við búum öll yfir en í mismiklum
mæli. Á mínum hluta námskeiðs-
ins, kenni ég einfaldar hugleiðslu-
æfingar sem hafa það að mark-
miði að beina athyglinu inn í núið
og að einu í einu. Við reynum að
verða meðvituð um hvenær sjálf-
stýring hugans er komin á. Það er
lögð áhersla á einfaldar æfingar
sem fólk getur tekið með sér út í
lífið.” Dæmigerð æfing í núvitund
snýst um að beina athyglinni að
andardrættinum, taka eftir þegar
hugurinn flögrar í burtu og beina
þá athyglinni á mildan máta aftur
að andardrættinum. Þegar við
erum til staðar og meðvituð þá
bæði njótum við betur þess sem
lífið hefur upp á bjóða sem og við
erum líklegri til að taka skynsam-
legar ákvarðanir fyrir okkur sjálf.
Vera mild við okkur sjálf
Sigrún Ása segir að núvitund
komi úr aldagömlum austrænum
hugleiðsluaðferðum en lögð sé
sérstök áhersla á að virkja það
viðhorf innra með okkur að
vera mild við okkur sjálf. “Við
erum svo gjörn á að vera hörð
við okkur sjálf, við erum alltaf
að dæma okkur. Ég vinn mikið
með einstaklingum sem glíma við
streitu og oftar en ekki eru þetta
einstaklingar sem gera miklar
kröfur í eigin garð bæði í einkalifi
og starfi, keyra sig oftar en ekki
áfram, virða ekki mörkin fyrr en
allt sýður uppúr. Við kennum fólki
æfingar sem hjálpa því að staldra
við og hlusta á eigin líðan og
hugsanir og umfram allt að vera
mildara við sig.
Andleg, líkamleg og félagsleg
heilsa
Sigrún Ása segir að oft sé fólk
ekki nógu duglegt að hlúa að
heilsunni í heild sinni. Með
heildrænni nálgun Heilsuborgar
sé það hins vegar möguleiki. Í
Hugarlausnum er unnið með
andlega, líkamlega og félagslega
heilsu á sama tíma. Námskeiðið
er átta vikur og samanstendur af
hreyfingu og núvitund. “Þrisvar
í viku hittir einstaklingur þjálfara
sem setur upp prógram eftir for-
skrift hreyfiseðils. Áður en núvit-
undarhlutinn kemur til sögunnar
í þriðju viku fara allir í eitt einka-
viðtal til mín, sem er innifalið.
Við hittumst svo í hópþjálfun í
núvitund einu sinni í viku í fjórar
vikur og leggjum áherslu á að
hugleiðslu æfingar séu gerðar
milli tíma.
Næsta námskeið í Hugarlausn-
um hefst 26. ágúst. Nánari upp-
lýsingar er að finna á heilsuborg.
is <http://heilsuborg.is/> .
„Við búum öll við áreiti og álag og það getur verið erfitt að vera til staðar í núinu og
vera meðvituð um hvað er að gerast.“ segir Sigrún Ása Þórðardóttir, sálfræðingur sem
kennir á námskeiðinu Hugarlausnir í Heilsuborg.