Fréttatíminn - 23.08.2013, Qupperneq 50
„Ég segi ekki að hekl sé orðið vin-
sælla en prjónið en áhuginn hefur
aukist mjög,“ segir Solveig Theo-
dórsdóttir, formaður Heimilis-
iðnaðarfélags Íslands. Eftir hrunið
varð sprenging í fjölda þeirra sem
vildu læra að prjóna en nú hefur
áhugi á annars konar handavinnu
aukist. „Ég held að þegar fólk er
búið að prjóna mikið og ná góðum
tökum á því þá langi því einfald-
lega að læra eitthvað annað,“ segir
Solveig. Heimilisiðnaðarfélagið
býður upp á byrjendanámskeið í
hekli, námskeið þar sem er kennt
að hekla sjöl með draglykkjuhekli,
nýstárlegar ömmudúllur og nám-
skeið í rússnesku hekli. „Fólk er
sólgið í eitthvað nýtt,“ segir hún og
bendir á að þegar Heimilisiðnaðar-
félagið fór að bjóða upp á námskeið
í tvöföldu prjóni hafi þau fljótt
fyllst en í tvöföldu prjóni er réttan
beggja megin, sami litur er aðal-
litur öðru megin en munsturlitur
hinum megin.
Aðallega konur sækja nám-
skeið Heimilisiðnaðarfélagsins en
þangað koma bæði byrjendur sem
og handavinnukennarar, klæðsker-
ar og kjólameistarar á námskeið.
„Kjólameistarar koma hingað til
að læra að sauma þjóðbúninginn,“
segir Solveig. Fyrst eftir hrun var
mikil aðsókn á námskeiðin, síðan
dalaði áhuginn en hann er aftur á
uppleið og fjöldi námskeiða þegar
fullbókuð en alls eru 54 námskeið í
boði á haustönn.
Þá var að ljúka námskeiði fyrir
börn sem haldið er á hverju sumri
og færri komast að en vilja. „Ég
var rétt að fara að huga að nám-
skeiðinu í vor þegar ég sá að það
var strax orðið fullt þannig að ég
auglýsti ekki neitt,“ segir Solveig.
Á námskeiðinu vinna börn með
jurtaliti og gler, búa til mósaík-
verk, tálga og gera heimatilbúinn
brjóstsykur, svo eitthvað sé nefnt.
Námskeiðinu lýkur með pulsup-
artýi þar sem foreldrum er boðið
í heimsókn til að skoða afrakstur-
inn. „Ég man eftir því eitt sinn að
þá hitti ég dreng sem hafði verið á
námskeiði hjá mér. Hann var lítið
fyrir fótbolta og naut sín vel. Ég
spurði hann hvernig honum hefði
fundist námskeiðið. Hann lærði að
þæfa teppi og sagði að þetta væri
skemmtilegasta námskeið sem
hann hefði farið á. Þetta er afskap-
lega skemmtilegt,“ segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Námskeið Helgin 23.-25. ágúst 201350
Flest stéttarfélög styrkja félaga sína til þátttöku á námskeiðum okkar
Heimilisiðnaðarfélag Íslands
Heimilisiðnaðarskólinn
Prjón
hekl
Þjóðbúningasaumur
baldýring
útsaumur
orkering
knipl
jurtalitun
tóvinna
víravirki
vefnaður
leðursaumur
og margt eiraVerslun
Mikið úrval af íslensku prjónabandi
og lopa, prjónum, prjónabókum,
og öðrum blöðum.
Efni og önnur tillegg fyrir
þjóðbúningasaum og jurtalitun.
Gjafakort.
Verið velkomin.
Opið alla daga kl. 12-18
Solveig Theodórsdóttir, formaður
Heimilisiðnaðarfélags Íslands, segir
að bæði byrjendur og fagmenn komi á
námskeið, jafnvel handavinnukennarar.
Ljósmynd/Hari
Hekl í sókn
Áhugi á handavinnu jókst mikið eftir hrun og margir lærðu að
prjóna. Formaður Heimilisiðnaðarfélagsins segir að þeir sem hafi
náð góðum tökum á prjóni vilji læra eitthvað nýtt og nú sé mikill
áhugi fyrir heklnámskeiðum.
Námskeið AukiNN áhugi er á heklNámskeiðum
Anna Heiða Pálsdóttir hefur kennt á ritlistarnámskeiðum Endurmenntunar frá árinu 2000.
Hún segir fólk stundum feimið við að sýna öðrum skrif sín en að á námskeiðunum séu allir
jafningar. Ljósmynd/Hari.
eNdurmeNNtuN hÍ Námskeið Í ritlist
Úr neista í nýja bók
Námskeið fyrir þá sem eiga sér þann draum að skrifa lengri eða styttri sögur hefst í haust
hjá Endurmenntun. Námskeiðin hafa notið mikilla vinsælda í gegnum árin og hafa margir
þátttakendanna síðar gefið út bækur og það jafnvel metsölubækur.
á undanförnum árum hafa nokkur hundruð þátt-
takenda lokið ritlistar-
námskeiðum hjá Endur-
menntun HÍ og hafa
margir þeirra síðar gefið
út bækur í framhaldinu
og segir Anna Heiða Páls-
dóttir, rithöfundur, doktor
í bókmenntafræði og
kennari námskeiðsins það
sérstaklega ánægjulegt.
„Sumar þessara bóka hafa
jafnvel orðið metsölu-
bækur.“
Námskeiðið Úr neista
í nýja bók í haust verður
fimm skipti og bæði í fjar-
og staðnámi. Þrír fyrir-
lestrar verða nemendum
aðgengilegir á vefnum og
munu þeir tvisvar sinnum
hittast í kennslustund hjá
Endurmenntun við Dun-
haga. Í náminu er fjallað
um ritferlið og hvaða kost-
ir prýða góð skáldverk.
Leiðbeiningar eru gefnar
um hagnýta undirbún-
ingsvinnu, val sögusviðs,
persónusköpun, samtöl og
sögufléttu auk þess sem
fjallað verður um smá-
sagnaformið sem slíkt.
Á námskeiðinu skrifa
þátttakendur sögubrot, til
dæmis upphaf smásögu
eða kafla úr bók sem þeir
eru að vinna að. Í síðasta
tímanum lesa þeir svo
fyrir hvern annan og
verkin eru svo rædd í rit-
hring. Anna segir þátt-
takendum þannig gefast
dýrmætt tækifæri til að
fá uppbyggilega gagnrýni
frá breiðum lesendahópi
því vinir og ættingjar segi
yfirleitt að verkin séu
stórfín.
Að sögn Önnu er fólk
stundum feimið við að
sýna öðrum skrif sín í
fyrsta sinn en að á nám-
skeiðunum séu allir
jafningjar. „Flestir koma
hræddir og telja verk sín
ekki nógu góð til að sýna
öðrum. Við gerum oft svo
lítið úr okkur sjálfum og
finnst ekkert sem við ger-
um vera nógu gott,“ segir
Anna og leggur áherslu á
að með gagnrýni eigi að
rýna til gagns.
Þrír þátttakendur nám-
skeiðsins gáfu út bækur á
árinu 2012 og höfðu lagt
efni fyrir samnemendur
sína sem siðar urðu að
eftirfarandi bókum:
Sigurjón Pálsson gaf
út bókina Klækir sem
hlaut Blóðdropann.
Sólveig Pálsdóttir gaf út
bókina Leikarinn sem
hlaut mikið lof gagn-
rýnenda.
Dagbjört Ásgeirs-
dóttir gaf út hina bráð-
skemmtilegu og spenn-
andi bók Gummi fer á
veiðar með afa.
Þessir rithöfundar lögðu
öll efni fyrir samnemend-
ur sína sem síðar varð að
ofangreindum bókum.
Námskeiðið hefst 25.
september og lýkur 23.
október. Skráningarfrest-
ur er til 18. september
og er fjöldi þátttakenda
takmarkaður.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is