Fréttatíminn - 23.08.2013, Síða 52
Námskeið Helgin 23.-25. ágúst 201352
Slakandi steinefnablanda
Náttúrulegt magnesíum unnið
úr sjó og Hafkalk úr Arnarfirði.
Inniheldur einnig B6 (P5P)
og C vítamín.
Fyrir betri svefn,
náttúrulega!
Auðmelt og kraftmikið Omega 3
Ljósátulýsi úr Suður-Íshafinu með
náttúrulegum andoxunarefnum
sem gera rotvarnarefni óþörf.
Mikil virkni, ekkert eftirbragð.
Gott fyrir hjartað og
æðakerfið, heilann
og liðina!
Vottuð íslensk náttúruafurð
Kalkþörungar úr Arnarfirði
Innihalda kalk, magnesíum
og fjölmörg önnur mikilvæg
stein- og snefilefni úr hafinu.
Styrkir brjósk og bein.
Gott fyrir liðina!
Hafkalk ehf. – 465 Bíldudalur – www.hafkalk.is
Fæst í lyfja- og heilsubúðum um land allt
Guðmundur Örn
Guðjónsson,
annars stofnandi
Bogfimiset-
ursins, segir fullt
á öll námskeið
þrátt fyrir að
ekkert hafi verið
auglýst.
Námskeið Ófáar hetjur eiga boga og örvar
Um 250 manns æfa í Bogfimisetrinu
Um 250 manns æfa bogfimi hjá Bogfim-
isetrinu en aðeins eru 10 mánuðir síðan
setrið var opnað. „Mig var búið að langa
til að prófa þetta í mörg ár,“ segir Guð-
mundur Örn Guðjónsson, annar stofn-
andi Bogfimisetursins. Þar er einfald-
lega hægt að panta hálftíma til að prófa
að skjóta af boga og sjá til í framhaldinu
hvort fólk langar á námskeið sem einn-
ig er þar boðið upp á. Á grunnámskeiði
er farið yfir stillingar á bogum, örvum,
öryggi og mismunandi tegundir boga.
Meirihlutinn af námskeiðinu er verk-
legur, það er að skjóta af boga, en einnig
er um að ræða sýnikennslu.
Til að skrá sig í borgfimifélag þarf
að hafa lokið grunnnámskeiði. Til að
geta keypt boga þarf að framvísa til
lögreglu staðfestingu á að viðkomandi
sé í bogfimifélagi og sé að æfa eða
keppa í bogfimi. Ekkert eiginlegt ald-
urstakmark er í Bogfimisetrinu, þeir
yngstu sem þangað koma eru um 10
ára. Í vopnalögum segir að barni yngra
en 16 ára megi ekki selja eða afhenda
örvaboga með meiri togkrafti en 7 kíló
eða oddhvassar örvar. „Við bara förum
eftir þessu og yngri börn fá boga með
minni togkraft,“ segir Guðmundur.
Þrátt fyrir að Bogfimisetrið hafi lítið
sem ekkert auglýst er fullt á öll nám-
skeið. Guðmundur segir að áhuga á
bogfimi megi eflaust rekja til bíó-
mynda þar sem söguhetjurnar skjóta
af boga, svo sem Hungurleikarnir,
Disney-myndin Brave, Hrói höttur
og þættirnir Game of Thrones. „Þeir
fengu einmitt nokkra Íslendinga til
að skjóta af boga við upptökur,“ segir
Guðmundur en sem kunnugt er hafa
þættirnir verið teknir að hluta til hér
á landi.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Valgerður Hall-
dórsdóttir, félags-
ráðgjafi og formaður
Félags stjúpforeldra,
heldur námskeið
fyrir stjúpforeldra í
Reykjavík og á Akur-
eyri. Lósmynd/Hari
s tjúpmæður, einhleypir feður og eiginmenn stjúpmæðra geta lært betur inn á sín
flóknu hlutverk á námskeiðum sem
haldin eru á vegum Félags stjúpfjöl-
skyldna og Stjúptengsla í haust.
„Það kemur margt upp á í stjúp-
fjölskyldum og fólk er yfirleitt að
glíma við það sama,“ segir Val-
gerður Halldórsdóttir, félagsráð-
gjafi og formaður Félags stjúpfjöl-
skyldna. „Það eru gerðar nýjar
kröfur á þig og þú veist ekki hvað
þú vilt og hvað þú átt að gera. Oft
eru hlutirnir gerðir að persónuleg-
um ágreiningi. En þetta er vel yfir-
stíganlegt um leið og þú veist hvað
þú þarf að takast á við og þá gengur
allt vel,“ segir hún.
Félagið býður öllum félags-
mönnum, sem greitt hafa 3.000
króna félagsgjald ársins, ókeypis
námskeið um Sterkari stjúpfjöl-
skyldur þar sem farið er yfir helstu
áskoranir stjúpfjölskyldna. Nám-
skeiðin verða haldin í Reykjavík
og á Akureyri síðari hluta septem-
ber og eru kostuð með styrk sem
velferðarráðuneytið veitti samtök-
unum á síðasta ári.
Valgerður segir að það sé algeng
tilfinning í stjúpfjölskyldum, bæði
hjá börnum og fullorðnum, að upp-
lifa sig útundan og geti það haft
óheppileg áhrif á fjölskyldulífið sé
ekki brugðist við á uppbyggilegan
máta. Takast þurfi á við breytingar
á foreldrahlutverkinu og finna við-
eigandi hlutverk fyrir stjúpforeldri.
Einnig sé mikilvægt að koma auga
á og virða sorg og missi barna.
Huga þurfi að því hvernig sam-
skiptum við fyrrverandi maka er
háttað en það geti haft mikil áhrif á
stjúpfjölskyldur.
Auk námskeiða félagsins heldur
Valgerður, sem er sérmenntuð í
fræðunum, sérstök námskeið fyrir
stjúpmæður – Stjúpuhitting – og
annað námskeið fyrir eiginmenn
stjúpmæðra og stjúpfeður.
Vilja ekki vera vonda stjúpan
Hún segir að stjúpur sem leggja sig
allar fram í stjúpmóðurhlutverkinu
og taki tillit til þarfa makans, stjúp-
barna sinna sem og jafnvel móður
þeirra finni gjarnan fyrir vanþakk-
læti bæði stjúpbarna og maka
þegar framlag þeirra er ekki metið
eins þær kjósa. „Sumar finna fyrir
stjórnleysi þegar svo virðist sem
að maki þeirra taki meira tillit til
fyrrverandi konu sinnar eða barns-
móður en stjúpunnar,“ segir hún.
„ Margar vita hvað þær vilja ekki
vera - þ.e. vonda stjúpan - en vita
ekki hvað þær eiga eða mega vera
á heimilinu. Staðan er því oft ein-
mannaleg og ruglandi.“
Hún segir að það sé samdóma
álit þeirra sem sóttu Stjúpuhitting á
síðasta ári að þær hafi orðið örugg-
ari í hlutverkinu eftir námskeiðið
þar sem fjallað er um væntingar
þeirra, hlutverk stjúpmæðra, sam-
skipti og áhrif fyrrverandi maka á
fjölskyldulífið og samskipti við nú-
verandi maka.
Á pabbahittingi – námskeiði fyrir
einhleypa feður og eiginmenn
stjúpmæðra er fjallað um hvernig
það getur tekið á að vera einn á
vaktinni sem einhleypt foreldri
og um hvernig hægt sé að bæta
samskipti við börnin sín og barns-
móður.
Auk námskeiðanna veitir Félag
stjúpforeldra ókeypis símaþjónustu
á miðvikudögum milli kl. 16 og 16 í
síma 5880850. Nánari upplýsingar
eru á stjuptengsl.is.
stjúpteNgsl flÓkNasta hlutverkið
Að læra að vera
stjúpforeldri
“Það kemur margt upp á í stjúpfjölskyldum og fólk er yfirleitt að
glíma við það sama,” segir Valgerður Halldórsdóttir, sem heldur
námskeið fyrir stjúpfjölskyldur í Reykjavík og á Akureyri.