Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 58
58 matur og vín Helgin 23.-25. ágúst 2013
Bjór ótrúlegur uppgangur Mikkeller á sjö áruM
Brandenburg
Fullorðins
595»
Barna
295»
KOMD’Í
SHAKE
Mikkel Borg Bjergsø stofnaði Mikkeller fyrir sjö árum síðan. Hann er nú einn
virtasti og uppátækjasamasti bruggari í heimi. Ljósmynd/Rasmus Malmstrøm
Sígauna-bruggarinn
Fyrir tíu árum síðan byrjaði kennarinn Mikkel Borg Bjergsø að brugga bjór í eldhúsinu
á íbúð sinni í Kaupmannahöfn. Í dag þykir hann bæði einn framsæknasti og besti
bruggari í heimi.
Átta tegundir fást í ríkinu
„Sumir bjóranna koma aftur og aftur en aðrir
koma bara einu sinni. Frá því við byrjuðum
með Mikkeller í maí 2011 eru vörunúmerin
orðin 67,“ segir Andri Þór Kjartansson hjá
heildversluninni Járni og gleri sem flytur inn
Mikkeller.
Samkvæmt heimasíðu Vínbúðanna eru átta
tegundir af Mikkeller nú fáanlegar í versl-
unum. Best er að fara í eina stóru búðunum
þremur; Kringluna, Heiðrúnu eða í Skútu-
vogi, til að næla sér í Mikkeller-bjór því ekki
er algengt að þeir fáist mikið víðar. Þó er
hægt að sérpanta alla bjórana.
„Auk þessa erum við oft með kúta og kassa
sem fara á barina,“ segir Andri.
Nýjasti Mikkeller-bjórinn er Aarh Hvad
sem er belískur Pale Ale. Nafnið minnir óneit-
anlega á hinn kunna bjór, Orval sem vill svo
til að er eftirlætis bjór Mikkel Borg Bjergsø.
„Já, þetta er tribute til Orval,“ segir Andri.
Þ egar fólk smakk-aði bjórinn okkar sagðist það vera mjög hrifið af
þeim. Árið 2005 ákváðum
við að það væri gaman að
fá viðbrögð fleira fólks,“
segir Mikkel Borg Bjergsø
um upphaf bruggferils
síns. Í upphafi bruggaði
hann í félagi við Kristian
Klarup Keller og aðstæð-
urnar voru eins frumstæð-
ar og hjá öðrum heima-
bruggurum. Nafn bjórsins
var sett saman úr nöfnum
þeirra tveggja; Mikk-
eller. Síðar heltist Keller úr
lestinni.
Fyrsti bjórinn kallaðist
Stateside og var IPA-
bjór. Framleiddar voru
tvö þúsund flöskur. „Við
hugsuðum með okkur að
ef við gætum selt hann þá
væri það frábært, ef ekki
þá væri það ekki mikið tap.
Þeir seldust frekar fljótt
upp. Og þannig hélt þetta
áfram,“ segir bruggarinn.
Fyrsti bjórinn var brugg-
aður í brugghúsi sem
Mikkeller-menn fengu að
láni. Bjergsø hefur haldið
sig við þetta verklag síðan
þá. Hann hefur nú bruggað
bjór í brugghúsum víða
um heim og hefur engin
áform um að byggja eigið
brugghús. Ástæðan er sú
að hann taldi að þá væri
hætta á að gera þyrfti
málamiðlanir, slaka á
kröfunum því Mikkeller
yrði þá undir pressu um að
selja mikið magn af bjór.
Bjergsø flakkar því á milli
húsa og kallar sig sígauna-
bruggara.
Mikkeller vakti mikla
athygli í Danmörku þegar
það hóf starfsemi árið 2006.
Þó Danir hafi alla tíð haft
úr nógu úrvali af bjór að
velja var augljóslega mark-
aður fyrir „gourmet“-vöru.
Og heimsbyggðin hefur í
kjölfarið tekið við sér. Vin-
sældirnar hafa aukist jafnt
og þétt á stórum mörkuðum
á borð við Bandaríkin og
Bretland og Bjergsø lætur
bjóráhugafólk hafa úr nógu
að velja. Eitt árið fram-
leiddi hann til að mynda 94
tegundir af bjór. Og ekki
vantar fjölbreytnina, Mikk-
eller framleiðir jöfnum
höndum allt frá pilsner-bjór
upp í tunnuþroskað Barley
Wine sem er með tuttugu
prósent styrkleika og jafn-
vel 30 prósent bjór. „Hug-
myndirnar að nýjum bjór
koma bara, það hefur ekki
verið vandamál til þessa.
Ég er alltaf með að minnsta
kosti 20 nýjar uppskriftir í
bakhöndinni sem bíða eftir
að vera bruggaðar. Ég elska
spennuna sem kemur þegar
maður býr til uppskrift og
þarf svo að bíða í hálft ár
til að sjá hvort þú færð það
sem þú vonast eftir,“ segir
Mikkel Borg Bjergsø.
Tveir Mikkeller-barir
eru nú starfræktir í Kaup-
mannahöfn og á þeim geta
gestir fengið fjölda forvitni-
legra bjórtegunda. Bjórinn
er seldur af krana, við rétt
hitastig og bornir fram í
viðeigandi glasi. Það er
sumsé upplifun að drekka
bjór á Mikkeller-börunum.
Á þessum börum getur fólk
ekki gert sér von um að fá
glas af hefðbundnum Carls-
berg eða Tuborg. „Það get-
ur vel verið að maður vilji
stundum bara fá sér Tuborg
en það verður þá að vera
á öðrum bar en þessum,“
segir bruggarinn.
Það er nóg úrval af gæðabjór á krana á Mikkeller-börunum í Kaupmannahöfn.