Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Síða 71

Fréttatíminn - 23.08.2013, Síða 71
Ú r ljó ði nu F ja llg an ga e ir Tó m as G uð m un ds so n H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 1 3 -2 2 0 6 HREYKJA SÉR Á HÆSTA STEININN HVÍLA BEININ S tóru leikhúsin tvö, Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið, kynntu í vikunni vetrardag- skrá sína og er óhætt að fullyrða að margt spenn- andi er á boðstólum. Í dagskrá Þjóðleikhúss- ins vekur sérstaka athygli nýtt leikrit eftir Braga Ólafsson, Maður að mínu skapi. Leikstjóri er Stefán Jónsson og meðal leikara eru Eggert Þorleifsson, Kristbjörg Kjeld, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Pálmi Gestsson. Þá er sígilt leik- rit Guðrúnar Helgadóttur, Óvitar, sett upp að nýju en það var frumsýnt árið 1979. Leikstjóri er Gunnar Helga- son og meðal leikara eru Jóhannes Haukur Jóhann- esson, Ágústa Eva Erlends- dóttir, Ævar Þór Benedikts- son og Örn Árnason. Svanir skilja ekki er nýtt verk eftir Auði Övu Ólafs- dóttur og Harmsaga er nýtt verk eftir Mikael Torfason. Þá geta gestir í Þjóðleik- húsinu einnig séð Eldraun- ina eftir Arthur Miller, Spamalot eftir Eric Idle sem er söngleikur byggður á kvikmyndinni Monthy Python and the Holy Grail og Pollock eftir Stephen Sachs. Í Borgarleikhúsinu setur Kristín Jóhannesdótt- ir upp Hús Bernhörðu Ölbu þar sem margar frábærar leikkonur eru í aðalhlut- verkum, Vignir Rafn Val- þórsson leikstýrir verkinu Refurinn eftir Dawn King sem vakti mikla athygli í Bretlandi og vinkonurnar Skoppa og Skrítla verða með jólahátíð. Stóra sýningin í Borgar- leikhúsinu þennan veturinn er Hamlet í leikstjórn Jóns Páls Eyjólfssonar með Ólafi Darra Ólafssyni í aðalhlut- verki. Ragnar Bragason kvikmyndaleikstjóri vakti athygli í fyrravetur með sínu fyrsta leikverki, Gull- regni. Nú snýr hann aftur með Óskasteina sem fjallar um illa skipulagt rán í smábæ sem misheppnast. Ræningjarnir flýja og leita skjóls í mannlausum leik- skóla með eldri konu sem gísl. Ýmislegt kemur í ljós í samskiptum þessa fólks eftir því sem örvæntingin ágerist.  LeikhúS Stóru LeikhúSin kynna vetrardagSkrá Sína Margt spennandi á fjölunum í vetur Ólafur Darri Ólafsson leikur aðalhlutverkið í Hamlet. Jóhannes Haukur Jóhannesson leikur aðalhlutverkið í Óvitum. Þorvaldur Davíð Kristjáns- son fer með aðalhlutverkið í Furðulegu háttalagi hunds um nótt sem Hilmar Jónsson leikstýrir. Verkið er byggt á skáldsögu Mark Haddon sem naut talsverðra vinsælda. Sýningin hlaut sjö verðlaun á Olivier Awards í ár. Þá má nefna fyrsta leikrit hins vinsæla rithöfundar Kristínar Marju Baldursdótt- ur. Leikritið kallast Ferjan og í leikhópnum er að finna ekki ómerkara fólk en Unni Ösp Stefánsdóttur, Margréti Helgu Jóhannsdóttur og Hilmar Guðjónsson. Nánari upplýsingar um dag- skrá leikhúsanna má finna á heimasíðum þeirra. menning 71 Helgin 23.-25. ágúst 2013
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.